Styrjöldin milli Rússlands og Úkraínu er til umfjöllunar í sænska miðlinum Expressen og svo er að sjá sem þar sé verið að staðfesta það sem áður hefur komið fram en frekar lítið hefur verið haldið á lofti, vaðandi skemmdarverkin á Nord Stream gaslögnunum.
Fram kemur að þýskur dómstóll hefur lýst eftir úkraínskum kafara, sem þýskir rannsakendur hafa lýst eftir vegna skemmdarverkanna og að það hafa verið gert í júní.
Þá er sagt frá því að rannsóknin sé unnin í samstarfi við ,,rannsókn þýsku miðlanna Süddeutsche Zeitung og Die Zeit ásamt sjónvarpsstöðinni ARD og Expressen.
Í greininni segir að alríkissaksóknaraembætti í Þýskalandi hafi borið kennsl á ,,þrjá einstaklinga“ sem séu grunaðir og þ.á.m. 44 ára gamlan kafara, sem sé eftirlýstur vegna málsins.
Nafn kafarans er gefið upp og sagt vera Volodymyr Zhuravlov, 44 ára gamall.
Þessi mannskapur mun hafa verið hluti af fimm manna áhöfn skútunnar Andrómedu og það er sem maður kannist við að hafa séð nafn hennar nefnt fyrr til sögunnar vegna þessara atburða.
Það hafði gengið á ýmsu vegna gasflutninga frá Rússlandi til vesturs áður en lagnirnar voru eyðilagðar og ýmsir voru nefndir til sögunnar, sem ábyrgir gætu talist fyrir verknaðinum.
Úkraínumönnum þóttu lagnirnar ekki vera alslæmar, þar sem a.m.k. sumar þeirra lágu gegnum land þeirra og bauð upp á ýmsa góða kosti, eins og s.s. það að ,,krækja“ sér í gasslurk hér og þar á leiðinni, sem raskaði vissulega svefni bjarnarins í austri en gat yljað á köldum dögum.
Nú er það ekki í boði lengur því ekkert gas streymir eftir lögnunum ónýtu og því gerum við ráð fyrir, að ylur berist úr vestri úkraínskum almenningi á vetrardögunum, sem nú eru framundan.
Annars er það af þessum málum að segja, að undrun vekur hve rússneski björninn svaf fast á verðinum varðandi varnir Kursk, því a.m.k. í um áratug ef ekki lengur, hefur það verið aðall hinna úrkaínsku, að ráðast á varnarlítinn almenning á Donbas svæðinu eins og mörgum mun vera kunnugt og því þá ekki Kursk?
Úkraínum tókst þó núna það sem þeir hafa verið að brasa við um langan tíma og það er að kveikja eld í kjarnorkuveri.
Það hefur staðið í þeim varðandi kjarnorkuverið sem myndin er af.
Líklega hefur þess verið betur gætt, auk þess sem fulltrúar Sameinuðu þjóðanna hafa verið þar við eftirlit á köflum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli