Búið er að opna menningarhús á Selfossi; hús sem fram til þessa hefur gengt öðru hlutverki.

Um er að ræða glæsilegt hús sem búið er að þola tímans tönn og við erum viss um að hafi það sál, þá tekur það hlutverki sínu fagnandi.

Fólk kom saman í tilefni þessa merkisatburðar og eins og sjá má sveif gleðin yfir og út úr hverju andliti mátti lesa ánægju.

Og eins og vera bar, þá voru pappírar lagðir á borð og gengið formlega frá öllu, sem er ólíkt því sem er með ,,menningarsalinn" sem margra ára gamall bíður ,,snyrtingar" á Hótel Selfossi.

Salurinn ,,nýi" á Selfossi, á línurnar sameiginlegar með félaga sínum á Akureyri en þar er menningarhúsið í bænum búið að vera sér og sínum til sóma um fjölda ára.
Myndirnar eru úr grein Vísis um málið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli