Flutningaskip sökk í Miðjarðarhafi en hvað var það að flytja?

 The Guardian segir frá skipi sem  var á leið til Norður Kóreu en sökk í Miðjarðarhafi og grunur er um að hafi verið að flytja kjarnorkubúnað frá Rússlandi. Skipið hét ,,Stóri björn" og myndin sem hér fylgir var tekin þegar það fór eitt sinn um Bosporus.

Rússneska flutningaskipið var sagt vera á leið frá St. Pétursborg til Vladivostok þegar það sökk við strönd Spánar 23. desember 2024.

,,Ursa Major var 142 metra langt, rússneskt skip í eigu ríkistengda Oboronlogistics-fyrirtækisins og var á leið frá St. Pétursborg til Vladivostok þegar það sökk 62 sjómílur undan strönd Murcia rétt fyrir miðnætti 23. desember 2024.

Ellefu klukkustundum áður hafði spænska sjóbjörgunar- og öryggisþjónustan, Sasemar, sent þyrlu, björgunarbát og dráttarbát til Ursa Major, sem sent hafði frá sér neyðarkall klukkan 12:53.

Önnur skip á svæðinu tóku eftir því að skipið, sem hafði hægt verulega á sér síðustu 24 klukkustundirnar, hallaði mikið og sáu menn að áhöfnin yfirgaf skipið. Áhöfnin sagði björgunarmönnunum að þrjár sprengingar hefðu orðið í vélarrými þess."

Það var slæmt að það sökk en verra er, að varningurinn sem er um borð gæti verið hættulegur umhverfinu, því líkur eru á að hann sé geislavirkur.

Ástæða þess að skipið sökk mun vera að fyrrnefndar sprengingar urðu um borð hafi gert gat á skipið og að sjór hafi streymt inn í það.

Allt er þetta orðið og ekkert er hægt að gera til að breyta því.

Sé það rétt að frá því geti stafað geislavirkni þá er það alvarlegt mál sem taka þarf á með öllum þeim ráðum sem tiltæk eru.

Upplýsingar um hvað það sé sem skipið var að flytja og hvort af því geti stafað hætta ættu að liggja fyrir í Rússlandi og eftir þeim upplýsingum verður að ganga.

Hvort þær liggja á lausu og fást vandræðalaust, veit sá sem þetta párar ekkert um, en brýnt er að allt verði gert sem unnt er til að ekki stafi alvarleg mengun frá flakinu.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Flutningaskip sökk í Miðjarðarhafi en hvað var það að flytja?

  The Guardian segir frá skipi sem  var á leið til Norður Kóreu en sökk í Miðjarðarhafi og grunur er um að hafi verið að flytja kjarnorkubú...