Hálf öld

 

Hálf öld er liðin síðan Bandaríkin hættu í Vietnam.

Og það eru liðin 50 ár síðan þeir flúðu frá Saigon. The Guardian fer yfir þá sögu; sögu sem þarft er að halda til haga.

Myndirnar eru fengnar úr umfjöllun The Guardian og þar má nálgast myndatexta.

Margt hefur breyst síðan það ömurlega stríð var en enn eru menn að skaðast vegna eftirmála þess og hreinsun landsins er ekki lokið, sem sést best af því að enn er verið að grafa upp jarðsprengjur sem grafnar voru niður fyrir lok stríðsins.

Það voru Bandaríkjamenn sem studdu yfirvöld í Saigon sem réðu suðurhluta landsins en þáverandi Sovétríki og Kína studdu við Frelsisher Víetnam og Bandaríkin fórnuðu sínum ungmennum í baráttu gegn frelsisbaráttunni.

Það má samt ekki gleyma því að mikil andstaða var við hernaðinn innan Bandaríkjanna og dettur ritara í hug eitt þekkt nafn af mörgum í því sambandi, þ.e. Jane Fonda.

Enn er verið að grafa upp skaðræðistólin eins og fyrr sagði og sér ekki fyrir endann á því verkefni.

Saga lýðræðisríkisins mikla greinir frá ótalmörgum herferðum vítt og breitt um heiminn og enn eru þeir að, þó í þetta sinn, hafi ekki verið sendur her til að taka þátt í ódæðisverkunum.

Það er stríðað vítt um veröldina og við munum t.d. eftir Súdan og Ísrael auk þess sem á gengur, á milli Rússlands og Úkraínu.

Um síðastnefndu átökin hefur verið svo margt fjallað og svo margt verið sagt að litlu er við að bæta en t.d. af hálfu Ísraela eru skelfilegir atburðir að gerast.

Það hafa eflaust fáir átt von á að þjóðin sem nasistar ætluðu sér að útrýma, myndi nokkrum áratugum seinna reyna það sama gagnvart annarri þjóð en ef eitthvað er, með enn viðbjóðslegrri aðferðum.

Hvenær við lærum af því sem sagan greinir okkur frá og notum það síðan sem vítin til að varast er ekki gott að segja en víst er kominn tími til, að við lærum af sögunni og finnum aðrar aðferðir til að útkljá ágreining milli þjóða.

Til þess hafa verið stofnuð samtök s.s. Sameinuðu þjóðirnar en ekkert virðist duga til.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Gamalt og nýtt ofbeldi

  Nýnasismi er að ná sér að flug í vestur- Evrópu að sögn  RT.COM  og Macron virðist langa til að feta í fótspor Napóleons og þýskir ráðamen...