Ekkert er nýtt undir sólinni

 Frásagnirnar finnum við í CNN.COM

CNN segir okkur frá og eins og sjá má, er flygildið ekki frýnilegt og í engu líkt neinu sem við höfum áður séð.

En það er fleira að sjá á miðlinum og þ.á.m. það, að farið er með okkur enn lengra aftur í tímann og inn í kjarna Vetrarbrautarinnar okkar og þar er svo sannarlega ýmislegt að ,,sjá", þó við getum í raun ekkert ,,séð".

En vísindamenn okkar eru ráðagóðir og þeim tekst að draga upp mynd af því hvernig miðja Vetrarbrautarinnar lítur út og sé ,,fuglinn" sérstakur, þá er miðja stjörnuþoku okkar ekki síður athygli verð.

Einn lítill fugl er ekki mikill fyrir sér í samanburði við það sem ,,sjá" má í miðju Vetrarbrautarinnar, í miðju þess heims sem við búum í.

En við erum svo heppin að eiga vísindamenn sem kunna að draga ályktanir og síðan í framhaldi af því, að draga upp mynd af því sem þar er að ,,sjá", sem ekkert er að sjá!

Við ljúkum þessu með því að benda á enn eina greinina í vísindahluta miðilsins góða, þar sem vísað er til dularfullra örvera en Ásgarður er nefndur í því sambandi.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Ekkert er nýtt undir sólinni

 Frásagnirnar finnum við í CNN.COM CNN segir okkur frá og eins og sjá má, er flygildið ekki frýnilegt og í engu líkt neinu sem við höfu...