Hvers vegna tapa Bandaríkin öllum styrjöldum sínum eftir 1944?
Að eyða hergögnum, til að halda framleiðslunni gangandi
Herkví, almennir borgarar og framlag Íslands
Hnuplað af netinu: Mariopol borgin sem var.
Það er stríð í Evrópu, hörmulegt og nöturlegt, þar sem
takast á grannþjóðir sem í aldanna rás hafa verið ýmist ,,eitt ríki“ á Sovéttímanum,
eða aðskilin líkt og nú. Og ef farið er aftur í aldir hafi landamerki verið
með ýmsu móti.
Í seinni tíð eftir fall og upplausn Sovétríkjanna hafa Rússland og Úkraína verið aðskilin en þó með ógreinilegum landamerkjum þar sem
Donbass er eins og óafgreidd eyja á milli ríkjanna og ekki má gleyma því að
Rússar misstu þolinmæðina og tóku Krímskagann, sem þeir höfðu haft á
einhverskonar leigusamningi sem þá var runninn út.
Sagan segir að þeir hafi sprungið á limminu, þegar óstöðug
stjórnvöld sem þá voru í Úkraínu hafi hótað því að leigja Bandaríkjunum Sevastopol,
hafnarborgina sem Rússar höfðu haft afnot af um árabil.
Nú er skollið á allsherjarstríð milli ríkjanna og best að
hafa á alla fyrirvara varðandi fréttir af því ömurlega stríði
Í frétt íslenska Ríkisútvarpsins í dag 19.4.2022 segir
eftirfarandi:
,,Stjórnvöld í Rússlandi skoruðu í dag á úkraínska hermenn
sem verja borgina Mariupol að leggja niður vopn í dag gegn því að fá að fara
óáreittir úr borginni. Þeir halda til í stálverksmiðju ásamt hundruðum almennra
borgara."
Þeir halda sem sagt til ,,í stálverksmiðju með hundruðumalmennra borgara“, sem þeir geta ekki varið og tæplega nært, svo ekki sé minnst
á aðrar mannlegar þarfir.
Líklegt er að ekki sé um raunverulega hermenn að ræða, því
ætla verður, að raunverulegur her Úkraínu beri hag venjulegra borgara fyrir
brjósti.
Það hafa um langan tíma borist fréttir af því að í landinu
leiki lausum hala sjálfskipaðar bardagasveitir, kenndar við nasisma, sveitir
sem lúti engri stjórn nema sinni eigin ,,hugmyndafræði" og ,,starfi“ utan við lög
og rétt.
Sé það rétt að um nokkra tugi ,,hermanna" af þessu tagi sé
að ræða, ,,hermanna" sem skýli sér bak við nokkur hundruð almennra borgara, þá er þessi
styrjöld vissulega ekki einstök í ógeði sínu, en heldur alls ekki eins og látið
hefur verið í veðri vaka.
Fram hefur komið að Bandaríkin og fleiri lönd og þar á meðal Ísland flytja
vopnabúnað til Úkraínu.
Er það ef til vill svo, að þau morðtól séu handa mannskap af
þessu tagi?
Mönnum sem hafa verið uppvísir að því að misþyrma rússneskum
hermönnum sem þeir hafa ná á vald sitt, á þann hátt að binda þá á höndum og fótum, skjóta þá í hnéskeljarnar
og að því loknu í höfuðið.
Er þetta mannskapurinn sem við vesturlandabúar og þar á
meðal Íslendingar erum að styðja og kallaðir eru hermenn Úkraínu?
Eða er það svo, að her landsins sem íslenska ríkisstjórnin
er að leigja flugvélar til vopnaflutninga til, sé ,,agaður“ með þessum hætti?
Það kemur ekki á óvart að hægra liðið í ríkisstjórn Íslands sé til í að styðja Bandaríkin og NATO í blindni.
Að ,,hernámsandstæðingarnir" í Vinstri grænum hafi forystu fyrir vopnaflutningum til hers af þessu tagi, kemur á óvart.
Ritskoðun og vinátta í milliríkjasamskiptum
Rússafælni (fobia) í nýrri og áður óþekktri mynd er gosin upp og þrífst og dafnar vel eftir að hernaðar- innrás þeirra í Úkraínu hófst.
Það segir sína sögu að nú er æsingurinn komin á það hátt stig að ekki er með öllu tryggt að hægt sé að lesa fréttina sem hér er með í mynd, vegna ritskoðunar á Facebook. Ritskoðunar sem gera má ráð fyrir að sé runnin undan rifjum bandarískra stjórnvalda og ,,heimsvaldasinna" segja sumir.
Var sameiningin til góðs?
Búnaðarþingsfarsinn, eftirpartíið og stríðið.
Í dag er dagurinn í dag, en ekki dagurinn í gær, en samt er
eins og lítið hafi breyst. Formaður Framsóknarflokksins er vinsælt viðfangsefni
sem og reyndar flokkurinn sjálfur og er vandséð hvernig aðrir stjórnmálaflokkar
eigi að geta náð því að toppa umræðuna um hin sérkennilegu lok Búnaðarþings eða
þó heldur eftirpartí þeirrar samkomu.
Eðli stjórnmálaflokka er að þeir vilja vera sem mest í
umræðunni, vilja að eftir þeim sé tekið og um þá fjallað og hafi einhverjum
flokki tekist vel upp þá mun það vera Framsóknarflokkurinn og þó einkum
formaður hans. Þetta er það sem er í fréttum helst þessa dagana og getur fengið
hláturstaugarnar til að kitla dálítið, sem þó er alls ekki sanngjarnt gagnvart
þeim sem fyrir urðu.
Forsaga málsins er að saman kom svokallað Búnaðarþing sem er
samkoma þar sem málefni landbúnaðarins eru tekin fyrir, skoðuð og rædd. Við höldum
að mikill þungi hafi verið í umræðunni og að mikið hafi hvílt á mannskapnum,
því samkomunni lauk með því að stjórnmálaflokkarnir sáu aumur á fundarfólkinu
og buðu í eftirpartí vítt og breitt um Reykjavík.
Hér áður fyrr var haldið hátimbrað fyrirpartí með
fyrirmönnum samfélagsins allt frá forseta þjóðarinnar og niður úr, nú eða öfugt
ef menn vilja heldur hafa það þannig. Það var á tímum þegar Stéttarsamband
bænda, forveri Bændasamtakanna, var ríkt af almannafé og réðist m.a. í byggingu
hótels og líklegt er, þó við vitum það ekki með vissu, að veitingar til
veisluhaldsins hafi fengist á góðum kjörum.
Þetta var áður fyrr en við erum stödd í núinu og í núinu er
málum öðruvísi komið fyrir og það varð til þess að búnaðarþingsfulltrúar gengu
hreint og snöfurmannlega til verks, en hvað þeir gerðu fyrir utan það að kjósa
fulltrúa sumra búgreina í stjórn Bændasamtakanna liggur ekki fyrir þegar þetta
er párað á blað.
En í dag er meiri mjólk í kúnni ef svo má segja, því í
morgun rákum við augun í það að Ísland er orðið þátttakandi í styrjöldinni sem
geisar milli Rússa og Úkraína. Hvernig má það vera mun einhver spyrja og svarið
er ekki að íslenskur her hafi verið sendur til að berjast í Úkraínu, heldur er
það þannig að Ísland, eða öllu heldur íslenska ríkisstjórnin, hefur komið sér
upp flugvélakosti sem tekinn er á leigu til að flytja hergögn til hins stríðshrjáða
lands og um það mátti m.a. lesa bæði í Kjarnanum og Morgunblaðinu og kannski
víðar.
Í gærkvöldi sáum við í sjónvarpinu sýningu sem var haldin í
Úkraínu á líkum fólks sem sagt var að hefði verið drepið af rússneskum
hermönnum. Beinar sannanir liggja ekki fyrir og Rússar neita staðfastlega að
sjálfsögðu, að þeirra menn hafi framið þessi glæpaverk. Hver gerði hvað og
hvenær er ekki gott að segja en undirrituðum sýndist sem hann sæi ummerki þess
að eitt líkið hefði veri flutt þangað sem það lá til sýningarinnar, sýningar
sem var í boði Úkraínumanna.
Aðra sýningu var undirritaður svo óheppinn að sjá í morgun.
Sú var í boði Rússa og sýndi úkraínska hermenn(?) skjóta í höfuðið á rússneskum
hermönnum sem lágu í götunni bundnir á höndum og fótum og með hauspoka á
höfðinu. Sá sem næstur var á myndinni hætti að hreyfast eftir þrjú skot og þar með
var þeim viðbjóði lokið, þ.e.a.s. áhorfandinn slökkti á sýningunni minnugur
þess að um raunveruleika var að ræða en ekki leikna kvikmynd.
Við eigum vonandi öll þá ósk heitasta að styrjaldarátökunum
linni; að friðarins menn stígi inn á sviðið og beri klæði á vopnin og fái
stríðendur til að tala saman eins og siðað fólk.
Það sem gerðist á dögum heimstyrjaldanna I og II má aldrei
gerast aftur og það sem gerst hefur aftur og aftur síðan þá, má heldur ekki
endurtaka sig.
Það er að gerast núna í Úkraínu og það er löngu komið nóg og
það sakar ekki að biðja fyrir friði.
Utanríkisráðherra fer til Úkraínu
Í ýmsum miðlum eru menn að velta því fyrir sér hvernig hægt sé að ljúka stríðinu í Úkraínu. Um þetta nöturlega stríð er fjallað í mörgum m...
-
Landbúnaðarráðherra heimsótti hænsnabú í Hrísey samkvæmt því sem lesa má á mbl.is . Sé fréttinn lesin verðum við margs vís um varphænsnabús...
-
Hvernig stýra skuli aðgangi að heimildum til nýtingar fiskimiða þjóðarinnar er sífellt deiluefni og að undanförnu höfum við getað fylgst með...
-
Tækifærin leynast oft og finnast þegar að kreppir. Þröstur Ólafsson hagfræðingur bendir á í grein sinni hvernig hægt sé nýta kr...