Ekki er allt svart og ,,sleggjan" betri en...?

 Við yfirlit fjölmiðla þennan morguninn rekumst við á þetta, sem væntanlega þýðir, að betra sé fyrir ríkissjóð að taka lán, þ.e.a.s. að kjörin séu betri.

Að fara úr A upp í A+ hlýtur að vera gott, höldum við sem ekkert kunnum í hagfræðikúnstum, en vitum þó að betra er að græða en tapa!

Og síðan segir að fjármálageiri landsins okkar ,,ýti undir traust"!

Við þökkum fyrir upplýsingarnar og vonum að allt sé þetta rétt og að bjart sé yfir peningamálum þjóðarinnar, en áttum von á öðru, eftir að hafa fylgst með fréttum, þar sem allt er það vont og verra en verst, eins og karlinn sagði!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Ekki er allt svart og ,,sleggjan" betri en...?

 V ið yfirlit fjölmiðla þennan morguninn rekumst við á þetta, sem væntanlega þýðir, að betra sé fyrir ríkissjóð að taka lán, þ.e.a.s. að kjö...