UFO og RUV

 Ruvarar eru talsvert uppteknir af fljúgandi furðuhlutum þennan daginn.

Þeir birta mynd af einum slíkum grip og segja hana vera komna frá varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og að hún sé tæpra 80 ára gömul.

Eins og sjá má er hluturinn hinn merkilegasti!

Mulder og Skully voru ekki komin á sviðið þegar myndatakan fór fram, þau komu seinna og skemmtu aðdáendum sínum m.a. í íslensku sjónvarpi allra landsmanna.

Ritari gleymir því ekki hve gaman hann hafði af þessum ævintýrum og gætti þess vel að missa ekki af nokkrum þætti.

Vídeóið var ekki komið til sögunnar, það gerðist seinna, en hefði það verið til staðar á heimilinu hefði maður getað tekið þættina upp, til að gefa bandarískum forsetanefnum og efnum í tækifærisgjöf ... og Miðflokksmönnunum íslensku, svo þeir hefðu eitthvað til að hugsa um.

Biden hinn illa áttaði, eltist við svipuð fyrirbrigði sem reyndust ýmist vera hugarfóstur rugludalla eða loftbelgir sem ærslafullir strákar og stelpur höfðu látið svífa á loft.

Geimverur fundust engar, Xi leiddi ruglið hjá sér og Putin færði riddara til um einn leik og amrískir guttar skemmtu sér konunglega í konungslausu landi!

Myndin sem hér fylgir mun áður hafa verið trúnaðarmál, en nú er kominn Trump og ekkert slíkt trúnaðar-eitthvað og bull lengur til staðar og þvaðrið er í heiðri haft og við förum eftir því!  

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

UFO og RUV

  Ruvarar eru talsvert uppteknir af fljúgandi furðuhlutum þennan daginn. Þeir birta mynd af einum slíkum grip og segja hana vera komna...