Það er fátt nýtt undir Sólinni

 

En þessa dagana er það væntanlegur ,,sólmyrkvi“ sem heldur mönnum uppteknum.


Trump er sem horfinn af sviðinu, Zelensky líka og við vitum alls ekki hvað þessum föllnu(?) stjörnum dettur í hug næst.

Skjámynd 2026-07-22 084646

Ný apategund er fundin í Kongó sem er með varir í öðrum lit en gerist og gengur með þessa ættingja okkar manna.

Og það stendur til að kjósa um hvort sótt verði um aðild Íslands að ESB- inu og sitt sýnist hverjum um þann draum og/eða martröð, eftir því hvernig menn líta á málið.

Það er barist í Evrópu austanverðri, það eru Úkraína og Rússland sem takast á, en svo er komið að það er sem Úkraína sé verktaki fyrir vestrið í baráttunni við austrið.

Sólin kemur upp í austri hvort sem mönnum líkar það betur eða verr og því verður ekki breytt þó einhverjum geti langað til þess og nú vill enginn missa af því að sjá hana hverfa á bakvið Tunglið!

Það er eins og ætíð þegar þjóðir takast á með vopnum, að það er fyrst og fremst almenningur sem sýpur seiðið af fyrirganginum og vitanlega líka hermennirnir sem eru særðir, lemstraðir á sál eða drepnir.

Fórna sér fyrir þjóð sína og misvitra ráðamenn en ráða sjálfir litlu sem engu um eigin nútíð né framtíð sem of oft er engin.

Mannskepnan lærir líklega aldrei á friðinn og því er sem er, að blóði er úthellt til einskis og lífum fórnað.

Sagan kennir að öllum ófriði ljúki að lokum, en eftir sitja sorgir sem engin leið er að bæta.

Það er fátt nýtt undir Sólinni

  En þessa dagana er það væntanlegur ,,sólmyrkvi“ sem heldur mönnum uppteknum. Trump er sem horfinn af sviðinu, Zelensky líka og við vitum a...