Vont er það og verra en verst!

 Vont er það og verra verður það, er viðkvæðið þessa dagana og kveðskapurinn er sannarlega ekki fallegur.

Sakleysingjarnir eru í holum sínum á meðan vondir menn brugga vélráð sem enginn sér fyrir hver verði og ekki einu sinni teiknarinn góði.

Tveir taflmenn liggja fallnir á borðinu, klukkan er við það að falla á þá sem eru til vinstri og þar með talda holubúana og ef til vill er hún fallin á þá til hægri og það er hugsað djúpt, þ.e.a.s. ef þeim er það þá fært.

Hjá okkur er staðan önnur og Morgunblaðið kann vel að meta glæsilegan forsætisráðherra, sem ber sig vel og það þó hann komi úr öðrum flokki en þeim sem blaðið styður.

En allt er það vont og verra en verst að mati Miðflokksmanns sem er búinn að tala yfir sig líkt og félagar hans, um það sem hann telur sig hafa betra vit á en þeir sem hann talar til, en hvort sú skoðun og það álit, nær út fyrir flokksherbergið er frekar ólíklegt.

,,Skattbyrði er ekki sama og skattbyrði" segir maður nokkur sem ekki er prófessor í hagfræði, því hann hefur fundið ,,nokkrar breytur" sem skipta ,,höfuðmáli" og höfuðmál er ekki sama og höfuðmál eins og allir vita sem átt hafa höfuðföt!

Við leyfum Miðflokksmanninum að hafa orðið í lokin í þessari samantekt, enda hafa þeir sóst mjög mikið eftir því síðustu daga að ,,hafa orðið", því þeir vilja segja eitthvað um flest og líklega mest um það sem þeir vita minnst um.

Svona er íslensk pólitík þessa dagana og enginn geltir að þeirri tík, er það?

Allar klippurnar eru fengnar úr Morgunblaðinu

Vitskert veröld?

 Að leysa deilur milli manna, hópa og/eða þjóða með ofbeldi, er slæmur kostur sem er samt ríkjandi við afgreiðslu deilumála t.d. milli einstaklinga, hópa, þjóða og þjóðabandalaga.

Geta Rússland og Þýskaland verið vinaþjóðir? Úkraína og Rússland? Frakkland og Rússland?

Í sögulegu tilliti er hægt að halda upptalningu af þessu tagi lengi áfram því mannkynssagan geymir margar frásagnir af átökum milli þjóða og tilraunum þjóða til að sigra hvorar aðra og í þessum dæmum Rússland.

Og stundum hefur það tekist næstum því en aldrei alveg, því björninn er stór, víðátturnar miklar og þjóðin kann að standa saman þegar að henni er sótt.

Það vekur upp daprar minningar þegar t.d. Þjóðverjar styðja Úkraína í árásum á Rússland, því eitt sinn voru það Úkraínar sem studdu Þjóðverja í sama tilgangi.

Sagt er að sagan endurtaki sig með einhverjum hætti og nokkuð er til í því.

En stundum snýst allt við og núna eru það t.d. Bandaríkjamenn sem styðja Úkraína en við munum úr sögunni að áður voru það Bandaríkin sem studdu Rússa í baráttu við Þjóðverja og stuðningsríki þeirra.

Ruglar það okkur ef til vill í ríminu að rifja þetta upp?

Því verður ekki svarað hér, enda þessar línur einungis settar á skjá sem hugleiðingar.

Við vitum það eitt með vissu að það er sem allt sé á hverfanda hveli og t.d. allt að því borgarastyrjöld í Bandaríkjunum, sem stjórnað er að forseta, sem framkvæmir fyrst og hugsar svo, þ.e.a.s. ef honum er það fært.

Gyðingaþjóðin sem sætti svo miklu og ógeðslegu ofbeldi beitir nú aðra þjóð ofbeldi sem er lítið sem ekkert betra og tókst með frekar lítilli fyrirhöfn að góma sænskt stelpuskott og senda til síns heima.

Þeir drápu hana ekki og það er afrek út af fyrir sig miðað við hvernig þeir afgreiða sína næstu granna!

Á BBC.COM er sagt frá því að Rússar séu með dróna í bandi, ljósleiðara ,,bandi“, og noti þá til að gera það sem gert er í styrjöldum þ.e. til að skemma, eyðileggja og drepa og sjá má eitt slíkt flugtól á myndinni hér fyrir ofan.

Því verður ekki neitað að mannskepnan er á sífelldri þróunarbraut og finnur alltaf upp á einhverju nýju til að gera sjálfri sér bölvun!

Siggi gerði segir Jói og Jói gerði segir Siggi

 Þannig gengur þetta að því er virðist út í hið óendanlega og engu skiptir þó samninganefndir ríkjanna hittist í Tyrklandi og þykist vera að semja um frið milli landanna.

Kannski eru þær að starfa í góðri trú en svo mikið er víst að lítið kemur út úr því sem þær gera, annað er eftir á og fyrirfram þras um keisarans skegg, þ.e. hvort Putin kemur til að hitta Zelensky o.s.frv.

Það þarf engann að undra þótt fljóthuga og grunnhugsandi maður eins og Trump sé við það að missa þolinmæðina, ef hann hefur þá nokkurn tíma haft þolinmæði til að bera.

Fréttir hafa borist af, að Úkraínar hafi reynt að sprengja brúna langþráðu yfir til Krímskaga, sem var byggð á undra skömmum tíma með nútíma tæknibúnaði og þekkingu; gekk svo fljótt og vel að Pétur mikli hefur örugglega brosað, hafi hann fylgst með framkvæmdunum.

Geti Pétur eitthvað gert þaðan sem hann er núna, mun hann örugglega gera skemmdarvörgunum skráveifu!

Við getum hins vegar fylgst með því sem gengur á í Kænugarði með því að skoða myndband sem The Guardian birtir á vef sínum.

Úkraínar voru víst afar ánægðir með afrek sín þegar þeir sprengdu stórar flugvélar með drónum; Rússum þótti það dónalegt, þótt sumar þeirra véla væru í niðurrifi.

Flugvélar eru eins og önnur tæki og tól, að þær eru góðar fyrst en versna með tímanum og að lokum eru þær rifnar niður og aðrar og fullkomnari taka við.

Bandaríkjamenn veittu þessu athygli sem vonlegt er og niðurstaða þeirra er, að margt þurfi að gera eigi þeirra vélar að vera óhultar á drónaöld.

Við sjáum og höfum séð áður, að Rússar eiga líka árásardróna og nú beita þeir þeim líkt og áður gegn Úkraínu.

Rússar segja að drónaárásir þeirra séu hefnd fyrir árásir Úkraína og þannig er það og þannig mun það verða, þar til menn komast að þeirri niðurstöðu að best sé að snúa sér að öðru.

Friðarvilji?

 Haldinn var fundur varðandi friðarsamninga milli Rússlands og Úkraínu í Tyrklandi og áhugavert er að bera saman rússneskar og bandarískar fréttir af viðræðunum.

Í Russya Today er sagt frá skilyrðunum sem Rússar setja fyrir friði milli landanna, skilyrði sem í mörgu virðast eðlileg sé horft á málin frá rússneskum sjónarhóli.

Kondu að semja góði, því við erum í góðu samningaskapi!

Á CNN.COM er farið yfir málin og svo sem við er að búast er niðurstaðan ólík því sem er á RT, svo ekki sé meira sagt.

Sjónarhólarnir eru sem sagt á ólíkum stöðum og útsýnið eftir því.

Viðræðurnar standa yfir í skugga drónaárása sem Úkraínar gerðu örstuttu áður en viðræðurnar áttu að hefjast; árásir sem eru vel lukkaðar, séð frá úkraínskum sjónarhóli.

Það má með sanni halda því fram, að það sé ótrúlega ósvífið að gera árásir af þessu tagi, nánast degi fyrir samningafund um frið milli þjóða.

Mat Úkraína hefur vafalaust verið það, að vel lukkuð árás af þessu tagi myndi styrkja stöðu þeirra í viðræðunum en ólíklegt er annað en að fréttir af árásunum, hafi hert frekar en hitt, afstöðu Rússa til samninga.

Hvað sem samningum líður sýna árásirnar, að Rússar verða að gæta sín enn betur en áður, því ef árásin sannar eitthvað, þá sannar hún, að Rússland er alls ekki nægjanlega vel varið í ýmsu tilliti.

Niðurstaðan blasir við öllum sem fylgjast með og ekki síst rússneskum ríkisborgurum sem sjá að landið er illa varið fyrir ,,smygli“ af þessu tagi.

Það er ekki einfalt að gæta þess mikla landflæmis sem Rússland er og því þarf að vanda til verka og ef hægt er að smygla hertólum með þessum hætti, þá er væntanlega hægt að smygla enn varasamari skaðræðistólum inn í landið, sé vilji fyrir hendi.

Atburðarrásin sýnir og sannar að Úkraínar eru alls ekki tilbúnir til samninga og þar með ekki komnir á þann stað, að þeir vilji ljúka ófriðnum sem verið hefur milli landanna um langan tíma.

Það er því nær engin ástæða til mikillar bjartsýni, eins og reyndar segir á einum stað í umfjöllun CNN.COM.

Gamalt og nýtt ofbeldi

 Nýnasismi er að ná sér að flug í vestur- Evrópu að sögn RT.COM og Macron virðist langa til að feta í fótspor Napóleons og þýskir ráðamenn eru ekki alveg frábitnir gömlum draumum.

Moskva var dálítið öðruvísi þegar Naflajón var á ferðinni með sinn söfnuð en sá lufsaðist að lokum heim til sín og endað ferilinn á eyju í Karabíska hafinu.

Hitler reyndi líka og komst langt, en flestir vita hvernig sú för endaði og þegar hann sá fram á að stríðið var tapað, lógaði hann sjálfum sér og sínum; var ekki tilbúinn til að standa fyrir svörum um gerðir sínar og yfirgaf því sviðið.

Nú eru sprottin upp mikilmenni í vestrinu sem langar austur en komast ekki sökum anna og ætla þess vegna að senda alþýðustúlkur og pilta í leiðangurinn, því það er minna tjón í þeim, að því að þeir telja.

Maður gerir náttúrulega ekki hvað sem er, ef maður er í forystunni fyrir landið sitt og því er betra að senda minni spámenn og væntanlega líta þeir svo á, að í þeim sé minna tjón.

Við sjáum hvað setur með þetta en þeir og þær eru líka til, sem vilja koma á friði milli landa og við setjum traust okkar á þau.

Annars hefur það verið svo að styrjöld Ísraels á Gaza og ,,Vesturbakkann“ er flestu ofar í umræðunni sem vonlegt er, því önnur eins fjöldamorð hafa varla sést síðan í annarri heimstyrjöldinni.

Þá voru það nazistar og handbendi þeirra – m.a. úkraínskir – sem drápu saklausa gyðinga en nú er dæminu snúið við, að því leytinu til, að það eru gyðingar sem standa að fjöldamorðum á almennum borgurum.

Þegar hugsað er til þess hvað gyðingar hafa þurft að líða áður fyrr, er ótrúlega sárt til þess að hugsa, að forystumenn þeirra skuli fara fyrir aðför að almennum borgurum líkt og sjá má á í fréttum frá Gaza.

Vont er það og verra en verst!

  V ont er það og verra verður það, er viðkvæðið þessa dagana og kveðskapurinn er sannarlega ekki fallegur. Sakleysingjarnir eru ...