Að virkja til orkuöflunar er góðuur kostur

 Það er víða hægt að virkja til orkuöflunar í landinu okkar og á mbl.is er fjallað um einn af möguleikunum.

Að virkja fallvötnin er góður kostur og eftir stjórnarskiptin, sem urðu eftir vetrarkosningarnar og að Abúdabí ríkisstjórnin hvarf frá, hafa möguleikarnir margfaldast.

Í umfjöllun blaðsins er þess getið að flöskuhálsinn sé tregða manna til að skilja, að ekki er nóg að virkja, það þarf líka að koma orkunni til notenda.

Slíkur skilningur hefur verið að frekar skornum skammti fyrir norðan en vonandi hillir undir að breyting geti orðið þar á.

Í tíð ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar var umhverfisvænskan slík að það mátti vart velta við steini án þess að það færi í umhverfismat og síðan yfirmat og klögumálin gengu á víxl.

Nú hefur orðið breyting á með nýjum ráðherra orkumála, en sá skilur, að ekkert verður til af engu og að þegar litið er til baka, þá má finna dæmin um að flest getur orðið að engu ef viljinn er nægur.

Ráðherra sá sem nú er, virðist átta sig á því að til að tryggja að næg orka sé til í kerfinu, þarf að afla hennar og að það verður ekki gert með því einu að tala og tala meira, þar til allir eru orðnir leiðir á masinu og snúa sér að öðru.

Við vonum því að guð láti gott á vita og að í stað heimshornaflakks, verði unnið að hagsmunum íslenskrar þjóðar.

Það virðist vera vilji til og vonandi liggja dragbítarnir kyrrir í holum sínum, en ef ekki, þá sitjum við áfram í því fari stöðnunar og ráðleysis sem einkenndi fyrri ríkisstjórn.

Nóg er af óvirkjuðum virkjanakostum, í fallvötnum, jarðhita og vindorku en það hefur skort viljann til að nýta kostina.

Við skulum vona að þeir tímar séu gengnir yfir og að bjartari tímar séu framundan.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Að virkja til orkuöflunar er góðuur kostur

  Það er víða hægt að virkja til orkuöflunar í landinu okkar og á  mbl.is  er fjallað um einn af möguleikunum. Að virkja fallvötnin er góður...