Ekkert er nýtt undir sólinni

 Frásagnirnar finnum við í CNN.COM

CNN segir okkur frá og eins og sjá má, er flygildið ekki frýnilegt og í engu líkt neinu sem við höfum áður séð.

En það er fleira að sjá á miðlinum og þ.á.m. það, að farið er með okkur enn lengra aftur í tímann og inn í kjarna Vetrarbrautarinnar okkar og þar er svo sannarlega ýmislegt að ,,sjá", þó við getum í raun ekkert ,,séð".

En vísindamenn okkar eru ráðagóðir og þeim tekst að draga upp mynd af því hvernig miðja Vetrarbrautarinnar lítur út og sé ,,fuglinn" sérstakur, þá er miðja stjörnuþoku okkar ekki síður athygli verð.

Einn lítill fugl er ekki mikill fyrir sér í samanburði við það sem ,,sjá" má í miðju Vetrarbrautarinnar, í miðju þess heims sem við búum í.

En við erum svo heppin að eiga vísindamenn sem kunna að draga ályktanir og síðan í framhaldi af því, að draga upp mynd af því sem þar er að ,,sjá", sem ekkert er að sjá!

Við ljúkum þessu með því að benda á enn eina greinina í vísindahluta miðilsins góða, þar sem vísað er til dularfullra örvera en Ásgarður er nefndur í því sambandi.

Hvað er að gerast?

 Það ríkir ófriðarástand í heiminum sem eðlilegt er að hafa áhyggjur af og við vitum ekki hvernig það ástand leysist ef það þá gerir það, sem við vonum væntanlega flest að verði.

En það er ýmislegt fleira sem vert er að hafa áhyggjur af, eins og s.s. það sem sagt er frá í þessari frétt CNN.

CNN.COM segir frá breytingum sem eru að verða í hafinu í grennd við Ísland.

Í upphafi greinarinnar segir: ,,Í Norður-Atlantshafi, sunnan við Grænland og Ísland, er eitthvað mjög undarlegt að gerast á stóru svæði í sjónum.

Þó hafið sé að hitna hefur það verið að kólna á þeim slóðum.

Í nýrri rannsókn telja menn sig hafa komist að skýringu á þessu sem er, að um sé að ræða ógnvænlegt merki um að komið sé að að vendipunkti í loftslagsbreytingunum ."

En að öðru.

Í Heimildinni er fjallað um ástandið sem er í miðausturlöndum þ.e. nágrannalöndum Ísraels, þar sem vaðið er yfir með herafli, fólk drepið og hrakið af heimilum sínum þ.e.a.s. ef þau eru þá uppistandandi, því algengast er að allt sé í rúst s.s. sjá má á Gaza.

                                                        Mynd úr grein Heimildarinnar

Áður var það Gaza en nú er það Líbanon og útþenslan er alls ekki hætt.

Forystumenn Ísraels eru að skapa sögu sem við áttum ekki von á að yrði og alls ekki, að hún yrði sköpuð af þjóðinni sem þola mátti hinar viðbjóðslegu aðfarir nasista.

Bandarískir ráðamenn vilja ráða heiminum og stjórna, það er s.s. ekkert nýtt og þau eru æði mörg löndin sem orðið hafa þeim að bráð.

Vietnam, Írak, Kúba, Venesúela og fleiri oig fleiri...

Þeir sem ráða för fara sínu fram, en það er ekki endilega víst að bandaríska þjóðin sé öll ánægð með það sem er að gerast.

Hvað verður vitum við ekki, en dýrmætt væri ef það tækist að stilla til friðar.

Við lifum í voninni!

Vinur er...

 

,,Vinur er sá er til vamms segir“, en gerði hann það á trúverðugan hátt?

Zelensky skrifaði Putin bréf og hvatti hann til að mæta til friðarviðræðna til að stöðva stríðið sem er milli þjóðanna. Stríð sem staðið hefur árum saman og virðist ekki sjá fyrir endann á.

Ekki veit undirritaður hvað Putin hefur gert við bréfið en það hefur verið gert opinbert og líklega hefur hann komið því í góða varðveislu til að geta vitnað í það seinna meir.

Sá sem vill þjóð sinni það besta, sendir ekki frá sér samsuðu eins og þá sem hefur mátt lesa á netmiðlum en gera má ráð fyrir að ,,bestu vinir aðal“ séu ánægðir.

Úkraínska þjóðin þarf frið og það þarf rússneska þjóðin líka, en það stuðlar tæplega að friði milli stríðandi þjóða að senda mótherja samsuðu af því tagi sem lesa mátti og sagt var vera bréf Zelenskys til Putin.

Hvort það var rétta bréfið vitum við ekki með vissu en skrítið er það, svo varlega sé til orða tekið.

Hvort Putin mun svara ritsmíðinni veit sá sem þetta ritar vitanlega ekki neitt um, en ólíklegt er það og líklegt er að hér gildi, ,,að hér var verr af stað farið en heima setið“ því það er ekki samsuða af þessu tagi sem þjóðirnar tvær þurfa á að halda frá leiðtogum sínum.

Dýrmætt hefði það verið, ef Zelensky hefði sent Putin yfirvegað, vandað og málefnalegt bréf, þar sem bent hefði verið á lausnir í deilunum sem uppi eru milli landanna.

Það var ekki gert og því kemur líklega ekkert út úr þessari uppákomu.

Myndin sem er hér að ofan er fengin frá AP og er hún ekki tengd sendingunni umræddu að öðru leiti en því, að hún er af þeim sem sagður er vera höfundur bréfsins.

UFO og RUV

  Ruvarar eru talsvert uppteknir af fljúgandi furðuhlutum þennan daginn. Þeir birta mynd af einum slíkum grip og segja hana vera komna...