Ekki eru allar ferðir til

 The Guardian segir frá peningaflutningamálinu mikla, sem úkraínskir aðilar voru staðnir að í Ungverjalandi.

Forsætisráðherra Ungverjalands hefur skipað svo fyrir að verðmætin skuli kyrrsett um tveggja mánaða skeið á meðan málið sé rannsakað.

Gullið og peningarnir voru flutt með bílum og verðmætið er talið vera um 40 milljónir dollara og þar af 35 milljónir í reiðufé auk 9 kílóa af gulli.

Eins og kunnugt er, hefur verið fremur kalt á milli ríkjanna og Ungverjar hafa haldið því fram, að úkraínsk ,,stjórnvöld“ hafi tafið fyrir viðgerð á olíuleiðslu sem þeir (Ungverjar), treysta á til að fá olíu frá Rússlandi og að auki jafnvel tafið fyrir viðgerð á lögninni með því að gera á hana árásir með drónum.

Zelensky hefur hins vegar, sakað Ungverja um að halda verðmætinu ,,ólöglega“ og kallað haldlagninguna ,,ræningjastarfsemi“ og hvatt evrópska leiðtoga til að blanda sér í málið.

Ritari hefur ekki séð upplýsingar um, á hvaða ferðalagi hinir virðulegu peninga og gull flutningamenn voru, né á hverra vegum þeir fóru í þetta ferðalag.

Hafi þeir verið að forða fjármunum sem Úkraínu hafa verið gefnar af ,,vinum“ þeirra í ESB eða annarsstaðar, þá er svo að sjá sem fátt sé orðið um undankomuleiðir fyrst þeir völdu Ungverjaland.

Í framhaldi fréttarinnar er síðan sagt frá því hvernig gangi á vígvellinum og er þar skemmst frá að segja, að Úkraínar segja eitt og Rússar annað.

Þá er sagt frá því að hin friðsömu Bandaríki hafi hvatt til friðarviðræðna milli landanna og stungið upp á, að þær gætu farið fram í Sviss eða Tyrklandi en tyrkneski forsetinn hefur tjáð sig um málið og sagt sem svo að: Átökin í Íran mega ekki hindra friðarviðræður fyrir Úkraínu.

Friður fyrir Úkraínu er væntanlega líka friður fyrir Rússland og A- héruð Úkraínu, sem hafa legið undir árásum úr vestri um margra ára skeið eins og flestir vita, sem vilja vita.

Þeir sem ,,vilja fá meira að heyra“ af þessu máli geta nálgast greinina með því að nota sér tengilinn sem er hér í upphafi.

En ágreiningsmálin milli Úkraínu og Rússlands er tæplega hægt að leysa nema með því að skoða fortíðina, horfa til framtíðar og segja skilið við nútíðina, en ólíklegt er að úkraínsk ,,stjórnvöld“ hafi áhuga á því fyrstnefnda.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Að virkja til orkuöflunar er góðuur kostur

  Það er víða hægt að virkja til orkuöflunar í landinu okkar og á  mbl.is  er fjallað um einn af möguleikunum. Að virkja fallvötnin er góður...