Framsókn leysir vandann!

 Það er hugur í þingmönnum Framsóknarflokksins og þeir eru á spretti, til að ná Spretthópnum þeirra Svandísar Svavarsdóttur og Steingríms Sigfússonar.

Þau hafa komist að því að búgreinar á Íslandi eru:
Sauðfjárrækt, Nautgriparækt og Svínarækt, og sú síðastnefnda kemur til sögunnar sem einskonar síðbúin viðbót undir lok skrifanna, sem gera má ráð fyrir að komi þannig til, að þingmennirnir hafi allt í einu minnst þess, að hafa fengið sér svínahamborgara á jólunum, eða beikon og egg..., nei frekar beikon án eggja, því egg eru að öllum líkindum, ekki á borðum á heimilum þessara þingmanna.

Grænmeti snæða þau líklega ekki heldur, því það er ekki landbúnaður!

Alifuglakjöt er að sjálfsögðu ekki talinn vera matur hjá Framsókn og þaðan af síður landbúnaður!

Svínakjöt, jú það má kannski fá sér smá ögn af því!

Svona aðeins BARA.

Það góða við greinina er að þingmennirnir eru búnir að finna gott ráð til að leysa rekstrarvanda landbúnaðarins í þeirri viðskiptaþvinganakreppu sem búið er að koma á laggirnar, eða a.m.k. eins og þau skilgreina íslenskan landbúnað.

Lausnin felst í því ,,að komið verði á tímabundinni undanþágu frá virðisaukaskatti til frumframleiðenda" eins og þar segir.

Nánari skýring er svohljóðandi á framsóknsku:

,,Á öll innlegg bænda er lagður virðisaukaskattur og varðandi þær kjötgreinar, sem talað er um hér að ofan, snýr hugmyndin að því að komið verði á undanþágu frá virðisaukaskatti, sem kemur sem útskattur á framleiðandann, til tveggja ára. Þar sem bændur greiða þá ekki útskatt af sínu innleggi en á móti fá þeir innskattinn endurgreiddan, eins og gengur. Þannig má tryggja allt annan rekstrargrundvöll."

Já svona ,,eins og gengur".

Og eins og hver maður sér, þá er vandamálið leyst fyrir uppáhaldsbúgreinar Framsóknarflokksins og skattakerfið, og engin ástæða er til að efast um snilldina sem í þessu felst fyrir framsóknarlandbúnaðinn!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Slagurinn um stólinn og konurnar tvær

  Slagurinn um stólinn og konurnar tvær Í Sjónvarpi allra landsmanna var viðtal við frambjóðanda sem ekki var ráðalaus og virtist einlægur v...