Við höldum okkur á Íslandi, skoðum glefsur úr pólitíkinni, sem er skrítin tík, eins og einhver maður sagði.
Það virðist vera ,,heitt“ í Borgarstjórn Reykjavíkur, hnútuköstin ganga þar á víxl og fulltrúi Framsóknarflokksins varð fyrir því að líkja fulltrúum Sjálfstæðisflokksins við apa, sem eru reyndar skemmtilegar skepnur og skildar okkur mönnum!
Þeir hafa það fram yfir okkur að þeir nota ekki greind sína til að smíða óþverravopn til að strádrepa, limlesta og eyðileggja.
Ef til vill getum við ýmislegt af þeim lært, ef að er gáð og þeir byggja t.d. ekki borgir fyrir ,,alvitringa“ til að leggja í rúst; huga bara að sínu eftir því sem þeir best geta og láta aðra að mestu leiti í friði.
Í Morgunblaðinu gerðist það, að fjallað er um forsætisráðherra íslensku þjóðarinnar á málefnalegan hátt:

Kristrún bendir á það sem frekar lítið hefur verið rætt þ.e. að í landinu okkar eru fleiri en þeir sem mest er um rætt og atvinnuleysi, er að mestu bundið við fólkið sem hingað hefur komið til að leita að betri stað til að búa á.
Þegar margir flytja til lands þar sem fámenn þjóð býr má reikna með að af því geti hlotist vandi vegna aukins álags á innviði samfélagsins, sem fá ný vandamál til að glíma við.
Landið var opnað upp á gátt á síðasta kjörtímabili af góðu fólki sem taldi sig vera gott og það hefur svo sem gerst áður í sögu íslensku þjóðarinnar að hingað hafi komið fólk sem var á flótta frá ógn sem að því steðjaði á heimaslóðum.
Og sagan segir að því hafi verið misjafnlega tekið en því viljum við helst gleyma!
En hvað sem því líður, þá er vandi fyrir litla, fámenna þjóð að taka við fjölda fólks með ólíkan bakgrunn og sem er frá öðrum menningarheimi.
Úr því þarf að vinna og ef til vill þarf að hafa einhverja hemla á hverjir fái að koma, en það er sannarlega auðveldara að benda á en að segja hvernig skuli að staðið.
Katrínarstjórnin sjálfstæðíska, vildi að því eð virtist vilja bjarga öllum, hvort sem hægt væri að gera það sómasamlega eða ekki og það reyndir og reynir á innviði.
Það er auðveldar að gagnrýna en að benda á hvað mætti betur fara, því þarfir fólks eru eins misjafnar og það er margt.
En við þurfum að reyna að bæta úr og laga það sem ekki gengur og kannski að taka ekki við fleira fólki en við getum með sæmilegum hætti ráðið við að annast og hlúa að.
Það er ekki viðunandi að atvinnuleysi sé 10% hjá innflytjendum en ,,nær ekkert“ hjá þeim sem hingað hafa flutt, væntanlega að brýnni nauðsyn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli