Gott er að hafa ,,borð fyrir báru"

 

,,Zelensky segir“ og ófriðurinn í heiminum

Fastir liðir eins og venjulega og Morgunblaðið segir frá því að verið sé að ræða saman og fyrst svo langt er komið er trúlega líka verið að hugsa.

Úrklippa úr Morgunblaðinu

Ritari bregður sér af bæ til að sleikja sólina, njóta blíðunnar, góðs matar og almennra huggulegheita og kemur svo heim og kemst þá að því, að fátt er breytt í heimsmálunum og fyrir því höfum ekki ómerkari miðil en BBC.COM.

Þar á bæ er heimildin sögð vera Zelensky nokkur, sem við munum m.a. eftir á Þingvöllum í boði burtsofnaðrar ríkisstjórnar.

Þær eru orðnar æði margar fréttirnar sem byrja á ,,Zelensky segir“ og sannleikurinn er sá að maðurinn segir eitt og annað og það svo margt, að það er að æra óstöðugan að reyna að festa hönd á því öllu sem frá honum hefur borist.

En hvað sagði maðurinn? Jú hann sagði að bandamenn Úkraínu hafi farið fram á að Úkraínar héldu aftur af sér í árásum á rússneska orkuinnviði.

,,Óljóst er hvaða lönd hann gæti hafa átt við en Kína og Indland eru enn mjög háð rússneskri olíu og ESB löndin rússnesku gasi“, segir í fréttinni og ættu það svo sem ekki að vera ný tíðindi.

Rússland er orkuríkt land og muna má, að það þótti gott að geta snúið sér þangað þegar ,,vestrænir“ vildarvinir ætluðu að sjá til þess að Ísland fengi ekki olíu í gömlu stríði um þorska og aðra fiska.

Það er hægt að stríða um allt mögulegt og fiskurinn í sjónum er eitt af því eins og dæmin sanna.

Við munum líka þegar vestrænir ,,vinir“ Íslands ætluðu að olíusvelta íslenska þjóð, að þá þótti gott að snúa sér til Rússlands sem þá hét reyndar Sovétríkin, CCCP, USSR eða hvað það sem menn helst vilja nota.

Olían var góð og breyttist ekki í vaxköggul þegar kólnaði í veðri og ekki þótti verra að Ísland náði á endanum yfirráðum yfir fiskimiðum sínum, eða a.m.k. þangað til bestu vinum aðal, dettur í hug að þá langi í fisk án þess að hann sé veiddur af íslenskum sjómönnum.

Þeir hafa sýnt það áður og geta gert það aftur, bara ef það hentar þeim.

Ritari hefur grun um að olían rússneska, hafi verið geymd í tönkum sem staðsettir voru Hvalfirði, enda gerðist þetta allt á þeim tímum þegar menn voru ekki búnir að finna það út, að besta af öllu væri að varðveita eldfimt eldsneyti í Örfisey, væntanlega vegna þess hve yfirmáta heppilegt það væri að flytja olíu í tankbílum í gegnum endilanga borgina.

Þessi ráðstöfun hefur verið gagnrýnd, en hummarar þjóðarinnar hafa hummað fjasið fram af sér eins og þeirra er vani.

Við vitum að vinur er sá sem í raun reynist og við þurfum ekki að telja okkur trú um eitthvað annað.

Gott er að hafa ,,borð fyrir báru"

  ,,Zelensky segir“ og ófriðurinn í heiminum Apr 6, 2026 Óflokkað Fastir liðir eins og venjulega og Morgunblaðið segir frá því að verið sé a...