Stríð er ekki hægt að fegra

Við höfum fengið fréttir af því að hermenn frá Norður- Kóreu berjist með rússneska hernum við Úkraína en við höfum ekki mikið heyrt um vestræna bardagamenn, sem berjast með Úkraínum.

Um þetta er fjallað á CNN.COM og þar er sem vonlegt er, mest sagt frá bandarískum

hermönnum sem berjast í stríðinu við Rússa.

Mynd úr CNN

Í greininni sem hér er vitnað til, er sagt frá örlögum nokkurra manna sem boðið hafa sig fram í hernaðinn og sögurnar eru ljótar og vart fyrir viðkvæma.

Styrjaldir eru ömurleg aðferð til að skera úr um ágreining og við lestur greinarinnar fáum við að sjá nokkur dæmi um það.

Líkamsleifar manna í hrærigraut og annað eftir því, og eins og við er að búast er heilmikið mál að komast að því hvað tilheyrir hverjum og gleymum ekki sorg mæðra og feðra þeirra sem svona er komið fyrir.

Það er þekkt í sögunni að menn hafa boðið sig fram til að berjast fyrir það sem þeir trúa að sé góður málstaður, eins og t.d. í borgarastyrjöldinni á Spáni.

Það er þyngra en tárum taki að mannskepnan geti ekki fundir betri aðferð til að leysa úr ágreiningi en að herja hver á annan; herja hverjir á aðra með aðferðum sem eru þannig, að mennskan er eitt það fyrsta sem víkur.

Að íslenskar ráðakonur- og menn hafi látið sig hafa það, að eyða fjármunum þjóðar sinnar í herbúnað, er með miklum ólíkindum.

Eitt er að færa þeim sem þurfa, hlýjan fatnað og annað slíkt en að eyða fjármunum í herbúnað er annað og þar setur ritari mörkin.

Vitanlega spilar pólitískur átrúnaður inn í, því ekki minnumst við þess að það hafi verið gert þegar Bandaríkjamenn herjuðu á Víetnam, svo ekki sé minnst á Írak, sem bestu vinir aðal, sprengdu í rústir vegna upploginna saka.

Svo ekki sé nú minnst á Abu Graib og það sem þar gerðist.

Það fer ekki alltaf saman hljóð og mynd, þegar afruglarinn er óvirkur!

Mæður og feður gráta börnin sín sem eitt sinn voru, þegar þau koma látin og jafnvel óþekkjanleg heim úr hildarleiknum.

Styrkveitingar til stjórnmálaflokkanna

 Styrkjamálið hefur raskað ró en þó aðallega gefið blóð á tönn og eftir stendur, að einungis tveir flokkar hafa farið að reglum, að því ógleymdu að hinir opinberu afgreiðslumenn hljóta að hafa gleymt sér líka.

Það er ekki nóg að segjast vera með bílpróf, maður þarf að geta sannað það!

Og svo haldið sé áfram með samanburðinn, þá fær maður ekki skýrteini nema hafa staðist prófið!

 Fyrst þegar styrkjaumræða fór af stað, virtist sem ,,styrkveitingar án skráningar” ættu eingöngu við Flokk fólksins, sem svo er kallaður. 

Hér verður látið liggja milli hluta hvort flokkurinn rís undir nafni eða ekki og ritari hefur um það ákveðnar skoðanir en að hans mati koma þær umræddum styrkveitingum ekkert við. 

Fyrst þegar þessi umræða fór af stað virtist sem svo, að það væri eingöngu þessi sérkennilegi flokkur sem hlut ætti að máli, en í ljós hefur komið að svo er ekki. 

Einu flokkarnir sem ekki hafa verið nefndir til sögunnar og virðast því vera með sín mál á hreinu hvað þetta varðar eru Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn

Lítið hefur verið rætt um hver ábyrgð þeirra er, sem fjármunum almennings úthluta. Hvernig stendur t.d. á því, að menn geta gengið að almannafé og fengið milljónir, milljónatugi og hundruð, án þess að gengið sé eftir því, að formsatriðum eins og í þessu tilfelli, skráning stjórnmálasamtaka sé samkvæmt því sem lög krefjast? 

Síðan má líka spyrja sig þeirrar spurningar hvers vegna verið sé að blása þetta mál upp núna? 

Upphafið er líklegast, að einhver hafi haft af því spurnir að Flokkur fólksins, hafi ekki sinnt skráningarskyldu og séð í því gott tækifari til að gera úr því mál. 

Í upphafi skyldi endinn skoða, stendur einhverstaðar og ljóst má  vera að hér var þess ekki gætt og nú er svo að sjá sem þeir sem fóru með málið af stað ætli að halda sig við það að segja fréttina hálfa.  

Fallið á prófinu.

 Á Alþingi sitja stjórnmálaflokkar sem eiga rétt á styrkjum en það þarf að skrá þá sem slíka, til að eiga rétt á styrkveitingunni.

Súluritið er úr umfjöllun Vísis og sýnir Framlög til stjórnmálaflokka fyrir árið 2022.

Styrkir til stjórnmálaflokka hafa verið í umræðunni og þá einkum styrkurinn til Flokks fólksins, sem svo kallar sig.

Flokkurinn þáði styrki án þess að vera skráður hjá hinu opinbera sem stjórnmálaflokkur en hvers vegna ekki var gengið eftir skráningunni hefur ekki verið upplýst. 

Flokkurinn átti sæti á Alþingi og átti rétt á styrkjunum en það vantaði opinberan stimpil og slíkan ,,stimpil“ má ekki vanta þegar um hið opinbera er að ræða. 

Í ljós hefur komið að fleiri flokkar sitja í styrkjasúpunni og þ.á.m. flokkur lögfræðinnar Sjálfstæðisflokkurinn.

Frá þessu er greint í Vísi. og þar segir eftirfarandi (leturbreyting ritara): 

,,Flokkur fólksins og Sjálfstæðisflokkurinn eru ekki einu flokkarnir sem hafa flaskað á skráningu sem stjórnmálasamtök. 

Vinstrihreyfingin grænt framboð breytti skráningu sinni ekki fyrr en 25. september í fyrra. Þannig hefur flokkurinn þegið framlög árin 2022, 2023 og 2024 án þess að uppfylla skilyrði laga um skráningu. Framlögin nema í heild 266.566.093 krónum. Skráning Vinstri grænna þetta árið skiptir ekki máli, enda náði flokkurinn ekki nægri kosningu í síðustu kosningum til þess að hljóta styrki. Lágmarkið er 2,5 prósent en Vinstri græn hlutu aðeins 2,3 prósent. 

Sósíalistar breyttu skráningu sinni þann 21. nóvember árið 2023. Þannig fékk flokkurinn styrki árin 2022 og 2023 án þess að vera skráður sem stjórnmálasamtök. Það gerir 50,5 milljónir króna. 

Píratar breyttu skráningunni 16. mars árið 2022. Styrkurinn það árið nam 66,8 milljónum króna. 

Ekki hefur náðst í Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins.” 

Samkvæmt þessu er búin að vera brotalöm í framkvæmd styrkveitinga til stjórnmálaflokkanna og að því gefnu að þetta sé rétt með farið, eru það einungis Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin, af núverandi stjórnmálaflokkum sem eiga fulltrúa á þingi, sem hafa verið með skráninguna í lagi. 

Því má svo ekki gleyma, að þeir sem fara með greiðslur úr opinberum sjóðum eiga að genga eftir því að skráning af þessu tagi sé eins og til er ætlast. 

Það vekur athygli að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa fallið á skriffinnskuprófinu. 

Friðarvonir og stríðsæsing

 30. nóvember 2024 birtist þessi ,,frétt“ í Morgunblaðinu.

Eins og sést á skjáskotinu úr Morgunblaðinu, er þar mynd af fyrrverandi utanríkisráðherra en hafi verið rætt við hana þá fer ekki mikið fyrir því.

Eftir því sem best er vitað er í fullu gildi varnarsamningur Íslands við Bandaríkin, auk þess sem Ísland er í NATO.

Hvers vegna því er slegið upp að stofna þurfi ,,varnarmálaráðuneyti“ er ekki gott að segja, en frúin sem ekki er rætt við nema í hljóði í fréttinni, hefur verið alveg nægjanlega herská fyrir smekk ritara og fleiri.

Vitnað er til átakanna sem eru milli Rússlands og Úkraínu en eins og við vitum, þá er núverandi forseti Bandaríkjanna búinn að lýsa því yfir að hann muni stilla til friðar þar mjög snarlega.

Putin er búinn að spila út sínum trompum í friðarátt á Russya Today og ef eitthvað er að marka höfðingjana í austri og vestri, þá geta stríðsglaðir Íslendingar farið að anda eðlilega og við hin varpað öndinni!

Við erum nokkuð mörg sem vonum að Trump standi við stóru orðin, spjalli við Putin og stilli til friðar

Þar með gæti Zelensky snúið sér aftur að píanóspilinu, sem við viljum ekki hlusta á og þaðan af síður sjá!

Orkumál þjóðar sem býr yfir orkuauðlindum

 Það er flestum ljóst að orkumálin eru í ólestri vegna vanhæfni ríkisstjórnarinnar sem þjóðin hafnaði svo eftirminnilega fyrir skemmstu. Spor þeirrar stjórnar hræða en við vonum að nýir vendir sópi betur.

Skjáskotin eru úr Morgunblaðinu.

29. september 2024 birtist frétt í Morgunblaðinu þar sem í fyrirsögn má sjá hvernig staðan var og er enn.

Í þeirri ríkisstjórn sem þá var voru menn að hugsa um ,,eitthvað annað" eins og sjá má en við vitum að þeim entist ekki örendið til að stofna varnarmálaráðuneyti!

Í desember 1924 var sagt frá því að verð á rafmagni hefði hækkað vegna sinnuleysis þáverandi ríkisstjórnar; stjórnar sem ekki fylgdist með þróun samfélagsins.

Skömmu seinna mátti lesa í Morgunblaðinu um stöðu raforkuöryggis eins og hún kæmi til með að verða í byrjun ársins 2025.

Hugmyndir um byggingu ,,Kvíslatunguvirkjun" eiga undir högg að sækja vegna hinna alræmdu ,,umhverfisáhrifa".

Við endum þessa yfirferð á léttari nótum, því nýlega bárust fréttir af því að oddvitar í uppsveitum Suðurlands telja ekki ástæður til að tafið sé fyrir framkvæmdum vegna fyrirhugaðrar Hvamsvirkjunar.

Svona var það en hvernig það verður, vitum við ekki en víst er að stækkandi samfélag þarfnast meiri orku og við vonumst til að ríkisstjórnin sem til varð eftir síðustu kosningar geti komið fram því sem augljóslega þarf að gera.

Deilt um skegg

 Deilt um keisarans skegg? 

Hvenær er flokkur stjórnmálaflokkur og hvenær ekki, það er efinn þessa dagana. 

Morgunblaðið hefur að undanförnu staðið fyrir umræðu um, að ,,Flokkur fólksins” sem svo er kallaður af meðlimum hans, sé ekki stjórnmálaflokkur, heldur félagsskapur fólks sem boðið hefur sig fram til starfa á Alþingi. 

,,Rétt skal vera rétt”, eins og þar stendur en fram hefur komið að vegna þess að flokkurinn umræddi sé ekki skráður sem stjórnmálasamtök, eða væntanlega ,,flokkur” með ,,stjórnmála” nafnbót, þá eigi hann ekki rétt á greiðslum þeim sem flokkar fá, þ.e.a.s. ef þeir ná að fá fulltrúa á Alþingi í til þess gerðum kosningum. 

Hvenær er flokkur stjórnmálaflokkur og hvenær ekki, það er efinn! 

Ritari telur rétt að taka það fram að hann er ekki félagi í umræddum flokki og sér ekki fram á að vera á leiðinni með að verða það. 

Augljóst má vera að hér er verið að deila um keisarans skegg, því flokkur sem nær að fá kosna fulltrúa á Alþingi, hlýtur að vera stjórnmálaflokkur í raun. 

Hvort sem mönnum líkar við Flokk fólksins eða ekki kemur málinu ekki við, að mati þess sem þetta skrifar og hann hefur ekki fram til þessa haft hugmyndaflug til að geta ímyndað sér að mál málanna sé, að orðið ,,stjórnmála”, þurfi að vera kirfilega notað við ,,skráningu” félagsskapar af þessu tagi til að möppuflettarar geti skilið að um stjórnmálasamtök sé að ræða. 

Á Alþingi eru flokkur sjálfstæðis- framsóknar- samfylkingar- pírata- viðreisnar o.s.frv. og enginn hefur efast um það fram til þessa að um stjórnmálflokka sé að ræða og skiptir þá engu hvaða álit menn hafa á umræddum samtökum. 

Það skal tekið fram að undirritaður er ekki lærður í lögum en hvað sem því líður og hvaða álit sem hann hefur á umræddum Flokki fólksins sem svo kallar sig, þá hlýtur hann að vera stjórnmálaflokkur, fyrst hann hefur náð kosningu til Alþingis og náð að vera með ráðherra í ríkisstjórn. 

Lögin segja víst annað, en er það ekki dálítið sérstakt svo ekki sé meira sagt, að flokkur sem ekki er stjórnmálaflokkur megi sitja í ríkisstjórn og á Alþingi og taka þátt í því að setja lög? 

Það skal tekið fram, til að fyrirbyggja misskilning, að ritari er ekki í Flokki fólksins, sem svo kallar sig og er hreint ekki á leiðinni þangað! 

Hugarfarsbreytingin

 


Fyrir nokkru féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur sem varð til þess að fyrirhuguð Hvammsvirkjun í Þjórsá komst í uppnám. 

Það góða í málinu virðist vera það, að dómurinn hefur orðið til þess að óvænt samstaða virðist hafa náðst um að við svo búið megi ekki standa. 

Flokkarnir sem lufsuðust til að vera saman í ríkisstjórn árum saman með svökölluðum ,,Vinstri grænum” án þess að koma nokkru fram sem máli skipti hvað varðar orkuöflun, styðja nú áform um að stíga fram og höggva á kyrrstöðuhnútinn! 

Það er rétt að geta þess sem vel er, og gott að menn átti sig þó seint sé.

Ráðherra orkumála vill og er að láta endurskoða lagaflækjubálkinn, sem fyrrverandi stjórnvöld skildu eftir sig og nú bregður svo við að stjórnarandstaða - fyrrverandi ríkisstjórnarflokkar - stíga fram og vilja að eitthvað sé gert til að leysa þetta klúður. 

Öðru vísi áður brá, þegar flokkarnir sem áður sátu í skjóli Vinstri grænna, létu það gott heita, þó flest sem til framfara horfði sæti fast í kyrrstöðu hins vinstrigræna dellumaks!

Það má hverjum manni vera ljóst að án orku verður illbúandi í löndum nútímans og því er rétt að fagna þessum hugarfarsbreytingum sem fram eru komnar.  

Eftir situr spurningin um hvernig Framsóknarflokkarnir tveir gátu sætt sig við Vinstrigrænu dellurnar í sjö ár, sjálfum sér til vansæmdar og þjóð sinni til skaða?

Höfum líka í huga, að málið sem hér er til umræðu, er alls ekki það eina sem sat fast þann tíma sem hið furðulega ,,samstarf" stóð yfir.

(Klippurnar eru úr Morgunblaðinu.)

Framkvæmd alþingiskosninga

 Það var kosið til Alþingis og við okkur blasir að ekki fór allt eins og það átti að fara, bæði hvað framkvæmdina varðar og niðurstöðuna!

Það hefur verið sagt frá þessu í Ríkisútvarpinu, Morgunblaðinu, Vísir og Heimildinni

Það virðist sem það sé erfiðleikum bundið að fá atkvæði sem greidd hafa verið í alþingiskosningum rétt talin. 

Við munum eftir Borgarnesævintýrinu fyrir nokkrum árum og nú er, sem um pínlega endurtekningu á því sé að ræða, þó með dálítið öðru sniði. 

Og það sem meira er, það er ekki hægt að kenna um sleifarlagi og vondum vinnubrögðum, eins og í Borgarnesi. 

Og ekki heldur ófærð og vondu veðri, eins og búast mátti við í þeim kosningum sem fram fóru fyrir nokkrum vikum. 

Vissulega má segja sem svo, að það sé dálítið galið að halda kosningar á þessum árstíma, þegar allra veðra er von og sem síðan veldur því, að búast má við ófærð sem orðið getur þess að ekki verði komist með atkvæði á talningarstað. 

Ekkert af þessu mun þó hafa valdið vandræðum í þetta sinn, þó tæpt stæði í sumum tilfellum. 

Eins og fram hefur komið í umfjöllun ýmissa miðla, þá sitja nú á þingi, þeir sem ekki hefðu komist inn, ef rétt hefði verið farið með kjörgögn og aðrir eru utan þingsins. 

Enginn efast um að þau gögn sem bárust hafi verið rétt talin, en það liggur í hlutarins eðli að gögn sem ekki berast á talningarstað eru ekki meðhöndluð til talningar og síðan talin! 

Á Alþingi sitja nú þingfulltrúar, sem ekki myndu sitja þar ef allt hafði farið rétt fram.  

Það hlýtur að vera óþægilegt að sitja sem þingmaður undir þeim aðstæðum! 

Það má hverjum manni vera ljóst, að ekki verður við þetta búið hjá þjóð sem stærir sig að því að búa við gamalt og þroskað lýðræði. 

Því gerum við ráð fyrir, að búið verði svo um hnútana að talningarmistök líkt og í Borgarnesi eigi sér ekki stað, en einnig þarf að tryggja að öll atkvæði berist á talningarstaði! 

Við hljótum að reikna með því að hið nýja Alþingi rísi undir því, að bæta svo úr að þetta endurtaki sig ekki. 

Þó það geti verið pínlegt fyrir þingmenn sem sitja á þingi núna að þurfa að bæta regluverkið, þá þeir verða bara að láta sig hafa það! 

Eitt lítið skref...

 Það hefur vekið athygli hve mikill áhugi Trump- feðga er á Grænlandi.

Halldór sér það og við sjáum það flest og það ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart, að ,mikill vilji meira’ og svo er óvitlaust að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur.

Við sem komin eru nokkuð til ára, munum eftir mörgu sem gerst hefur og þó vera kunni að ýmislegt sé farið að gleymast, þá situr sumt eftir!

Þeir vildu Vietnam og nágrenni og margt fleira, því mikill vill meira og fær trúlega aldrei nóg!

Auðvitað vilja þeir Rússland en treysta sér ekki í það.

Og þá er gott að snúa sér að einhverju viðráðanlegra og það hefur verið gert og það þó gasprarinn sé ekki búinn að taka við embættinu eftirsótta.

Hvort hann veldur því þegar til kemur verður tíminn að leiða í ljós, en dapurlegt er það sem ,,verndarar“ vorir bjóða upp á fyrir sjálfa sig og aðra.

Bandaríkin eru stórveldi- herveldi, um það þarf enginn að efast en valdi fylgir vandi og það er ekki sama hvernig farið er með það vald.

Það er svo dæmi sé tekið, æskilegt að þeir sem fara fyrir ,,veldi“ hafi burði til að fara með valdið sem þeir ráða yfir.

Getur verið traustvekjandi að gasprið sé varðveitt í neðstu skúffu, helst læstri og að búið sé að henda lyklinum, því þá líður a.m.k. flestum betur.

Við á litla Íslandi ,,áttum“ eitt sinn trumpiskan gasprara og eigum enn en hann er vel geymdur þar sem hann er núna og okkur líður ágætlega með það að hafa hann þar.

Það er reyndar einn á alþinginu okkar, sem er að reyna að vera slíkur en gengur það frekar illa og satt að segja eru afar litlar líkur til að honum takist að ganga í spor þess sem áður var, því til þess þarf talsverða andlega fimi og af henni á hann ekki nóg.

Utanríkisráðherra fer til Úkraínu

 

Í ýmsum miðlum eru menn að velta því fyrir sér hvernig hægt sé að ljúka stríðinu í Úkraínu.

Um þetta nöturlega stríð er fjallað í mörgum miðlum og t.d. má benda á grein á BBC , þar sem farið er yfir stöðuna og ekki síst hvernig hægt verði að ljúka átökunum.

Nýútsprunginn íslenskur utanríkisráðherra lét það verða eitt sitt fyrsta verk í embætti, að feta í fótspor þeirrar sem verið hefur í hlutverkinu undanfarin ár.

Og á mbl.is, þar sem mynd er af frúnni með starfsbróður sínum austur þar segir:

,,Ut­an­rík­is­ráðherra Úkraínu, Andrí Si­bíha, þakkaði Íslandi fyr­ir tveggja millj­óna evra stuðning við her­gagna­fram­leiðslu Úkraínu á fundi sín­um með Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur í dag.“

Þá segir:

,,Þor­gerður er í Kænug­arði í sinni fyrstu op­in­beru heim­sókn sem ut­an­rík­is­ráðherra Íslands.“

Nýr utanríkisráðherra, blautur á bakvið eyrun í embættinu, lætur það verða sitt fyrsta verk að feta í fótspor þess fyrri, enda af sama pólitíska uppruna.

Samkvæmt úkraínskum miðli sem vísað er til í frétt ruv.is er eftirfarandi sagt (skv. vélrænni þýðingu):

,,Við erum þakklát Íslandi fyrir nýlegt framlag upp á meira en 2 milljónir evra til framleiðslu úkraínskra vopna […].“ segir ráðherrann.

Það þótti gott í upphafi stríðsins að senda Úkraínum hlýjan íslenskan fatnað, auk þess sem bröskurum var boðið að flytja inn til Íslands kjötafurðir sem framleiddar voru með vafasömum hætti og eftir því sem síðar upplýstist, var rekstur sem stundaður var af hollenskum bröskurum, sem fluttu gróðann af framleiðslunni í hollenska banka.

Gróðinn af framleiðslunni varð sem sagt eftir í Hollandi!

Þessar afurðir hafa verið til sölu í sumum verslunum fram undir það síðasta og eru e.t.v. enn og eru væntanlega þeirrar náttúru að geta ekki runnið út á tíma, hugsanlega fyrir tilstuðlan hinna ,,fjölónæmu“ baktería sem fylgja með í kaupunum!

Það væri einnar messu virði, að einhver taki það nú saman, hve miklu fé frá íslensku þjóðinni hefur verið ráðstafað til ráðamanna í Úkraínu.

Gera má ráð fyrir að það sé óraunhæft að fá það upplýst með trúverðugum hætti, hvernig því fé hefur síðan verið varið, af þeim sem við því tóku.

Eplið eikin og gjöfin

 Trump stígur fram með sínum sérstaka hætti þessa dagana og sonur hanns bætir um betur og svo er að sjá, sem Bandaríkjamenn hafi kosið yfir sig forseta ,,sem ekki gengur á öllum“!

Mynd óháð efni.

Frá sumu af þessu er sagt á BBC.COM en þar eru t.d. nefndar langanir Trumps til að komast yfir Grænland, Panamaskurðinn og Kanada!

Nái þetta allt fram að ganga og reynist ekki vera um venjulegt trumpískt blaður að ræða, þá mun heimurinn breytast talsvert í stjórnartíð hins nýja forseta Bandaríkjanna.

Eftir að hafa séð frásögnina af þessum hugrenningum, á sjálfum jóladeginum, leitar hugurinn til þess, hvernig komið sé fyrir hinu mikla ríkjasambandi vesturálfu, hvað varðar vitræna forystu manna í æðstu stöðum.

En að öðru.

Svo sem sjá má hér að ofan, vita Sjálfstæðismenn hvernig best er að fara með almannafé!

Maður líttu þér nær er stundum sagt og að því sögðu, sem sagt var hér um Bandaríkin, þá verður bloggara hugsað heim til litla Íslands.

Þannig er að ritara var gefin bók í jólagjöf, sem rituð er að af fyrrverandi forseta íslenska lýðveldisins Ólafi Ragnari Grímssyni og þó ekki sé komið lengra en það í bókinni en að að hún sé u.þ.b. hálfnuð, þá er lesara dálítið brugðið og átti hann samt á ýmsu von.

Hér er verið að vísa til hruntímans, sem ruggaði hinum pólitíska bát og það svo, að stundum gekk inn í fleyið!

Niðurstaða lesara er, að gott var að fá þessa bók í hendur og nú verður framhaldið lesið af athygli og kappi, en gott er að Sjálfstæðisflokkurinn er kominn í hvíld, ásamt Vinstri grænum og Framsókn en það voru Vinstri grænir, sem fengu enn meiri og verðskuldaðaðri hvíld eftir nýafstaðnar kosningar!

Búið er að mynda ríkisstjórn sem þegar er búin að taka við og hinir útpískuðu og úrvundnu framsóknar og íhaldsmenn fá nú verðakuldaða hvíld; sleikja væntanlega sárin og hugsa sinn gang.

Að því sögðu er ekki annað að sjá sem hinn nýji utanríkisráðherra ætli að feta í fótspor þess fyrri, því eitt fyrsta ef ekki al- fyrsta embættisverkið var að fara til Úkraínu og gefa þarlendum ,,ráðamönnum“ tvær milljónir evra að gjöf til hergagnakaupa!

Þannig að þó eplið hafi fallið af trénu, þá er eðlið það sama.

Eftirmálarnir og hatrið

 

Á CNN.COM er sagt frá því að ísraelskir hermenn geti staðið frammi fyrir lögsókn vegna hernaðar Ísraels á Gaza og hugsanlega víðar.

Í greininni sem hér er vísað til og sem nálgast má á tenglinum, er sagt frá því að almennur hermaður sem einungis gerði það sem honum var sagt að gera, hafi orðið að forða sér frá Brasilíu undan mögulegri málsókn, vegna þátttöku sinnar í hernaði Ísraels gegn íbúum landsins.

Ástandið í Ísrael og Palestínu rekur sig allt aftur til uppgjörs alþjóðasamfélagsins við seinni heimsstyrjöldina.

Heimsbyggðin var í áfalli eftir að framferði nasista var opinberað og viðhorfið var, að tryggja þyrfti Gyðingum land til að búa á og niðurstaðan varð, að þeir ættu rétt á landi þar sem þeir hefðu verið til forna og af því leiddi að stofnað var Ísrael.

Það þótti ekki taka því að taka inn í jöfnuna að á svæðinu bjó fólk, sem hafði búið þar um aldir.

Afleiðingarnar höfum við síðan verið að sjá allar götur síðan í stjórnlausum yfirgangi, og ofbeldi sem beitt hefur verið á báða bóga, en vert er að hafa í huga að aflsmunurinn er afar mikill s.s. sjá má af stuðningi bandarískra yfirvalda við stjórn Netanjahu.

Það hlýtur að vera erfitt að sætta sig við og skilja, að fólk birtist í nútímanum, sem segist eiga rétt á landinu sem forfeður þeirra bjuggu á í fornöld birtist sísvona og krefjist þess ,,réttar" og að nú skuli menn koma sér á brott með sig og sína en megi (ó)vinsamlegast skilja eftir allt ,,sitt" og ef þessu boði verði ekki hlítt, þá muni menn hafa verra af.

Frammi fyrir þessu er staðið og móðurríkið vestan Atlantshafsins sér um að tryggja, að ríkið sem þannig varð til, geti lifað og dafnað.

Og það hefur gengið nokkuð vel.

Að sama skapi hefur þjóðinni sem fyrir er á svæðinu gengið illa; hefur verið hrakin af landi sínu og skemmdarverk unnin á ræktun þeirra s.s. ólífutrjám, sem langan tíma tekur að rækta áður en þau skila afurðum.

Sagan segir að hin vel menntaða þjóð í Ísrael sé búin að koma sér upp kjarnavopnum, eða að minnsta kosti sé í fullum færum um að gera það og því er full ásæða til að óttast.

Reyndar hafa borist af því fregnir að fleiri hafi fiktað við slík vopn á þessu svæði og því er full ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu mála á svæðinu.

Orkuöflun

 Í Heimildinni er grein um orkumálin, sem er hvatning til nýrrar ríkisstjórnar um að standa sig varðandi orkuöflun en eins og kunnugt er, þá er vikið að þeim þætti í samstarfssamningi hinna nýju ríkisstjórnarflokka.

Greinina skrifar Ketill Sigurjónsson og yfirskriftin er Orkutækifæri Íslands á góðu skriði eða í öngstræti.

(Myndinni sem hér fylgir er hnuplað úr grein Ketils en lítillega löguð að forminu.)

Í inngangi að grein sinni segir Ketill, að margt [sé] óljóst varð­andi út­færslu þeirra at­riða sem fjalla um orku­mál í stefnu­yf­ir­lýs­ingu nýrr­ar rík­is­stjórn­ar. „Þarna hræða spor­in,“ skrif­ar hann og seg­ir að mik­il­vægt [sé] að gerð­ar verði breyt­ing­ar á laga- og stjórn­sýslu­um­hverf­inu til að flýta þró­un nýrra orku­verk­efna.

Ritari þessarar síðu hefur oft drepið á, að ekki fari saman að vilja skipta orkunotkun þjóðarinnar sem mest yfir í raforku en vilja á sama tíma ekki afla þeirrar orku og það hvorki með nýtingu vinds nér vatnsfalla, að ógleymdu því að óþarflega hægt gengur sumstaðar að afla hitaorku úr iðrum jarðar. Auk þess hve illa sú orka er nýtt og látin renna til sjávar án þess að ,,vinda“ úr henni afgangsorkuna svo sem unnt er, t.d. með varmadælum.

Varmadælur þurfa rafmagn og þess þarf að afla!

Það verður ekki bæði sleppt og haldið í þessu efni sem fleirum, og því er rétt að hvetja áhugafólk um þessi mál til að lesa grein Ketils sem er bæði lipurlega skrifuð og skýr í framsetningu.

Við erum eftir síðustu kosningar laus úr helsi Vinstri grænna, sem þjóðin hafnaði svo skýrt sem verða mátti, því flokkurinn féll út af þingi, sjálfum sér til vansæmdar en þjóðinni vonandi til blessunar og því ætti að vera mögulegt að þoka málum áfram, þ.e.a.s., ef Sjálfstæðisflokkurinn og ekki síst Miðflokkurinn fást til að stunda málefnalega stjórnarandstöðu.

Ef við viljum verða betur sjálfbær varðandi orku þá þurfum við að afla hennar, svo einfalt er það!

Helsti hemillinn á stjórnmálasviðinu fékk verðuga lausn frá pólitíkinni eins og fyrr sagði og það fengu reyndar ýmsir fleiri af svipuðu tagi sem vermt hafa stóla á Alþingi undanfarin allt of mörg ár.

Eftir situr reyndar fyrrnefndur Miðflokkur, sem fáir vita hvaðan er að koma, eða hvert hann er að fara og trúlega allra síst flokksfélagarnir sjálfir.

Því er það, að nú blasa við tækifærin til að þoka málum áfram í stað þess að um þau sé japlað og jamlað og tuðað, þar til að þau lognast út af.

Við horfum því með björtum augum fram á veginn og vonumst eftir, að stjórnarandstaðan á þingi verði málefnaleg í gagnrýni sinni í stað þess sem stundum hefur verið að standa svo sem unnt er gegn því sem frá ríkisstjórninni kemur og það hvort sem það er þjóðinni til heilla eður ei.

Við vonum það besta en erum búin undir það versta, að fenginni reynslu undanfarinna áratuga!

Flugslys?

 Flugvél fer óvænt af leið og verður fyrir áfalli, sem veldur því að hún hrapar til jarðar.

Ýmist er því haldið fram að vélin hafi lent í fuglahópi og síðan hrapað, eða fullyrt er, að vélin hafi verið skotin niður fyrir mistök.

Hvort heldur sem er, þá er málið sorglegt en svo ótrúlegt sem það er, þá björguðust tveir áhafnarmeðlimir lifandi frá slysinu.

Úkraínumenn halda því fram að Rússar hafi skotið vélina niður, aðrir giska á að lítið þjálfaðir menn hafi orðið fyrir því óláni að skjóta hana niður vegna þess að þeir hafi talið hana vera úkraínskan árásardróna,

Á CNN.COM rekumst við á vandaða umfjöllun um málið og niðurstaðan er að best sé að hrapa ekki að ályktunum.

Eftir situr, burtséð frá því sem varð til þess að vélin hrapaði til jarðar, að hörmulegt slys hefur átt sér stað, hvort sem það er vegna ófriðarins sem geisar eða einhvers annars.

Það er sama hvað gerist í þessu ömurlega stríði, að það er sem engum til þess bærum detti í hug, að gott gæti verið að ræða málin; ræða sig til niðurstöðu, hætta manndrápum og eyðileggingu verðmæta.

Vilji menn leika sér að hergögnum, þá hlýtur að vera hægt að finna til þess einhverja mannlausa eyðimörk í stað þéttbýlis þar sem fjöldi fólks býr.

Þegar þetta er ritað, hefur komið fram í fréttum, að flugvélin hafi af einhverjum óutskýrðum ástæðum villtist af leið og það svo, að hún flaug þvert yfir Kaspíahafið, þangað sem menn voru að reyna að tortíma úkraínskum árásardrónum, sem gera má ráð fyrir að hafi verið fengnir hjá einkavinum Úkraínu.

Putin er búinn að biðjast afsökunar fyrir hönd sinna manna og þjóðar sinnar.

Hér er sem sé enn eitt dæmið um það, að það er alls ekki gefið, að þeir sem ófriði valda sem séu þeir einu sem verða fyrir áföllum þegar reynt er að leysa ágreining með stríðsrekstri.

Ef einhver getur rifjað upp afsökunarbeiðni af svipuðu tilefni frá einkavinum vorum og verndurum í vestri, þá væri það vel þegið.

Gas, gas og gas.... og ekkert gas!

 Það var stór áfangi í dreifingu orku, þegar teknar voru í notkun gaslagnirnar frá Rússlandi um Úkraínu og yfir til vestur- Evrópu.

Mynd úr The Guardian

Fljótlega fór samt að bera á því að ekki yrði um vandræðalausa miðlun að ræða, því gasið sem lagði af stað í lögnunum skilaði sér ekki allt þangað sem til stóð að það færi, þ. e. til vestur- Evrópulandanna sem greiddu fyrir það sem þau fengu…, en ekki fyrir það sem sent var af stað.

Það eru eðlilegir viðskiptahættir að greitt sé fyrir það sem afgreitt er.

Finnst flestum en ekki öllum.

Fljótlega fór að bera á því að það bar ekki saman mælingum á því sem sent var af stað og því sem tekið var út og þegar málið var kannað kom í ljós að boruð höfðu verið göt á lagnirnar og útbúinn aftöppunarbúnaður til að hægt væri að ná sér í gas án þess að borga þyrfti fyrir það.

Götin voru í Úkraínu og þar fór fram hin úkraínska miðlun á ódýrri orku.

Nú bregður nýrra við, því hinir orkuþurfandi Úkraínar hafa tekið upp á því að loka fyrir streymi á gasi til þjóðanna í vestri.

Og þeir gera það um hávetur þegar þörfin fyrir orku til hitunar er mest en þeim sást yfir að hægt er að loka fyrir á fleiri stöðum og nú fæst ekki lengur ókeypis gas úr lögnunum góðu í Úkraínu!

Frá þessu er sagt í ýmsum miðlum, s.s. The Guardian og CNN.COM, og þótt það hafi verið stór áfangi á sínum tíma að geta fengið streymandi gas til upphitunar o.fl. með þessum auðvelda hætti, þá er það ekki svo lengur.

Eftir að ófriðurinn milli landanna færðist í það horf sem verið hefur í seinni tíð, hafa gasflutningarnir með þessari leið verið ótryggir en við því hefur verið brugðist með ýmsum hætti.

Það hljóp svo dæmi sé tekið á snærið hjá bandarískum aðilum, sem sáu sér færi til að flytja út gas til Evrópu með gasflutningaskipum en eins og flestir munu átta sig á, þá er það ekki eins hagkvæmur kostur eins og að gasið streymi einfaldlega um leiðslur.

Og ekki má heldur gleyma því að vistvænskan fýkur út um strompinn á flutningaskipunum!

Úkraínar loka fyrir gasstreymið eftir lögnunum og þakka þannig fyrir hinn vestræna stuðning, sem verið hefur við þá í átökunum milli þjóðanna og sem hefur svo dæmi sé tekið, kostað íslenska þjóð milljarða ef ekki milljarðatugi ef allt er talið.

Fyrir Rússa er þetta trúlega ekki mjög mikið mál því þeir selja gas í margar áttir en fyrir íbúa Evrópu, a.m.k. suma, er þetta vont mál, því orkuverð hefur farið hækkandi og tekið æ meira í pyngjur allra sem gasið nota.

Og svo má ekki gleyma því að nú gera má ráð fyrir því að Rússar loki fyrir streymi á gasi til Úkraínu!

Friðarviðræður í Tyrklandi

  Fréttir hafa borist af því Putin hafi stungið upp á að samið verði um frið milli Úkraínu og Rússlands í Tyrklandi. Rússnesk stjórnvöld leg...