Þeir voru til sem vöruðu við því, að raunhæft væri að höfn á þessum stað yrði nothæf til lengdar og nú hefur það sannast að svo er.


Landeyjahöfn
Staðan er ekki góð, því að ekki hefur tekist að halda hafnleysunni á Landeyjasandi opinni, sem veldur því að sigla þarf til Þorlákshafnar í staðinn, sem reyndar er ekki verri kostur en var áður en Landeyjahöfn varð til.
Þessu til viðbótar er önnur aðalvél ferjunnar Herjólfs biluð og því er ekki hægt að sigla með sama hraða og venjulega, sem kemur sér vissulega illa þegar siglingarleiðin er lengri.
Að því sögðu, þá er ekki verra að fara milli lands og Vestmannaeyja frá Þorlákshöfn og jafnvel betra, því sé ætlunin t.d. að fara á höfuðborgarsvæðið einhverra erinda, þá er akstursleiðin styttri.
Það er sem sé styttri og greiðara að fara um Þrengslin frá Þorlákshöfn til Faxaflóasvæðisins og Suðurnesjanna (Keflavíkurflugvallar), og sé ætlunin að fara austur um, þá er greið leið að fara fyrir neðan Selfoss og síðan þaðan til austurs.
Þannig er hægt að losna við hina ömurlegu umferðarteppu sem er í gegnum Selfoss, sem reyndar horfir til betri vegar, þ.e.a.s. þegar hin nýja brú fyrir ofan Selfoss kemst í gagnið.
Og eins og við vitum, þá kann Framsóknarflokkurinn lausn á þessum vanda sem öðrum, því fyrrverandi formaður flokksins fann draumaprins í Ameríku sem hafði lausn á þessum vanda og eflaust mörgum öðrum!
Sá ætlaði að stinga í samband við íslenskt rafmagn, hátækni töfrabor sem átti að búa til göng til Vestmannaeyja með því að bræða bergið, en eins og oft er með framsóknarboðskapinn, þá var um töfrabrögð að ræða og ritari minnist þess t.d. ekki að hafa séð hvað átti að verða um hið bráðna berg sem yrði til í þessu merkilega gangagosi!
Hvað það var sem kom fyrir aðra aðalvél Herjólfs veit ritari ekki, en alvarlegt hlýtur það að vera eitthvað talsvert fyrst ekki er hægt að gera við vélina og illt er fyrir Vestmanneyinga að búa við þá stöðu sem nú er.
Unirritaður hefur nokkrum sinnum farið milli lands og eyja, bæði frá Þorlákshöfn og Landeyjahöfn.
Það gekk vandræðalaust og það verður ekki fullyrt hér, hvort ferjan sem farið var með, frá og til Þorlákshafnar, var gangmeiri en sú sem nú siglir fyrir hálfu vélarafli þar á milli.
Komin er af stað vinna við að kanna berglögin sem fara þarf í gegnum til að gera göng (með gamla laginu) milli lands og Eyja en ef sú vinna leiðir til þeirrar niðurstöðu að það sé gerlegt að bora göng þá yrði það væntanlega góð lausn.
Við búum í eldvirku landi og því þarf að fara gætilegar en ef svo væri ekki.
Það gaus á hafsbotni og þá myndaðist Surtsey, og það gaus í Vestmannaeyjum sjálfum, sem seint gleymist, og það gaus í Eyjafjallajökli og Heklu.
Katla gaus síðast 1918 sé rétt munað og ef til vill er einhverjum gosum gleymt, en við verðum að treysta vísindamönnunum varðandi það hvort raunhæft sé að gera jarðgöng milli lands og Vestmannaeyja.
Töfraborinn Framsóknar er tæpast inn í myndinni!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli