Umhverfis orku og loftlagsráðherra skrifar pistil sem birtist í Morgunblaðinu í dag (22/8/2026) undir yfirskriftinni: ,,AGS: Ríkisfjármálin vinna gegn verðbólgu„

Í greininni sem sést hér að ofan kemur ýmislegt fram um stöðu ríkisfjármála og vitnað er í skýrslu AGS, þar sem sagt er að ríkisfjármálin séu á þann veg, að þau stuðli að ,,lækkun verðbólgu“ og að sjóðurinn fagni því hvernig núverandi ríkisstjórn sé að ná því fram.
Við sem munum vinstrigrænu ríkisstjórnina sem sat á undan þeirri sem nú fer með landsmálin, fögnum því að til starfa sé komið fólk sem er með hugann heima á Íslandi og vilji stuðla að uppbyggingu innviða s.s. orkuvera líkt og núverandi orkumálaráðherra er þekktur fyrir.
Þau mál voru búin að vera í hörðum hnút í tíð fyrri ríkisstjórnar, stjórnar sem var á vinstrigrænum villigötum og vissi nánast ekki hvort hún var að koma eða fara.
Svo fór, að hún fór og við tók nýtt fólk, sem virðist vilja setja hag þjóðarinnar ofar pólitískum sértrúarkreddum.
Við sjáum ef við förum um landið, að unnið er að uppbyggingu orkuvera og þ.á.m. vindorkuvera, sem ekki mátti nefna á nafn í tíð ríkisstjórnarnefnunnar sem áður sat.
Ríkisstjórnar sem ýmist var kennd var við VG eða formann flokksins, en hann fór með forystu í þeirri ,,ríkisstjórn“ svo sem frægt var.
Nú heyrir það ríkisstjórnar- fyrirbrigði sögunni til og er það vel, en stjórnin sem nú situr býður þjóðinni til atkvæðagreiðslu um hvort sótt verði um aðild að ESB- inu og sýnist sitt hverjum sem vonlegt er.

Ritari hefur ekki sannfæringu til að styðja þann leiðangur, telur að betur væri heima setið og finnst sem gott sé að búa í landi sem er hæfilega langt frá þeim suðupotti sem Evrópa er búin að vera síðustu árin.
Nú er greint frá því að búið sé að handtaka þann sem ber ábyrgð á eyðileggingu Nord Streem gasleiðslanna og er það vel.
Sá er sagður vera ,,úkraínskur kafari“ og kemur það ekki á óvart.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli