UFO og RUV

 Ruvarar eru talsvert uppteknir af fljúgandi furðuhlutum þennan daginn.

Þeir birta mynd af einum slíkum grip og segja hana vera komna frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og að hún sé tæpra 80 ára gömul.

Eins og sjá má er hluturinn hinn merkilegasti!

Mulder og Skully voru ekki komin á sviðið þegar myndatakan fór fram, þau komu seinna og skemmtu aðdáendum sínum m.a. í íslensku sjónvarpi allra landsmanna.

Ritari gleymir því ekki hve gaman hann hafði af þessum ævintýrum og gætti þess vel að missa ekki af nokkrum þætti.

Vídeóið var ekki komið til sögunnar, það gerðist seinna, en hefði það verið til staðar á heimilinu hefði maður getað tekið þættina upp, til að gefa bandarískum forsetanefnum og efnum í tækifærisgjöf ... og Miðflokksmönnunum íslensku, svo þeir hefðu eitthvað til að hugsa um.

Biden hinn illa áttaði, eltist við svipuð fyrirbrigði sem reyndust ýmist vera hugarfóstur rugludalla eða loftbelgir sem ærslafullir strákar og stelpur höfðu látið svífa á loft.

Geimverur fundust engar, Xi leiddi ruglið hjá sér og Putin færði riddara til um einn leik og amrískir guttar skemmtu sér konunglega í konungslausu landi!

Myndin sem hér fylgir mun áður hafa verið trúnaðarmál, en nú er kominn Trump og ekkert slíkt trúnaðar-eitthvað og bull lengur til staðar og þvaðrið er í heiðri haft og við förum eftir því!  

Skipið og byssan

 Það var haldinn fundur í Istanbul, skip kom út úr þoku, byssa var gefin og ábyrgðin var mikil.

Þetta er voðalegt að sjá og ekki bætir úr að skipið mun vera rússneskt!

Tyrklandsforseti gaf öllum byssu eftir fundarsetuna og það er eflaust misjafnt hvernig farið verður með gjöfina!

Kristrún mun ætla að láta gera gripinn óvirkan en hvað verður eftir það, veit enginn.

Byssa er ekki byssa nema byssa sé, sagði einhver og því er það vel gert af íslenskum forsætisráðherra, að ,,hundsa" byssuna og sjá til þess að hún verði engum að skaða.

Byssur eru drápstól og hvað hinum tyrkneska gengur til vitum við ekki með vissu, en afþökkum annað Tyrkjarán ef það skyldi nú standa til.

Það var ægilega gaman að eiga byssu þegar ritari var strákur á hlaupum um götur Reykjavíkur á árum áður og eitt sinn gerði hann tilraun til að drepa mann þegar hann var í eltingarleik við frænda sinn.

Til stóð að skjóta frændann en bráðlætið var of mikið og það gleymdist að kanna hver það væri sem sem handan hornsins var að koma.

Það kom hvellur og manninum brá og byssuguttinn forðaði sér í bráða hasti í hvarf svo hann yrði ekki tekinn fastur fyrir að ráðast á saklausan mann á göngu í Aðalstræti Reykjavíkur- óborgar, því engin var borgin þegar þetta var.

Tímarnir breytast og strákarnir með; breytast úr guttum yfir í fullorna menn og síðan gamla karla og ég vona að hinum skotna og þó óskotna manni sem var handan við hornið hafi ekki brugðið svo að hann hafi gengið hlægjandi á brott.

Guttarnir þorðu ekki annað en forða sér á góðan stað áður en hláturinn sprakk fram.

Kannski fór ritari út af strikinu en það verður að hafa það og upplýst er að forsætisráðherrann okkar ætlar að koma byssunni erdónsku í hendur góðra manna sem kunna að gera byssur óvirkar og það svo, að þær verða ekki einu sinni ,,knallettubyssur" eftir breytinguna.

En hvað varð um skipið? Sigldi það bara sinn sjó? Var Putin um borð? Og kannski Trump líka?

Já það eru margar spurningarnar sem vakna en hvað er og hvað verður næst vitum við ekki.

Dagurinn í dag og lítils háttar upprifjun

 Í dag verður að mestu stuðst við framlag Morgunblaðsins til frétta dagsins, en vel getur verið að farið verði eitthvað út af því sporinu líka!

Þar er fyrst frá því að segja, að fyrrverandi hagfræðingur Bændasamtakanna telur að ekki sé rétt að lækkun matvælaverðs verði eins mikil og látið hefur verið í veðri vaka að geti orðið, ef Íslandi verði komið inn í ESB-ið svo sem núverandi utanríkisráðherra og fleiri dreymir um að verði.

Erna útskýrir þetta allt ágætlega í grein sinni sem hægt er að lesa á myndunum sem hér fylgja með, þ.e.a.s. ef menn hafa ekki aðgang að blaðinu eftir öðrum leiðum.

Í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er ráðherra sem fer með umhverfis-, orku og loftslagsmál og finnst eflaust mörgum að tímabært hafi verið að að koma slíku ráðuneyti á laggirnar, eftir stjórnleysistímabilið sem ríkt hafði í tíð fyrri ríkisstjórnar.

Það er ekki ofsagt að það hafa blásið ferskir vindar um orkumálin eftir að þau komust í hendur þeirra sem þora að gera meira en það eitt, að flandra um heiminn á kostnað þjóðarinnar, engum til gagns og síst af öllu þjóðinni sem farið er fyrir.

Það var komið mál á að endurnýja í forystuna í landsmálunum og það gerði þjóðin eftir að vinstrigræna- framsóknar- íhaldsstjórnin sprakk á limminu og boðaði blessunarlega til vetrarkosninga í stað þess að bíða eftir vorinu!

Það er búið að vera vor í lofti í stjórnmálum íslensku þjóðarinnar eftir það, þó ekki sé hægt að neita því að ýmislegt mætti vera öðruvísi og dapurlegt er hvernig haldið er áfram að ausa peningum þjóðarinnar í svokölluð ,,stjórnvöld“ í Úkraínu. Stjórnvöld sem búin eru að steypa þjóð sinni í glötun með mikilmennsku æði, sem ekki er innistæða fyrir.

,,Upplýst“ var í fréttum gærdagsins að það hefði verið að undirlagi þeirra afla sem gasleiðslurnar miklu voru sprengdar og ýmis annar ,,sómi“ hefur verið rakin til þeirra ógæfuafla, afla sem bæði fyrrverandi ríkisstjórn og núverandi, hafa ausið í peningum íslenskrar þjóðar, til einskis.

Þá var nú björgulegra það sem áður var gert að senda fólkinu prjónles inn í austur- evrópskan vetur, en það var ekki talið nóg og því var boðið upp á hopp og hí og lúxusbíla, í Hörpu og á Þingvöllum svo tvö dæmi séu tekin.

Við skulum vona að núverandi ríkisstjórn nái áttum í utanríkismálunum og haldi áfram að taka til í landsmálunum, því ekki veitir af að taka þar til hendinni, eftir það sem á undan var gengið.Dagurinn í dag og upprifjun

Það er fátt nýtt undir Sólinni

  En þessa dagana er það væntanlegur ,,sólmyrkvi“ sem heldur mönnum uppteknum. Trump er sem horfinn af sviðinu, Zelensky líka og við vitum a...