Rússneski miðillinn Russya Today fjallar um samningaviðræður sem verið hafa milli Rússa og Úkraína fyrir milligöngu bandarískra stjórnvalda.

Myndin fylgir umfjöllun Russya Today.
Kröfur Rússa eru þær að gengið verði að því að viðurkenna Donbas sem rússneskt yfirráðasvæði og benda þeir á að um það hafi verið kosið á sínum tíma.
Eins og komið hefur fram í fréttum telja úkraínsk ,,stjórnvöld" það engan vegin ásættanlegt sem niðurstöðu.
Rússar fara einnig fram á að ,,afnasistavæðing" verði að veruleika og ætli það komi nokkrum á óvart sé horft til liðins tíma og þess sem um var að vera á svæðinu fyrir innrás Rússa.
Úkraínsk ,,stjórnvöld" hafa ekki viljað gangast við því sem um var að vera á árunum fyrir innrás Rússa sem er bagalegt, því það þarf að horfast í augu við það ástand sem verið hefur (og er?) til þess að hægt sé að bæta og laga.
Fjölmargir sem fjalla um þessi mál, líta á innrás Rússa sem upphafið að ófriðnum sem er fjarri því að vera rétt og gera það án þess að spyrja þeirrar spurningar: hvers vegna gripið var til örþrifaráða.
Ef laga á eitthvað, þarf að horfast í augu við að eitthvað sé að sem þarf að laga og breyta.
Á meðan það er ekki gert finnst engin lausn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli