Klögumálin ganga á víxl
Boðað vopnahlé gengur ekki eftir a.m.k. ekki, að því leiti sem vonast var til.
Það má reyndar sýna því skilning að taugaþandir menn sem búnir eru að vera undir miklu álagi, hætti ekki baráttunni á slaginu klukkan eitthvað.
Og eins og við er að búast kenna hvorir öðrum um og engin leið er að dæma um hvor hefur rétt fyrir sér.
Ritari leit við á BBC.COM og fékk eina frásögn og síðan á Russya Today og fékk aðra.
Og eins og við var að búast bar mönnum ekki alveg saman.

Myndin af Zelensky er af vef Russya Today og er ein sú besta sem af Zelensky hefur birst um nokkurn tíma og spurning er hvort það sé verið að senda skilaboð með því myndvali.
Á BBC rákumst við á kunnuglega frásögn sem hófst nánast á ,,Selensky segir“ og það sem hann sagði var vitanlega að rússneski herinn stæði ekki við vopnahléið.

Myndin af Putin, sem sést að er fengin frá Reuters, fylgir frásögn BBC og þar sem hún er ekki tekin í tilefni dagsins, svo við vitum, þá lesum við ekkert úr henni!
Á Russya Today var þetta dálítið öðruvísi og þar var framgangi vopnahlésins lýst á þann veg að ekki hafi allt farið svo sem óskað var eftir og vonað.
Það er bæði gömul saga og ný að það taki tíma að koma boðun um stöðvun hernaðaraðgerða í framkvæmd; menn eru taugaspenntir og bregðast við minnsta áreiti svo sem von er.
,,Þegar vonin ein er eftir“ er titill á bók sem hefur setið í minni og við skulum halda áfram að halda í vonina, treysta því að taugarnar slakni og að sæmilega tryggur friður komist á, a.m.k. yfir páskana og helst miklu lengur.
Við viljum flest varanlegan frið og að menn ræði sig til niðurstöðu, hætti manndrápum og eyðileggingum og að ástand sem búið er að vera með ýmsum afbrigðum í meira en áratug, breytist til batnaðar.
Vonandi er það ekki of stór ósk á þessari páskahátíð!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli