Við lifum á undarlegum tímum þar sem því er líkast, sem vitstola menn ráði ríkjum. Setninguna hér á undan er því miður hægt að yfirfæra til ýmsra tíma í mannkynssögunni en það er eitthvað í því sem er að gerast núna sem keyrir um þverbak og gerir bloggara næstum orðlausan. Yfir eitt slíkt dæmi er farið í nokkuð langri grein í miðlinum CNN.COM þar sem farið er yfir stöðu mála gagnvart fólkinu, sem hrakið hefur verið af landi sínu allt frá árinu 1948.

Mynd úr grein CNN
Óreiðukenndur fréttaflutningur hefur borist okkur til eyrna og fyrir augu og staða mála er sú, að framið hefur verið þjóðarmorð á íbúum í Gaza og það er forseti ,,lýðræðisríkisins“ Bandaríkjanna sem grípur boltann á lofti og lýsir því yfir, að halda skuli eyðingunni áfram og breyta landinu í einhverskonar sólarströnd fyrir ríkt vesturlandafólk.
Það fólk á samkvæmt mati þess ágæta manns, að njóta ávaxtannna af yfirgangi Ísraels með því að liggja þar í makindum og sóla sig á ströndinni, dreypandi á ljúfum drykkjum og veltandi sér í leti.
Íbúarnir sem þar eru, eiga einfaldlega að fara burtu og koma sér annað og ef einhver hefur haldið að forsetinn sé að bjóða því til Bandaríkjanna, þá veður sá í villu, því höfðingsskapurinn nær ekki svo langt, það eru aðrir sem eiga að sitja uppi með vandann.
Svo uppsker hver sem hann sáir, segir í íslensku orðtaki og Ísraelar eru búnir að sá hatri af miklum móð að undanförnu og svo er að sjá sem þeir séu ekki mjög móðir orðnir, enda vel studdir af gyðingaríkinu stóra og öfluga í Ameríku.
Það er einmitt það ríki, sem ætlar að breyta auðninni sem nú er þakin rústum, í sólarströnd og við gerum ráð fyrir að forsetinn trompaði, hugsi sér að vígja herlegheitin þegar búið er að hreinsa til og byggja upp að nýju.
Það er ekki ofsagt að veröldin sé skrítin þessa dagana. Trump tók við af manni sem ráfaði um af veikum mætti og var augljóslega orðinn hrumur og lúinn.
Fram fóru kosningar og enginn álitlegur kostur blasti við kjósendum til að kjósa í kosningunum, en ef til vill í von um að Trump stæði við stóru orðin og kæmi á friði í stríði vesturlanda við Rússa, vann hann kosningarnar.
Lítið hefur gerst í því máli a.m.k. enn sem komið er.
Við bíðum og vonum að Eyjólfur hressist og að Trump hinn trompaði, snúi sé að því, að gera það góða sem hann lofaði, varðandi það að stilla til friðar milli fyrrnefndra landa og láti af því, að upplýsa okkur um aðrar undarlegar draumfarir sínar.
,,Ætli ekki sé hægt að fá pillur við þessu“, sagði aldraður við ritara og fleiri, þegar honum blöskraði á öldinni sem leið.
Miklar framfarir hafa orðið í lyfjagerð síðan þá og ef til vill getur Trump fengið eitthvað við þessu!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli