Brúargerð, umhverfisbætur, fólksfjölgun, gámaflutningar, loftslagsaðgerðin ókunna og tíu mánaða meðgangan.

 

Haldinn var ,,skyndifundur“ um brú yfir Ölfusá, eftir að lítið hafði heyrst annað en að til stæði að taka brúna í notkun fyrir næstu áramót.

Trúlega hefur þar verið um mismæli eða misskilning að ræða, því mannvirki af þessari gerð, verður ekki riggað upp á nokkrum vikum og ekki má gleyma því að fram kom, að gleymst hafði að hanna brúna og það verður ekki gert í skyndingu.

Orð eru til alls fyrst og nú er komin af stað umræða um brúna, sem fram til þessa hefur ekki verið annað en útlitsteikning og óskandi er, að hönnunin fari sem fyrst af stað svo mannvirkið geti orðið að veruleika sem fyrst.

Þó einhverjum kunni að þykja það merkilegt að fossar skuli finnast í Flóanum, þá er það nú svo, að þeir eru þar, og Urriðafoss er ótrúlega tilkomumikill, þó sumir hafi vilja kalla hann eitthvað annað en foss.

Og ekki minnkar gildi hans við það að hægt er að ná út úr honum 125 MW af raforku með virkjun, en að af því verði á tímum þar sem orku má ekki afla vegna þess, að vatnið sem virkjað yrði gæti breyst í rafmagn og orðið þar með ósýnilegt, er frekar ólíklegt.

Enginn hefur séð þessi undur gerast en þau gerast samt, að mati umhverfisvæningja allskonar.

Sá sem þetta ritar hefur margoft bent á að heppilegra sé að flytja þunga vöru með strandferðaskipum til Reykjavíkur til útflutnings, en að flytja gámana í stykkjatali á flutningabílum eftir veikburða vegakerfi landsins.

Það var gert og er gert að einhverju marki, en eins og flestir vita er vegakerfið að sligast undan þungaflutningum og því ætti að vera hægt að ná samstöðu um að breyta til í þessu efni og hætta landflutningum af þessu tagi.

Fámenn þjóð í stóru landi getur ekki leyft sér að fara illa með mannvirkin sem notuð eru til að tengja landshlutana saman og ritari treystir sér til að fullyrða, að sjórinn sligast ekki undan skipunum sem um hann fara!

Vinstri græn munu vera til þrátt fyrir allt og ekki gengin inn í Framsóknar- eða Sjálfstæðisflokkinn, líkt og menn gætu haldið.

Þau eru að hugsa um ,eitthvað lífrænt’ og loftslag og jarðveg.

Eru sem sagt á jörðinni einstöku sinnum án þess að við verðum mikið vör við að svo sé.

Því til sönnunar ljúkum við þessu með því að sýna þessa klippu af frásögn af áhugasviði menntamálaráðherrans, sem er að kynna drög að einhverjum viðbrögðum við einhverju sem kennt er við PISA!

Þetta er vafalaust allt verulega djúpt og merkilegt en eins og við vitum er dálítið áríðandi að kenna börnum að lesa sér til gagns og vonandi verður það gert hvað sem könnunum af þessu tagi líður!

Og ekki er verra að geta reiknað dálítið líka!

(Allar klippur í þessu bloggi eru fengnar úr Morgunblaðinu þann 30/9/2024)

Ekkert að óttast

 Maður bregður sér frá í nokkra daga í ferð með Bændaferðum og að því loknu, kíkir á fréttir miðlanna og kemst þá að því, að ýmislegt er og hefur verið að gerast.

Þar er fyrst til að taka, að Zelensky brá sér í fataskápinn, fann þar jakkaföt sem hann fór í til að hitta vin sinn Trump.

Í annarri frétt sást hann vera að spjalla við Biden en þá var hann í peysunni sinni góðu!

Takið eftir skónum! Maður, maður, gljáburstaðir og sem keyptir séu í París!

En við höldum okkur við alvöruna og komumst að því að nú á almenningur, að sjá til þess að unga fólkið geti fengið sér áhyggjulaust do-do á kostnað skattborgaranna en í boði Framsóknarflokksins og þar með alþjóðar.

Telst það vart til tíðinda, að flokkur almennra niðurgreiðslna á vel völdum nauðsynjum hafi gott auga fyrir því hvar borið skuli niður í því efni.

Aftur að Zelensky, því hann hefur komið við víðar og nú er það hinn vinurinn Biden sem

sóttur er heim og þá er farið í peysuna góðu og settar upp grátviprur, sem Biden sér og gerir sitt til að fjarlægja.

En að öðru:

Formaður Framsóknarflokksins er myndefni Gunnars í Heimildinni.

Við sjáum hver er í bandi og með stýrivextina um hálsinn og enn er það unga fólkið sem er á vörum Framsóknar: Allt er í besta lagi því ,,hann“ bítur bara ungafólkið!

Á myndinni til hægri, er sem það eigi að vera Putin sem sé með kökukeflið á lofti, tilbúinn til að rota hænuna sem ætlar í vesöld sinni að breyta yfir í ,,verðtryggt“ en þegar að er gáð, þá er það ekki rússlandsforseti sem heldur á kökukeflinu, heldur aðeins íslenskt fjármálagúrú!

Svona líta þá málin út á fyrsta degi innrásar gamlingjanna til föðurlandsins og móður náttúrulega, þó það gleymist nær alltaf!

Við vonum að Eyjólfur haldi áfram að vera hress og færandi!

Eldflaugar eða ekki?

 Til umræðu hefur verið að senda langdrægar eldflaugar til Úkraínu sem dregið gætu langt inn í Rússland og sitt sýnist hverjum um hvort það sé viturlegt.

Sem betur fer hefur verið horfið frá hugmyndum um að senda flaugar af þessu tagi til landsins a.m.k. í bili og ætli ekki megi segja að heimsbyggðin andi léttar fyrir bragðið.

Vopn af þessu tagi eru vandmeðfarin og ekki gott að þau séu í höndum þeirra sem ekki kunna með þau að fara.

Myndin hér að ofan, sem fengin er af vef BBC, segir meira en langur texti.

Erlendir miðlar segja fá því að fallið hafi verið frá hugmyndum um að færa Úkraínum eldflaugar af þessu tagi og má finna frásagnir á þeim, þar sem sagt er frá þeirri niðurstöðu málsins.

Ríkisútvarpið sagði nokkrum sinnum frá því í fréttum gærdagsins, að óskum Zelensky og félaga, hafi verið hafnað af t.d. af Biden og við lauslega yfirferð má sjá sagt frá þessu víðar.

Á vef Welt er fjallað um þetta svo dæmi sé tekið og þar er vitnað í Scholz.

Þar berst talið m.a. að eyðileggingunni á Nord Stream gasleiðslunum og þar lýsir því afdráttarlaust yfir, að draga eigi þá fyrir dóm þá sem að því stóðu.

Erfitt hefur verið að átta sig á því hverjir séu hinir raunverulegu gerendur en böndin hafa borist æ oftar til Úkraínu upp á síðkastið.

Sem vonlegt er, þá er fjallað um eldflaugamálið á RT og augljóst er að þar er mönnum létt, þó ekki sé nema vegna þess, að tól af þessu tagi eiga ekki að komast í hendur þeirra sem ekki kunna með þau að fara.

Rússar munu nú um stundir leggja áherslu á að frelsa Kursk úr höndum Úkraína og ætti það að geta gengið vel, sé ástandið og liðsandinn hjá úkraínska hernum líkur því sem sagt hefur verið frá á vestrænum miðlum s.s. CNN o.fl.

Donbas gefa Rússar væntanlega ekki eftir fyrr en í fulla hnefana og kannski rætist ósk þeirra sem þar búa og hafa óskað eftir rússneskri vernd í von um frið fyrir áreiti, sem stundum varð að manndrápum á því svæði.

Nú hefur það orðið að styrjöld milli landanna, sem engum er til gagns en öllum sem hlut eiga að máli og mörgum öðrum, til ómældrar bölvunar.

Slæmt ástand í úkraínska hernum

 CNN.COM segir frá því að hugur margra hermanna  í úkraínska hernum sé ekki góður og að viljinn til að fórna sér fyrir þjóð sína, fari verulega þverrandi.

Það er sem margir ungir menn sjái takmarkaðan tilgang í því að fórna lífi sínu og heilsu í verkefni sem þeir skilja ekki hvert er.

Við getum séð í frásögninni myndband með Zelensky, ef við viljum, þ.e.a.s. ef við höfum ekki fengið nóg af slíku á Rúvinu okkar, eða einhversstaðar annarstaðar.

Fyrirsögn frásagnarinnar er í lauslegri þýðingu: ,,Vopnlaus og fjölmennur, her Úkraínu glímir við slæman liðsanda og liðhlaup„.

Myndin fylgir grein CNN

Sagt er frá manni sem kallaður er Dima, sem keðjureykir og hættir ekki fyrr en sígarettan er brunnin alveg upp í filter.

Hann er búinn að vera í langan tíma við víglínuna og virðist vera búinn að fá nóg.

En þar sem flestir bardagabræður hans eru nú látnir eða alvarlega særðir, hefur Dima tekið þá ákvörðun, að hvað hann varðar sé nú nóg komið.

Hér verður ekki farið dýpra í að segja frá því sem fram kemur í grein CNN en hanaa má nálgast á tenglinum sem er hér í uppafi þessara skrifa.

Það er erfitt að setja sig í spor þeirra sem berjast upp á líf og dauða fyrir málstað sem þeir hafa litla trú á og þegar svo er komið er hætt við að eitthvað bresti.

Ritari hefur ekki rekist á að vitnað sé í þessa frétt í ísenskum miðlum, sem þó getur vel verið að hafi verið gert einhverstaðar og að það hafi flogið framhjá í bunulæknum sem í sífellu streymir hjá þjóð sem er upptekin við eldhúsdag og sitthvað fleira.

Það virðist vera dálítið á huldu hvenær styrjöldin milli Rússlands og Úkraínu braust út en við erum þó nokkur á fótum sem vitum af því, að erjurnar milli landanna hafa staðið nokkuð lengi og það svo árum og áratugum skiptir.

En að öðru, því RT.COM segir frá því að þrátt fyrir að allt sé það vont og verra en verst, í samskiptum Bandaríkjanna og Rússlands, þá gangi samstarfið um áhafnarskipti í geimstöðinni fyrir sig á eðlilegan hátt.

Við vitum að það er búið að vera bras hjá Bandaríkjamönnum að framkvæma áhafnarskipti og því var um það samið milli ríkjanna tveggja, að rússneska geimferðastofnunin myndi annast þau, þar til lausn yrði fundin á vandanum.

Það er ánægjulegt að sjá að ríkin geta unnið saman þegar þarf og gott væri, ef þau færu sömu leið varðandi úkraínumálið, myndu vinna að lausnum í stað þess að kynda undir hernaðarátökum,  sem virðast vera að leiða til niðurbrots a.m.k. Úkraínu, auk þess sem þau kosta vissulega líka sitt fyrir Rússa

Í mannslífum og efnislegum verðmætum líka .

Ef það er eitthvað sem sagan hefur kennt okkur þá er það, að stríðsátökum lýkur á endanum, en eftir situr tjón sem ekki verður bætt og þarf víst ekki að telja upp hvert það er.

Því væri æskilegra að t.d. íslenskir pólitíkusar, legðu sitt á vogarskálar í þágu friðar, í stað þess að kynda undir ófriði.

Um eitt hundrað miljarðar í halla

 Fætt er fjárlagafrumvarp og kominn er nýr fjármálaráðherra og í Heimildinni er lítillega sagt frá því.

100 milljarða halli á tveimur árum er víst eitthvað til að stæra sig af, í ríkisstjórn tíðra ráðherraskipta og stýrivextir á tíunda prósent líka, ef menn vilja sækjast eftir frægð.

Hvort því fylgir sá frami sem vonast er eftir er ekki eins víst.

Greinin sem myndin er af er úr Heimildinni en fréttina heyrði bloggari fyrst í Ríkisútvarpinu en sem sást þar ekki á rituðu formi, þegar til stóð að athuga hvort um misheyrn hefði verið að ræða.

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa skipt um ráðuneyti af miklu kappi, einn þeirra langaði t.d. til að verða forseti á Bessastöðum og lagði 54 milljónir í baráttuna fyrir að ná embættinu.

Vinstrigræningi sem genginn var í íhaldsbjörg, virtist þjóðinni ekki traustvekjandi kostur í embættið og þar með var úti það ævintýri.

Ráðherra sem ætlar að vera búinn að byggja brú, sem ekki er enn búið að hanna, yfir Þjórsá fyrir árslok 2024 er tæplega álitlegur fjármálaráðherra en getur þó skákað í því skjólinu, að sá sem þar var fyrir, hafði ekki reynst sérstaklega vel í ráðstöfun fjármuna úr hinum sameiginlega sjóði landsmanna.

Rétt er að taka fram, að komið er fram nýtt ártal hvað varðar byggingu brúarinnar sem fyrr var nefnd, en hvort það stenst betur en hið fyrra verður tíminn að leiða í ljós.

Yfirskrift fjárlagaplaggsins mun vera ,,þetta er allt að koma" og eru það orð sem gera má ráð fyrir að fæðingarlæknir myndi nota til uppörfunar og hughreystingar.

Það er eitt og annað sem er rétt að koma, því til stendur að byggja nýtt fangelsi fyrir gistivini réttlætisins, auk brúarinnar fyrrnefndu.

Það á nenilega að efla og styðja „hóflegan raunvöxt útgjalda“.

Eins og það hefur gengið undanfarin ár hjá þeim sem í ríkisstjórnarbrúnni standa, er vart hægt að álykta annað en, að um glamur sé að ræða.

Verði það hins vegar að veruleika, þá verður líkast til lokað fyrir leikaraskap af ýmsu tagi eins og t.d. ríkisstjórnarflandur út á land til fundarhalda og flug með flugvélarfarm af alls konar vildarvinum yfir hálfan hnöttinn í boði alþjóðar.

Þar sem saman var komið í þeim tilgangi að stuðla að bættri umgengni við náttúruna!

Rétt er að taka það fram, að ,,útálandifundarhöld" eru ekki uppfinning ríkisstjórnarinnar lánlitlu og síbreytilegu, því ef rétt er munað var sá siður tekinn upp fyrir nokkrum kjörtímabilum síðan.

Hver tilgangurinn er annar en að bregða sér í skreppitúr í boði alþjóðar er ekki vitað.

Stjórnarráðið mun vera í Reykjavík og þurfi fólk að fara út á land til að sletta úr klaufunum, þá er eðlilegast að hver geri það í boði sjálfs sín.

Að ríkisstjórnin hressist líkt og Eyjólfur forðum er óvíst, en við vonum það besta og að liðsmenn hennar fari að finna fjöruna sína í pólitíkinni og átta sig á til hvers þau voru kosin.

Það styttist í kosningar og í þeim mun þjóðin segja sína skoðun með lýðræðislegum hætti svo sem vanalegt er og vonandi tekst vel til með talningu atkvæða!

Þegar þar að kemur, mun koma í ljós hvort einhver frambjóðandi hefur í ógáti boðið sig fram í vitlausum eða vitlausari flokki en hann hafði ætlaði sér og guð hafði mælt með.

Við bíðum spennt eftir framhaldinu!

Blásið í lúðra

 Það var dimmt yfir fundinum sem sagt er fá á ruv.is, þar sem frá því er sagt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi gert það sama og íþróttafélöginn gera í mótbyr. Ólíkt léttara er að sjá yfir unga fólkinu sem stendur undir merkjum Samfylkingarinnar.


Rautt til vinstri og dimmblátt til hægri er það sem við sjáum og það er von að þungt sé yfir þeim sem í blámanum eru.

Þar á bæ hefur allt farið niður á við, meðan allt gengur mun betur hjá hinum.

Landsmenn eru búnir að fá nóg af ríkisstjórninni, sem veit ekki hvort hún er að koma eða fara, hvort hún á að standa fyrir framförum eða bara halda áfram að leika sér.

Það er nær sama hvar drepið er niður, allt frá því að þjóðin er látin vera í stríði við gamla vinaþjóð í þeim tilgangi að bjarga heiminum og niður í að að þykjast vera einhverskonar viðhengi Netayahu.

Forsætisráðherrann, sem við höldum að sé, þvælist heimshorna milli en kíkir við af og til, til að stjórna landinu sínu, þegar hann má vera að því og heimsbyggðin þarfnast hans ekki..

Fjármálaráðherrann telur aurana og finnur, því alltaf má fá eitthvað hér og annað þar og brúin hans verður tilbúin fyrir árslok 2024, eins og um var talað og þó gleymst hafi að hanna hana, þá verður bara að hafa það!

Auk þess ætla þau að byggja 30 hektara framhaldsskóla í Hafnarfirði til að hægt sé að losna við kennslu sjómanastéttarinnar úr Reykjavík og að hægt sé þess í stað, að dæma brotamenn í sjómannaskólahúsnæðinu sem þar er.

Það er sem sagt margt sem horfir til framfara og nú er svo komið að pósturinn kemur með brennivínið heim til þeirra sem það kjósa og því er engin þörf á að láta renna af sér til að sækja sér meira.

Svona horfir flest til betri vegar hjá ríkisstjórn allra landsmanna(?) og senn kemur eflaust að því, að meðlætinu með brennivíninu verði líka ekið til neytenda og gerist þá kátt í bæjum öllum.

Allt í besta lagi?

 

Teiknarar blaðanna sjá eitt og annað og við höfum Heimildina fyrir því, að foringjar ríkisstjórnarflokkanna sé úti að aka en björninn lætur sem ekkert sé og lætur lítið á sér bera.

Sækir ekki í félagsskapinn.

Það er áhugavert að rýna dálítið í myndina sem er í miðjunni og er af félögunum sem ,,stjórna“ landinu okkar, án þess að gera það.

Fylgið er hrunið og Morgunblaðið segir frá því að staðan sé sú sem sést hér að neðan:

Það er augljóslega komið að því að menn taki sig til, fari í naflaskoðun og velti því fyrir sér hvað það var sem gert var rangt og sem kannski var margt.

Hvað er það sem varð til þess að traustið hvarf, kjósendur fengu nóg og vilja ekki meira af svo góðu?

Er það af því að ríkissjórnin hafi haldið vel á fjármunum og öðrum verðmætum þjóðarinnar?

Varla og ekki er það vegna þess að forgangsröðunin hafi alltaf verið rétt.

Dæmi:

Var það þess virði að senda flugvélarfarm af fólki á kostnað þjóðarinnar til Abu Dabi, til að sýna sig og sjá aðra, spóka sig í sólinni og spjalla saman um daginn og veginn?

Varla.

Er það vegna þess að ríkisstjórnin hafi góða stjórn á fjármálakerfinu?

Með stýrivexti í hæstu hæðum!

Eru framkvæmdir í réttri röð m.v. nauðsyn og álag á innviði?

Hvar er t.d. brúin yfir Ölfusá?

Hún sést ekki en það er farið að rofa til, því til stendur að ljúka henni 2024 og það þó og þrátt fyr­ir, að eftir sé að hanna hana og skrifa undir verksamninga!

Er líklegt að það gangi eftir?

Því miður væri hæg að halda áfram á þessum nótum lengi en við höfum tekið eftir því að allt mögulegt á að gera NÚNA og ekki seinna en í gær.

En það gerist ekki.

Þjóð veit þá tveir vita og því er það, að blaður um að allt sé í besta lagi og svo gott sem það best geti verið, virkar ekki.

Því er það að ríkisstjórnin fær falleinkunn hjá þjóðinni og er þó hér ekki allt upp talið.

Utanríkisráðherra fer til Úkraínu

  Í ýmsum miðlum eru menn að velta því fyrir sér hvernig hægt sé að ljúka stríðinu í Úkraínu. Um þetta nöturlega stríð er fjallað í mörgum m...