Selurinn hefur mannsaugu

 

ESB- kostir og gallar

Á mbl.is er sagt frá niðurstöðu athugunar HÍ á inngöngu Íslands í ESB og eins og við mátti búast munu bæði kostir og gallar fylgja því að ganga ínn í sambandið.

Svo dæmi sé tekið mun Ísland missa sjálfstæða peningastefnu og mun það fylgja inngöngunni, en menn geta síðan haft sínar skoðanir á því hvort slík stefna hafi verið einhvern tíma til í voru landi.

Eins og kunnugt er, þá er hæpið að hægt sé að glata því sem ekki er til og vel geta verið deildar meiningar um hvort ,,peningastefna“ hafi nokkurn tíma verið til hér á landi og sé niðurstaðan sú að svo hafi ekki verið þá er sem sagt engu að tapa í því efni.

Við eigum peningamusteri í miðbæ Reykjavíkur sem kallað er Seðlabanki Íslands og þar á bæ munu menn rembast við líkt og rjúpan við að móta slíka stefnu.

Við munum hvernig fór í hruninu og ekki vantaði að þá voru miklir menn við stýrið á peningaskipinu en allt kom fyrir ekki og hagkerfið hrundi með brauki og bramli eftir að ,,garkar“ landsins höfðu siglt því í strand.

Það varð sem sagt ,,úti ævintýri“ þá og vafalaust getur svo orðið aftur, því það vantar að minnsta kosti ekki viljann, kunnáttuna og tilburðina.

En svo getur líka verið, að búið sé að leysa vandann með stjaksetningu rússnesks ættað fyrirtækis sem fóru í taugarnar á ríkis- stjórninni? sem var og sem sú sem nú er þorir ekki að reyna að vinda ofan af.

En selirnir sem hafa mannsaugu leiða þetta sem annað hjá sér, njóta lífsins með sínum hætti og hugsa um daginn í dag og taka morgundeginum með ró.

Selurinn hefur mannsaugu

  ESB- kostir og gallar Maí 1, 2026 Óflokkað Á  mbl.is er sagt frá niðurstöðu  athugunar HÍ á inngöngu Íslands í ESB og eins og við mátti bú...