Fréttamiðlunum CNN, BBC og RT ber nokkuð vel saman um hvað gerðist þegar kúbversk strandgæsla skaut á bát sem kom þar að landi.
CNN.COM segir, að komið hafi til skotbardaga við menn sem komu að landi á Kúbu, menn sem skutu á strandgæsluliða og særðu a.m.k. einn þeirra.

Myndin er fengin úr grein CNN.
Forseti Bandaríkjanna hefur komið því til leiðar að eldsneyti berst ekki til Kúbu frá Venesúela eins og áður, þ.e.a.s. áður en Bandaríkin frömdu valdarán í því landi.

Önnur mynd úr sama miðli sem sýnir kúbana spila dómínó við erfiðar aðstæður.
Það sem er sérstakt við fréttaflutninginn af smyglbátnum, er að ólíkt því sem búast mætti við, m.v. það sem undan er gengið, er að frásögnum miðlanna ber mikið til saman um það sem gerðist.
Rússar hafa verið uppteknir í öðru að undanförnu en því að sinna Kúbu eins og flestir vita og því er takmarkaða hjálp þaðan að fá fyrir Kúbverja.
Gera má ráð fyrir að senn sjái fyrir endann á þeim önnum, þ.e.a.s. þegar íslenskar valkyrjur og valkyrjar eru búin að ná fram sigri sínum á rússneska birninum.
Björninn sá hefur verið talsvert seigur undir tönn fyrir þá sem að honum hafa sótt og skiptir litlu hvort þar er um er að ræða nasista eða franska naflajóna eða einhverja aðra.
Rússnesku sendiráði í Reykjavík var smellt í lás af fyrrverandi utanríkisráðherra sem virðist hafa talið það vænlegan kost til að stilla til friðar á milli Rússa og Úkraína.
Enn sem komið er, er ekki er svo að sjá, sem það hafi verið rétt metið að það væri góð leið til friðar austur þar, og þaðan af síður veisluhöldin og skrípalætin í kringum hittinginn í Hörpu sællar minningar né röltið á Þingvöllum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli