Jakkaföt og
væntanlega menn til að vera í þeim, öryggismyndavélar, lúxuskerrur,
öryggisverðir og Harpa og er þá eflaust ekki allt upptalið. Og fyrst það ágæta
hús er nefnt, þá er vandséð hvernig þjóðin hefur getað komist af, áður en það
var byggt.
Ekki má
gleyma þjálfun þeirra sem jakkafötin eiga að prýða. Hún er partur af galskapnum
og rétt er að taka fram, að í krafti jafnréttis og ekki bræðralags, koma til
með að fylla upp í fötin bæði karlar og konur, því enginn efi er á, að haldið
verður vel á jafnréttisspilunum.
Þjálfun
mannskapsins verður í takti við umfangið sjáum við - og af því má ráða að
þjálfunin sé bæði góð, mikil og vel útfærð.
Við sjáum
hér að ofan nokkur skjáskot, af fréttum Morgunblaðsins af því sem um er að vera
í Reykjavíkinni, höfuðborg allra Íslendinga og gott ef ekki heimsbyggðarinnar
líka, a.m.k. þann tíma sem húllumhæið stendur yfir.
Ekki þó heimsbyggðarinnar allrar, því vesenið snýst
,,aðeins“ um eitthvert Evrópuráð og alls ekki heimsbyggðina. Evrópuráð sem er
ekki er nema nafnið eitt, nema að búið sé að breyta álfunni.
Upplýst er,
að víðlendasta landið í álfunni er ekki með í galskapnum vegna alþekktrar
óþolinmæði sinnar við nágrannaríki og því er það, að sendiherra Rússlands
skrifar grein í Morgunblaðið og sá er
mátulega kátur, svo sem við er að búast.
Við sjáum
líka, að þeir eru til sem láta sér fátt um finnast og ,,þjónusta sölu
rússneskra afurða” hvað sem allri múgæsingu líður og banni íslenska
stórveldisins á skyrsölu til hins forna Garðaríkis. Hvort bannað er líka að
selja þangað rjóma vitum við ekki en verið getur að Rússar framleiði sitt skyr
og að rjómann fá þeir úr sinni rússnesku mjólk.
Netárásir eru í miklum blóma vegna fundarins og aldrei að
vita nema einhverjir 21. árs gamlir guttar taki til við að streyma
gáfnastraumnum vítt um veröld alla, líkt og þegar hefur gerst í guðseigin-
landi.
Helsta
fréttin er algjörlega utan við þetta allt saman, en samt allrar athygli verð.
Þar er sagt frá því, að til standi að byggja fjöldann allan af kjarnorkuverum í
löndum Evrópuráðsmanna og eins og við má búast, stendur til að verin framleiði
raforku íbúunum til heilla.
En þar
stendur hnífur í hinni rússneskri kú, því eldsneytið þarf að sækja þangað þ.e. til Rússlands,
þannig að til að hugmyndin gangi upp, virðist þurfa að róa Zelensky og félaga, að ógleymdum rússneskum stjórnvöldum.
Hvernig
snillingunum á Evrópuráðsfundinum gengur að koma öllu þessu heim og saman
verður fróðlegt að fylgjast með.
Þverstæður
og andstæður, fýluköst og almenn uppköst eru þeirra sérgrein og því gerum við
ráð fyrir að kastað verði upp á það, hvort vesturhluti Evrópu skuli verða
rafmagnslítill heimshluti, eða knúinn áfram af rússneskri orku.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli