Nonni og ég

 


Ritari hitti Nonna í gær og líkt og svo oft áður þegar við félagarnir hittumst, var tekið spjall um lífsins gang og nauðsynjar og náttúlega stöðunnar í íslenskri pólitík.

Nonni hugsar talsvert um landsmálapólitíkina og það gerir ritari reyndar líka sem vonlegt er og þeim báðum líst ekki nema mátulega vel á ýmislegt sem er að gerast á hinum pólitíka vettvangi.

Ritari heldur að Nonni sakni þess sem var, en hvort svo er, veit hann ekki alveg með vissu.

Eitt af því sem Nonni nefndi, var að til stæði að breyta skattheimtu af bílaflota landsmanna á þann veg, að tekið yrði upp ,,kílómetra" gjald, sem væntanlega þýðir það að gjald verði greitt í ríkissjóð fyrir hvern kílómetra sem ekinn er eftir vegum og vegleysum landsins.

Í staðinn verður tekinn út úr eldsneytisverði skattur sem þjónað hefur sama hlutverki.

Þegar hingað var komið kom babb í bát, því þeir sem eru svo ógæfusamir (líkt og ritari), að vera nýbúnir að kaupa olíu og/eða bensín á sinn tank, lenda þá í því að greiða tvöfalt veggjald, þar til olían eða bensínið er búið.

Því er það, að rétt er að hvetja alla, þar sem svona stendur á, að aka sem mest þeir geta yfir hátíðarnar til að koma í veg fyrir að þeir lendi í þessari ósvinnu.

Hvort ritari nennir að standa í því er hreint ekki víst, en ólán hans er talsvert, því hann er nýbúinn að taka olíu á sinn bíl og að auki bensín á frúarbílinn!

Eins og af þessu sést er málið grafalvarlegt, því ,,tvísköttun" þykir ekki góð.

Ritari er búinn að hugsa málið vel og vandlega, og niðurstaðan varð sú, að best væri að sjúga olíuna af dísilbílnum og bensínið af bensínbílnum og geyma það síðan á öruggum stað með þungaskatti, virðisaukaskatti og skattaskatti, þar til kerfinu verður breytt aftur í fyrra horf.

Sem við vitum, að verður þegar Abú Dabí stjórnin verður kosin til valda!

Vandi fylgir öllu sem gert er og það er geymslustaðurinn sem vefst fyrir ritara, því eitt sinn ,,átti" hann bankahólf til að geyma í verðmæti sem ekki máttu glatast, en nú er svo komið að bankinn er búinn að ,,taka" hólfið, svo ekki verður eldsneytið geymt þar!

Því er það, að ritari leggur til að búinn verði til eldsneytisþungaskattsbanki fyrir alla Jóna og Gunnur þessa lands, til að þau geti geymt sitt eldsneyti á öruggan og snyrtilegan hátt.

Þegar sá banki verður síðan lagður niður í hagræðingarskyni, eða einhverju öðru skyni, vegna skynsemi þeirra sem með völd og stjórn fara: að þá verði hólfið sent í heilu lagi til eldsneytisnotenda, með bensíninu og olíunni.

Hvernig það fer síðan í vinstrigræningja og aðra græningja þessa lands, þ.e. þá sem ýmist burtsofnuðu í vetrarkosningum snillinganna sem nú verma stjórnarandstöðusæti þingsins okkar góða, eða hanga þar inni við slæman ,,herbergiskost" verður ekkert sagt um að sinni.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Olían og grýlan

Miðillinn CNN.COM fjallar um olíusamning Bandaríkjanna og Indlands og ljóst er að málið er ekki eins einfalt og trumpistar vilja vera láta....