Vinur er...

 

,,Vinur er sá er til vamms segir“, en gerði hann það á trúverðugan hátt?

Zelensky skrifaði Putin bréf og hvatti hann til að mæta til friðarviðræðna til að stöðva stríðið sem er milli þjóðanna. Stríð sem staðið hefur árum saman og virðist ekki sjá fyrir endann á.

Ekki veit undirritaður hvað Putin hefur gert við bréfið en það hefur verið gert opinbert og líklega hefur hann komið því í góða varðveislu til að geta vitnað í það seinna meir.

Sá sem vill þjóð sinni það besta, sendir ekki frá sér samsuðu eins og þá sem hefur mátt lesa á netmiðlum en gera má ráð fyrir að ,,bestu vinir aðal“ séu ánægðir.

Úkraínska þjóðin þarf frið og það þarf rússneska þjóðin líka, en það stuðlar tæplega að friði milli stríðandi þjóða að senda mótherja samsuðu af því tagi sem lesa mátti og sagt var vera bréf Zelenskys til Putin.

Hvort það var rétta bréfið vitum við ekki með vissu en skrítið er það, svo varlega sé til orða tekið.

Hvort Putin mun svara ritsmíðinni veit sá sem þetta ritar vitanlega ekki neitt um, en ólíklegt er það og líklegt er að hér gildi, ,,að hér var verr af stað farið en heima setið“ því það er ekki samsuða af þessu tagi sem þjóðirnar tvær þurfa á að halda frá leiðtogum sínum.

Dýrmætt hefði það verið, ef Zelensky hefði sent Putin yfirvegað, vandað og málefnalegt bréf, þar sem bent hefði verið á lausnir í deilunum sem uppi eru milli landanna.

Það var ekki gert og því kemur líklega ekkert út úr þessari uppákomu.

Myndin sem er hér að ofan er fengin frá AP og er hún ekki tengd sendingunni umræddu að öðru leiti en því, að hún er af þeim sem sagður er vera höfundur bréfsins.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Vinur er...

  ,,Vinur er sá er til vamms segir“, en gerði hann það á trúverðugan hátt? Jún 7, 2026 Óflokkað Zelensky skrifaði Putin bréf og hvatti hann...