Haldinn var fundur varðandi friðarsamninga milli Rússlands og Úkraínu í Tyrklandi og áhugavert er að bera saman rússneskar og bandarískar fréttir af viðræðunum.

Í Russya Today er sagt frá skilyrðunum sem Rússar setja fyrir friði milli landanna, skilyrði sem í mörgu virðast eðlileg sé horft á málin frá rússneskum sjónarhóli.

Kondu að semja góði, því við erum í góðu samningaskapi!
Á CNN.COM er farið yfir málin og svo sem við er að búast er niðurstaðan ólík því sem er á RT, svo ekki sé meira sagt.
Sjónarhólarnir eru sem sagt á ólíkum stöðum og útsýnið eftir því.
Viðræðurnar standa yfir í skugga drónaárása sem Úkraínar gerðu örstuttu áður en viðræðurnar áttu að hefjast; árásir sem eru vel lukkaðar, séð frá úkraínskum sjónarhóli.
Það má með sanni halda því fram, að það sé ótrúlega ósvífið að gera árásir af þessu tagi, nánast degi fyrir samningafund um frið milli þjóða.
Mat Úkraína hefur vafalaust verið það, að vel lukkuð árás af þessu tagi myndi styrkja stöðu þeirra í viðræðunum en ólíklegt er annað en að fréttir af árásunum, hafi hert frekar en hitt, afstöðu Rússa til samninga.
Hvað sem samningum líður sýna árásirnar, að Rússar verða að gæta sín enn betur en áður, því ef árásin sannar eitthvað, þá sannar hún, að Rússland er alls ekki nægjanlega vel varið í ýmsu tilliti.
Niðurstaðan blasir við öllum sem fylgjast með og ekki síst rússneskum ríkisborgurum sem sjá að landið er illa varið fyrir ,,smygli“ af þessu tagi.
Það er ekki einfalt að gæta þess mikla landflæmis sem Rússland er og því þarf að vanda til verka og ef hægt er að smygla hertólum með þessum hætti, þá er væntanlega hægt að smygla enn varasamari skaðræðistólum inn í landið, sé vilji fyrir hendi.
Atburðarrásin sýnir og sannar að Úkraínar eru alls ekki tilbúnir til samninga og þar með ekki komnir á þann stað, að þeir vilji ljúka ófriðnum sem verið hefur milli landanna um langan tíma.
Það er því nær engin ástæða til mikillar bjartsýni, eins og reyndar segir á einum stað í umfjöllun CNN.COM.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli