Ábyrgð og athafnagleði

 

Athafnagleði og ábyrgð

Við höfum getað fylgst með áhuga Trumps og athafnasemi hans, í því sem kalla vilja til að stækka Bandaríkin og við bíðum spennt eftir því, hvaða land hann hyggst leggja undir Bandaríkin næst.

Hann byrjaði smátt en sækir í sig veðrið með hverjum deginum og við vitum alls ekki hvað kemur næst og ritara grunar að hann viti það ekki sjálfur.

Teikningarnar koma víða að.

Teiknarar fjölmiðlanna okkar, hafa úr nógu að moða og hver myndin tekur við af annarri en sannleikurinn er sá, að betra væri að maðurinn hefði hægt um sig og gerði sér far um að umgangast heimsbyggðina af, þó ekki væri nema örlítilli virðingu.

Við munum þá tíma þegar forsetar Bandaríkjanna voru ábyrgðarfullir menn sem gengu um heiminn af virðingu og við vonum að þeir tímar komi aftur.

,,Hugsaður fyrst og talaðu svo“ er gott heilræði sem margir munu kannast við og að mati ritara er það í fullu gildi ennþá, þó ýmsar blikur séu á lofti.

Við lifum í voninni um að það komi betri tímar með blóm og frið, eða a.m.k. friðarvilja, sem verði hafður í hávegum í stað þess hástemmda gaspurs sem nú ræður ríkjum í vestri og víðar.

,,Hugsa fyrst og tala svo“, er gott heilræði sem mætti fara oftar eftir og gildir það jafnt um þann sem þetta ritar og hina sem telja sig ráða yfir heiminum og það þó þeir hafi eingöngu verið kosnir til embættis í sínu heimalandi.

Að gera það sem ég get, vegna þess að ég get það!

 

Horft yfir sviðið?

Hann starfar eftir reglunni sem er ,,ég geri það af því ég get það“, rykkir sig og hnykkir, reigir sig og skælir og við vitum alls ekki, hverju hann tekur upp á næst.

Lýðræði í auðræðisríki virkar ekki sérlega vel, en virkar þó að einhverju leyti og getur virkað vel ef út í að er farið.

,,Það veldur hver á heldur“ eins og þar stendur og við höfum séð nokkra ágætismenn og vandaða fara með forsetaembættið í Bandaríkjunum.

Núverandi forseti er ekki einn af þeim og við vitum aldrei með neinni vissu, upp á hverju hann tekur næst.

Hvert ,,heilkennið“ er veit ritari ekki, en íslenskt máltæki segir að ,,margur verði af aurum api“.

Um þá ágætu frændur okkar manna viljum við ekki fara illum orðum og því staðnæmumst við þar í þeim samanburði og segjum ekki meira.

Apar eru frændur okkar manna en við myndum seint kjósa þá til æðstu embætta í mannheimum.

Núverandi forseti Bandaríkjanna er ekki eini stjórnmálamaðurinn sem farið hefur yfir strikið, fjarri því.

Upptalning á mönnum sem farið hafa með æðstu völd en ekki reynst færir um að valda hlutverkinu þegar á hólminn var komið, gæti orðið löng og ritari hættir sér ekki út í að gera tæmandi upptalningu á furðufuglum allskonar sem farið hafa með æðstu völd meðal þjóða.

,,Ég geri það af því að ég get það“ virðist vera leiðarstefið og það er ekki góð leiðsögn fyrir þann sem fer með æðsta vald eins voldugasta ríkis veraldar.

Vafalaust verður einfalt að ná Grænlandi (þeir eru þar nú þegar) og litla Ísland verður ekki Þrándur í götu með sinn varnarsamning við Bandaríkin.

Við bíðum og sjáum til um hvað verður næst og vonumst til að ekki fari illa og að sá sem á heldur, nái áttum áður en heimsfriðurinn, – sem sjaldnast er alveg ,,heimsfriður“ -, fer veg allrar veraldar.

Nonni og ég

 


Ritari hitti Nonna í gær og líkt og svo oft áður þegar við félagarnir hittumst, var tekið spjall um lífsins gang og nauðsynjar og náttúlega stöðunnar í íslenskri pólitík.

Nonni hugsar talsvert um landsmálapólitíkina og það gerir ritari reyndar líka sem vonlegt er og þeim báðum líst ekki nema mátulega vel á ýmislegt sem er að gerast á hinum pólitíka vettvangi.

Ritari heldur að Nonni sakni þess sem var, en hvort svo er, veit hann ekki alveg með vissu.

Eitt af því sem Nonni nefndi, var að til stæði að breyta skattheimtu af bílaflota landsmanna á þann veg, að tekið yrði upp ,,kílómetra" gjald, sem væntanlega þýðir það að gjald verði greitt í ríkissjóð fyrir hvern kílómetra sem ekinn er eftir vegum og vegleysum landsins.

Í staðinn verður tekinn út úr eldsneytisverði skattur sem þjónað hefur sama hlutverki.

Þegar hingað var komið kom babb í bát, því þeir sem eru svo ógæfusamir (líkt og ritari), að vera nýbúnir að kaupa olíu og/eða bensín á sinn tank, lenda þá í því að greiða tvöfalt veggjald, þar til olían eða bensínið er búið.

Því er það, að rétt er að hvetja alla, þar sem svona stendur á, að aka sem mest þeir geta yfir hátíðarnar til að koma í veg fyrir að þeir lendi í þessari ósvinnu.

Hvort ritari nennir að standa í því er hreint ekki víst, en ólán hans er talsvert, því hann er nýbúinn að taka olíu á sinn bíl og að auki bensín á frúarbílinn!

Eins og af þessu sést er málið grafalvarlegt, því ,,tvísköttun" þykir ekki góð.

Ritari er búinn að hugsa málið vel og vandlega, og niðurstaðan varð sú, að best væri að sjúga olíuna af dísilbílnum og bensínið af bensínbílnum og geyma það síðan á öruggum stað með þungaskatti, virðisaukaskatti og skattaskatti, þar til kerfinu verður breytt aftur í fyrra horf.

Sem við vitum, að verður þegar Abú Dabí stjórnin verður kosin til valda!

Vandi fylgir öllu sem gert er og það er geymslustaðurinn sem vefst fyrir ritara, því eitt sinn ,,átti" hann bankahólf til að geyma í verðmæti sem ekki máttu glatast, en nú er svo komið að bankinn er búinn að ,,taka" hólfið, svo ekki verður eldsneytið geymt þar!

Því er það, að ritari leggur til að búinn verði til eldsneytisþungaskattsbanki fyrir alla Jóna og Gunnur þessa lands, til að þau geti geymt sitt eldsneyti á öruggan og snyrtilegan hátt.

Þegar sá banki verður síðan lagður niður í hagræðingarskyni, eða einhverju öðru skyni, vegna skynsemi þeirra sem með völd og stjórn fara: að þá verði hólfið sent í heilu lagi til eldsneytisnotenda, með bensíninu og olíunni.

Hvernig það fer síðan í vinstrigræningja og aðra græningja þessa lands, þ.e. þá sem ýmist burtsofnuðu í vetrarkosningum snillinganna sem nú verma stjórnarandstöðusæti þingsins okkar góða, eða hanga þar inni við slæman ,,herbergiskost" verður ekkert sagt um að sinni.

Um áramót

 Það kennir ýmissa grasa á þessum síðasta degi ársins og í The Guardian er svodæmi sé tekið fjallað um flug árásardróna sem komu(?) frá Úkraínu og var beint að bústað Putins forsætisráðherra Rússlands.

Hvort flygildin flugu, vita þeir sem vilja vita og gera má ráð fyrir að fylgst sé með hverri slíkri hreifingu með gerfihnöttum.

Hér á ísa köldu landi er allt við sinn vanagang, Inga Sæland er þriggja ráðherra maki og fer létt með og upp vakna spurning um hvort þörf sé fyrir karlana?

Til stendur að bjóða út dýpkun Landeyjarhafnar skv. því sem fram kemur í Morgunblaðinu, en eins og kunnugt er þá er það óþrjótandi verkefni, þannig að eftir nokkru er að slægjast.

Mynd úr Morgunblaðinu

Landeyjahöfn var byggð í bráðræði og þjónar litlum tilgangi öðrum en þeim að gera ferðalagið til Vestmannaeyja að lengir ökuferð, því í stað þess að aka til Þorlákshafnar eins og áður var gert, verður bíltúrinn fyrir flesta mun lengri.

Ritari þekkir báða ferðamáta, býr ekki í Vestmannaeyjum og heldur ekki í Reykjavík, en væri hann Vestmanneyingur myndi hann þyggja það með þökkum að sigla til Þorlákshafnar líkt og gert var og aka síðan þaðan til höfuðborgarsvæðisins eða hvert annað sem hann vildi fara.

Fyrrverandi ráðherra Framsóknarflokksins býr yfir töfralausn á ferðavanda íbúa Vestmannaeyja og okkar hinna sem þangað vilja komast ofan af landi og nú er búið að endurvekja hugmyndir framsóknarmannsins, en í stað töfrabræðsluborsins mikilfenglega, skal nú nota gamaldags aðferðir við gangagerðina.

Við gerum ráð fyrir að göngin hugsanlegu verði milli ,,lands og eyja", en það er komið babb í bát því jörðin er með líflegasta móti þessar vikurnar, en við gerum ráð fyrir að framsóknarmennirnir hugum stóru kunni ráð við því eins og öðru og geti a.m.k. kallað til hinn bandaríska bergbræðslumeistara til að leysa málið.

Olían og grýlan

Miðillinn CNN.COM fjallar um olíusamning Bandaríkjanna og Indlands og ljóst er að málið er ekki eins einfalt og trumpistar vilja vera láta....