Um úlfa og fl.

 Nýbúinn að leggja frá sér bók eftir David Attenborrough þar sem segir frá því hvernig ágangur mannskepnunnar hefur þrengt að dýralífi og jurta, rekst sá sem þetta ritar, á grein eftir Borgþór Arngrímsson í Heimildinni, þar sem sagt er frá endurkomu úlfa til V- Evrópu.

Með grein Borgþórs fylgir þessi mynd af úlfi sem virðist líklegur til þess að vera að reyna að finna sér eitthvað nærandi.

Eins og við er að búast, er greinin vel skrifuð, fróðleg og góð aflestrar og við sjáum úlfana í nýju ljósi og í hugann kemur sagan af Rauðhettu, auk þess sem upp rifjast að í Sovétríkjunum fyrrverandi, mun kona nokkur hafa stundað rannsóknir á þessum skepnum og m.a. hafa kannað, hvort hægt væri að temja þá og umgangast líkt og hunda.

Ekki man ritari með vissu hvað út úr þeim rannsóknum kom, en gaman væri ef það fengist upplýst.

Ekki verður farið í heimsókn í rússneska sendiráðið á Íslandi til að afla upplýsinga eftir að ráðherra nokkur, sem reyndar er frú, rak sendiherrann til síns heima í bráðræðiskasti.

En það eru ferfætlingar sem ætlunin var að ræða um og vísa til fyrrnefndrar greinar Borgþórs, sem reyndar er svo góð að ritari hefur litlu sem engu við að bæta, nema því að þeir sem áhuga hafa á varðveislu lífríkis Jarðarinnar okkar, ættu að kynna sér greinina.

Og ekki síður bók Attenborough, því það fer enginn svikinn frá því að lesa það sem hann ritar.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Um úlfa og fl.

  Nýbúinn að leggja frá sér bók eftir David Attenborrough þar sem segir frá því hvernig ágangur mannskepnunnar hefur þrengt að dýralífi og j...