CNN greinir frá því að við getum átt á heimsókn, en það dálítið langt þangað til.
Teikning listamanns, sem fylgir umfjöllun fréttastofunnar, sýnir algengt smástirni. NASA leggur áherslu á að greina ógn af smástirnum sem gætu valdið skaða á Jörðinni og gerir það í þeim tilgangi að hægt verði að bregðast við þeim í tíma.
Það eru allskonar hnullungar á sveimi í himingeimnum og um þá og hættuna sem Jörðinni gæti stafað af þeim, er umfjöllunarefni CNN.
Þeir gætu hugsanlega ef til vill og kannski, eins og maðurinn sagði, valdið usla á hnettinum sem við lifum á og dæmi sanna, að það hefur gerst og það sem gerst hefur áður getur gerst aftur, segir einhverstaðar.
Allt er í heiminum hverfult segir einhverstaðar og við getum ekki gengið út frá því að Jörðin okkar sé og verði til eilífðarnóns.
Risaeðlurnar hurfu eins og dögg fyrir sólu, í jarðsögulegu tilliti og það sem hefur gerst áður getur gerst aftur eins og áður sagði.
Við vonum náttúrulega að ekkert þvílíkt gerist og það sem verra er að við getum ekki varist vígahnöttum af neinu öryggi en það má reyna og gera má ráð fyrir, að það verði gert ef þörf verður.
Biden lét skjóta niður kínverskan loftbelg, eins og margir muna en hvort það hefur verið æfing fyrir eitthvað meira vitum við ekki!
Svo virðist sem lítið hafi breyst og við séum á svipuðum slóðum og áður var en maðurinn sem hér var vitnað til, er ekki lengur ofar moldu og þarf því væntanlega ekki lengur að hafa áhyggjur af því sem er að gerast í alþjóðamálunum.
Þar er fyrst til að taka, að ,,vinirnir“ tveir sem við sjáum hér að ofan eru ekki vinir í raun og við höfum séð mörg dæmi þar um og það ekki, þó sá til vinstri hafi fengið að setjast upp í traktor hjá þeim sem er ti hægri.
Kínverjar eru með seiglu sinni að skjóta Bandaríkjunum ref fyrir rass á mörgum sviðum og bandarískir ráðamenn, vaxa ekki af stolti yfir seiglu sinni og hæfni vísindamanna sinna, heldur hafa áhyggjur af fjandvinum sínum í Asíu.
Það hefur löngum verið svo að Bandaríkin hafa viljað ríkja og drottna yfir heimsbyggðinni en það hefur tekist misjafnlega hjá þeim að ná því fram.
Það er Panamaskurðurinn og ,,útþensla“ Kínverja á því svæði sem er að trufla, ergja og pirra hina vestrænu vini okkar þessa dagana, vikurnar og mánuðina.
Það eru ekki lengur fljúgandi furðuhlutir sem eru vandamálið og vel getur verið, að það sé vegna þess að Kínverjar hafi orðið betra vald á veðurbelgjum sínum!
Biden lét skjóta slíkar blöðrur niður og þegar þær voru horfnar af himni tók annað og ekki betra við, því bandarísk ungmenni léku sér með dróna og það var, eða gat verið kínversk hætta!
Trump ætlar að stilla til friðar í Úkraínu og mun vafalaust gera, því eins og við vitum standa menn alltaf við kosningaloforð sín en þegar hann verður búinn að því, þarf hann að snúa sér að öðru.
Það hefur nefnilega komið í ljós að Putin hefur tekið upp bandaríska siði, þ.e. útþenslustefnu og vill koma sér upp herstöð í Súdan.
Hvernig honum hefur dottið þessi firra í hug og hvort hann veit yfirleitt af þessu, er ekki fyllilega vitað en við gerum ráð fyrir að útvaldir kremlarlogar – eða hvað sem það er nú kallað – finni út úr þessu en vel getur verið, að Putin sé að stefna að því að leggja undir sig heiminn að bandarískum hætti og þeir ættu að þekkja einkennin.
Þegar svona er komið í heimspólitikinni er komið að því að íslenskar utanríkisfígúrur taki höndum saman – enda voru þær einu sinni í sama flokki – , og búi til íslenska utanríkispólitík sem miði að því að breyta landinu okkar góða í heimsveldi.
Þær gætu t.d. fengið vin sinn Zelensky í félag við sig og í til þess gert uppistand, sem öllu öðru yrði betra og þá myndi Eyjólfur, þ.e. Zelensky, hressast kætast og eflast.
Það hefur sýnt sig að þegar Mörlandar taka upp á arma sína fólk sem líður mátulega vel heima hjá sér og er t.d. þjakað af hlandspennu, þá jafnar það sig snarlega, samanber rússnesku dömurnar sem K.K.R.G. flutti inn en sem þornuðu snarlega upp eftir hingaðkomu sína.
Við lifum á undarlegum tímum þar sem því er líkast, sem vitstola menn ráði ríkjum. Setninguna hér á undan er því miður hægt að yfirfæra til ýmsra tíma í mannkynssögunni en það er eitthvað í því sem er að gerast núna sem keyrir um þverbak og gerir bloggara næstum orðlausan. Yfir eitt slíkt dæmi er farið í nokkuð langri grein í miðlinum CNN.COM þar sem farið er yfir stöðu mála gagnvart fólkinu, sem hrakið hefur verið af landi sínu allt frá árinu 1948.
Mynd úr grein CNN
Óreiðukenndur fréttaflutningur hefur borist okkur til eyrna og fyrir augu og staða mála er sú, að framið hefur verið þjóðarmorð á íbúum í Gaza og það er forseti ,,lýðræðisríkisins“ Bandaríkjanna sem grípur boltann á lofti og lýsir því yfir, að halda skuli eyðingunni áfram og breyta landinu í einhverskonar sólarströnd fyrir ríkt vesturlandafólk.
Það fólk á samkvæmt mati þess ágæta manns, að njóta ávaxtannna af yfirgangi Ísraels með því að liggja þar í makindum og sóla sig á ströndinni, dreypandi á ljúfum drykkjum og veltandi sér í leti.
Íbúarnir sem þar eru, eiga einfaldlega að fara burtu og koma sér annað og ef einhver hefur haldið að forsetinn sé að bjóða því til Bandaríkjanna, þá veður sá í villu, því höfðingsskapurinn nær ekki svo langt, það eru aðrir sem eiga að sitja uppi með vandann.
Svo uppsker hver sem hann sáir, segir í íslensku orðtaki og Ísraelar eru búnir að sá hatri af miklum móð að undanförnu og svo er að sjá sem þeir séu ekki mjög móðir orðnir, enda vel studdir af gyðingaríkinu stóra og öfluga í Ameríku.
Það er einmitt það ríki, sem ætlar að breyta auðninni sem nú er þakin rústum, í sólarströnd og við gerum ráð fyrir að forsetinn trompaði, hugsi sér að vígja herlegheitin þegar búið er að hreinsa til og byggja upp að nýju.
Það er ekki ofsagt að veröldin sé skrítin þessa dagana. Trump tók við af manni sem ráfaði um af veikum mætti og var augljóslega orðinn hrumur og lúinn.
Fram fóru kosningar og enginn álitlegur kostur blasti við kjósendum til að kjósa í kosningunum, en ef til vill í von um að Trump stæði við stóru orðin og kæmi á friði í stríði vesturlanda við Rússa, vann hann kosningarnar.
Lítið hefur gerst í því máli a.m.k. enn sem komið er.
Við bíðum og vonum að Eyjólfur hressist og að Trump hinn trompaði, snúi sé að því, að gera það góða sem hann lofaði, varðandi það að stilla til friðar milli fyrrnefndra landa og láti af því, að upplýsa okkur um aðrar undarlegar draumfarir sínar.
,,Ætli ekki sé hægt að fá pillur við þessu“, sagði aldraður við ritara og fleiri, þegar honum blöskraði á öldinni sem leið.
Miklar framfarir hafa orðið í lyfjagerð síðan þá og ef til vill getur Trump fengið eitthvað við þessu!
Samstarfið í höfuðborginni sem entist ekki eftir að það var komið í hendur Framsóknar.
Það sem sumir reiknuðu með að gæti gerst, hefur gerst.
Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri, sýndi hvað í hann er spunnið þann tíma sem hann hélt utan um meirihlutasamstarfið í Reykjavík. Sýndi að hann réði við verkefnið og að hægt væri að fá fólk úr ýmsum áttum til að vinna saman.
Eiríkur Bergmannstjórnmálafræðingur fer yfir atburðina í borgarstjórn í umfjöllun á Vísi.
Það þarf sterk bein til að halda saman meirihluta ólíkra stjórnmálaafla og Dagur B. Eggertsson sýndi með störfum sínum að hann býr yfir hæfileikum til að halda mönnum saman, greina kjarnann frá hisminu og láta heildarhagsmuni ganga fyrir sérhagsmunum.
Framsóknarmaðurinn sem tók við, virðist ekki ráða við verkefnið og því fór svo að stjórnarmeirihlutinn í Reykjavíkurborg er sprunginn.
Unnið að því að koma saman nýjum meirihluta sem skv. nýjustu fréttum gengur ekki vel.
Sagt er frá því að fátið sé slíkt að komið hafi fyrir, að menn hafi ekki getað komið sér saman um hve margir kjörnir fulltrúar sitji í borgarstjórninni og þ.a.l. enn síður um hve marga kjörna fulltrúa þurfi til að mynda meirihluta!
Ritari hefur fylgst með Reykjavík síðan hann var ungmenni og annan eins vandræðagang varðandi stjórn borgarinnar og nú er minnist hann ekki að hafa orðið vitni að, nema ef vera kynni í tíð borgarstjóra, sem eitt sinn var í boði Sjálfstæðisflokksins og að hann minnir, eftir að Jón nokkur Gnarr steig af sviðinu.
Það er reyndar ekki við því að búast að flokkur sem í grunninn er flokkur sveitanna og þess framsóknar- íhalds, sem ríkt hefur í málefnum þeirra, hafi grunnfærni til að stjórna borgarsamfélagi.
Um langt skeið var það svo, að Sjálfstæðisflokkurinn stjórnaði Reykjavík og sú ,,stjórn” gekk aðallega út á að mylja undir ,,rétta” og úthluta t.d. lóðum til þeirra sem veifað gátuflokksaðild í Flokknum.
Hverfi hér og annað þar, var aðferðin og eins og komið hefur fram hjá fyrrverandi fulltrúum Flokksins en aðalatriðið var þó það, að hafa skýrteini í Sjálfstæðisflokknum við hendina, þegar sótt var um lóðir.
Því hefur verið breytt og hefur það ekki farið fram hjá þeim sem fylgst hafa með hve það hefur farið í taugarnar á Sjálfstæðismönnum.
Því það sem kallað hefur verið ,,þétting byggðar” hentar þeim ekki, enda augljóslega hagkvæm og skynsamleg stefna!
Hvernig það getur verið eftirsóknarvert og hagkvæmt að byggja eitt hverfi hér og annað þar er ekki augljóst, enda fór það svo að Sjálfstæðismennirnir í höll sinni við Bolholt, sáu hagkvæmnina í því, að byggja meira á lóð sinni og þétta með því byggðina!
Svona geta bestu menn snúið við blaðinu þegar þeim hentar, eða eins og segir í slagaranum ,,bara ef það hentar mér”.
Það kemur í hlut nýrra vanda að sópa upp framsóknar- klúðrið og verður fróðlegt að fylgjast með hvernig það gengur, klúður sem er tilkomið vegna trjágróðurs, sem þarf að fjarlægja.
Vegna flugvallarómyndarinnar í Vatnsmýrinni!
Við viljum, væntanlega flest, höfuðborg þjóðarinnar all það besta.
Það gerði borgarstjórinn sem var næst á undan þeim Einari, sem nú stefnir Framsóknarflokknum í enn meiri einsemd en áður var.
Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með því hvernig þróunin hefur verið í Bandaríkjunum að undanförnu, en ekki má samt svo, að ríkjabandalagið hafi verið til sérstakrar fyrirmyndar í fortíðinni.
Gaza,mynd af vef CNN
Hinn nýi forseti Bandaríkjanna slær um sig og slær hinu og þessu fram og við vitum ekki hvort hann er að koma eða fara en hvað sem því líður, þá gegnir hann einu valdamesta embætti sem um getur og því skiptir það máli hvert hann fer í orðræðu sinni og verkum.
Hann hyggst stækka Bandaríkin með því að bæta við þau Gaza og gera landsvæðið að baðströnd í eigu Bandaríkjanna.
Gaza er nokkuð langt frá Bandaríkjunum en það skiptir ekki máli í þessu samhengi, því eins og dæmin sanna má sigrast á vegalengdum og það hafa Bandaríkin gert í yfirgangi sínum í heiminum um langan tíma.
Afrekin eru nokkur, ef afrek skildi kalla og verða ekki öll talin upp hér en minna má á, að þau eru fyrsta og eina ríkið sem varpað hefur kjarnorkusprengjum á aðra þjóð, þjóð sem sýnt hafði ótrúlegan yfirgang og ósvífni, en fyrr mátti nú fyrr vera!
Þau hafa skilið eftir spor sín til dæmis í Víetnam, Írak og Afganistan og víðar og lagað þar til með sínum sérstaka hætti en stundum gefist upp svo sem Vietnam er gott dæmi þar um, þar sem vart verður enn gengið um landið fyrir huldum jarðsprengjum, þó unnið hafi verið að því að fjarlægja þær í mörg ár.
Vinnan sú hefur kostað lemstranir og mannslíf en hvað varðar þá sem þær grófu um það?
Og nú stendur til að koma upp baðströnd á Gaza til að ríkt fólk héðan og þaðan að úr heiminum geti notið lífsins!
Til þess að það yrði unnt, voru tugir þúsunda drepnar af gyðingaþjóðinni í eins skonar verktöku fyrir ,,lýðræðisríkið" sem svo er kallað, þó réttara væri að kenna það við grímulaust auðræði.
Auðvitað býr fjöldinn allur af ágætisfólki í þessu forysturíki lýðræðisins, sem það er oft kallað, þó réttara væri að kenna það við auðræði en að því sögðu er alls ekki allt svart vestur þar, þó það nú væri!
Ritari hefur verið svo heppinn að hafa ekki reynt nema gott eitt af þeim litlu kynnum sem hann hefur haft af fólki í þessu ríkjasambandi og átti þaðan mágkonu um nokkurra ára skeið eða þar til hún lést langt um aldur fram. Blessuð sé minning hennar.
Það eru vissulega nokkur handtök sem þarf til að ,,ameríski draumurinn” geti orðið að veruleika á Gaza, en það má sigrast á því með stórvirkum tækjum; grafa minningarnar, rústirnar og líkamsleifarnar og byggja síðan upp glæsihótel fyrir efnað fólk!
Segir Trump, maðurinn sem segir svo margt.
Það getur verið notalegt að dvelja við Miðjarðarhafið eins og við þekkjum mörg og Trump vill af gæsku sinni(!), sjá til þess að við getum notið verunnar þar sem best.
Allt er þetta af góðum hug sett fram en gallinn er, að sá sem það gerir hefur litla stjórn á sjálfum sér bæði hvað varðar líkamstjáningu og í orðræðu, fyrir nú utan það, að hann veður áfram bæði í orðum og látæði sem líkist helst manni sem búinn er að missa stjórn á sjálfum sér.
Hlutunum er slegið fram og síðan þarf ekki að ræða það meir!
Forseti Bandaríkjanna bauð Netanyahu í heimsókn og þetta er niðurstaðan úr þeim handaböndum og spjalli sem á milli þeirra fór:
Að Gaza skal verða baðströnd fyrir ríkt fólk og fátæklingarnir sem þar eru og þaðan eru búnir að forða sér skulu koma sér eitthvað annað.
Kosningar fóru fram í Bandaríkjunum fyrir skömmu eins og við vitum og síðan hefur þeim verið stjórnað með tilskipunum, upphrópunum og yfirlýsingunum.
Eins og ætíð lifum við í voninni um að Eyjólfur, sem í þessu tilfelli er Bandaríkin, hressist og breytist til hins betra, líti yfir farinn veg og haldi sig við það sem hann hefur vel gert og læri af hinu.
Þeir munu sitja við fætur húsbónda síns og dilla skottinu segir Putin og við vitum varla hverju við eigum að trúa. Við getum eins trúað því eins og hverju öðru á þessum undarlegu tímum.
Það gerðist á dögunum að nýútsprunginn utanríkisráðherra Íslands, brá sér í heimsókn til einkavinar íslenskra stjórnmálamanna Zelenskys til að færa honum aur, ekki úr flokkssjóði Viðreisnar, heldur úr almannasjóði íslensku þjóðarinnar.
Fetað var þar rækilega í fótspor utanríkisráðherrans sem áður hafði verið og lítið er séð eftir, nema náttúrulega af Sjálfstæðismönnum, sem sjá á eftir mörgu þessa dagana; sjá eftir herbergi sínu, sjá eftir að hafa verið í innilegu stjórnarsamstarfi við Vinstri græna, sem líklega sjá mest eftir því að hafa hagað sér eins og kjánar og þurrkast út af þingi.
Framsóknarliðið sér eftir því líka sem von er en það gildir í pólitík að betra er að vanda til vals á vinum!
Nú er sem vor sé í lofti og að nýir pólitískir vendir ætli að sópa vel og við lifum í voninni um að það sé rétt.
Smámálin eru frá og t.d. fær Sjálfstæðisflokkurinn að vera í herberginu sínu - sem gárungar sumir kalla ,,herbirgi" nú orðið.
Hvað sem því líður, þá vonum við að þeir geti sáttir hírst í birgi sínu og notið þess, að horfa á hinar ófæranlegu myndir sem þar eru á veggjum uppi.
Pólitíkin er skrýtin tík, sagði einhver en hvað sem því líður, skulum við vona að engar veggjalýs komi til með að angra pólitíkusana heimakæru.
Í fjölmiðlum hefur verið greint frá því að Sjálfstæðisflokkurinn eigi voða mikið bágt og eins og við vitum þá má rekja vanlíðanina til slæmrar útkomu flokksins í síðustu kosningum.
Herbergið og flokkurinn.
Sjálfstæðisflokkurinn tapaði sem kunnugt er miklu fylgi í vetrarkosningunum sem fram fóru til Alþingis og tapi geta fylgt eftirköst.
Eftirköstin hafa birst með ýmsu móti að undanförnu og enn ein hlið er komin upp á málinu.
Og eftirköst greinilega verið slæm!
Við höfum séð ýmis dæmi um þetta að undanförnu, eins og t.d. framlagamálið, þar sem tekist hefur verið á um greiðslur.
Ekki hárgreiðslur, heldur greiðslur ríkisins til stjórnmálaflokka svo þeim gangi betur að standa straum af starfsemi sinni.
Morgunblaðið var duglegt að fjalla um það mál, eða þar til að vindurinn fór skyndilega minnkandi og svo er komið, að lítið er orðið fjallað um málið í málgagni flokksins, nema ef til vill í herberginu stóra með myndunum óhreifanlegu á veggjunum.
Ástæða hins skyndi- minnkaða áhuga reyndist vera að í ljós kom að Sjálfstæðisflokkurinn hafði orðið fyrir því að ,,gleyma” að haka í einhvern reit til að eiga rétt á greiðslunum.
Pínlegt var það og pínlegt er það, en svona er það nú samt og menn verða að taka því sem gerist og það gerðu Sjálfstæðismenn og líkt og gerist þega stungið er gat á blöðru, þá streymir loftið út þar til sami þrýstingur er orðinn utan og innan blöðruveggja.
Eða eitthvað valt og úr því fór allt og síðan er ekki rætt meira um það!
Einhverstaðar verða allir að vera og Sjálfstæðismenn eru eins og kunnugt er íhaldssamir og því verða þeir að fá að vera í sínu gamla herbergi, annars gætu þeir misst haldið.
Hugsum okkur að svo færi að þeir fengju það ekki og það sem myndi gerast þá.
Það sem gæti gerst væri hvorki meira né minna en það, að þeir gætu lent á fundi hjá Samfylkingunni og orðið fyrir vinstra smiti, gerst jafnaðarmenn en ekki ójafnaðar, sem ritari telur reyndar að þeir séu ekki endilega en þó kannski pínu eins og börnin segja!
Ritari hefur kynnst mörgum Sjálfstæðismönnum og ekki reynt þá að því að vera ójafnaðarmenn og jafnvel á köflum hreina jafnaðarmenn.
Framsóknarmenn ættu að vilja sækja fram samkvæmt því sem nafnið segir en þeir geta átt það til að vera afturhvarfsmenn þegar svo ber undir.
Sjálfstæðismenn vilja vera sjálfstæðir a.m.k. stundum en hvort þeir verða sjálfstæðari í réttu herbergi er hreint ekki víst!
Í lokin má svo benda á að myndir má taka niður af veggjum og færa annað þó sjálfstæðar séu!