Þegar áföll verða, er gott að eiga bakhjarl

 Þegar áföll verða í búrekstri geta þau verið af ýmsum toga.

Skjámynd 2023-07-31 060758Veður getur hamlað uppskeru, snjóalög eyðilagt girðingar, veikindi og slysfarir geta orðið á búfénaði og er þá ekki allt upp talið sem getur valdið, bæði miklu og litlu tjóni.

Skemmst er að minnast veðuráhlaups sem varð á Norðurlandi fyrir nokkrum árum og olli því m.a., að jafnvel hross fenntu í kaf og sum þeirra drápust. 

Tjón getur einnig orðið vegna sjúkdóma í búfénaði, sjúkdóma sem geta valdið því að skera þarf niður heilu hjarðirnar.

Þar getur verið um að ræða t.d. það sem mest hefur verið rætt um að undanförnu, þ.e. riðu í sauðfé, en fleira getur komið til eins og bakteríusmit sem getur orðið til þess að farga þarf stórum hjörðum.

Síðast þegar bloggari vissi, giltu ákveðnar reglur um bætur úr ríkissjóði, til sauðfjárbænda vegna niðurskurðar vegna riðu.

Við sjáum samt að bændur sem þurft hafa að skera niður, eru óhressir með það sem þeir fá til að bæta skaðann, en um það gilda þó ákveðnar reglur eins og fyrr sagði.

Áður var til svokallaður ,,Bjargráðasjóður" og enn mun hann enn vera til að nafninu til að minnsta kosti.

Að mati þess sem þetta ritar var það óheillaskref að láta sjóðinn verslast upp í stað þess að efla hann.

Af því ráðslagi - að hann var látinn verslast upp - erum menn að súpa seið sem ekki hefði þurft að gera og því þarf að endurlífga sjóðinn og styrkja með framlögum frá búgreinunum sem stundaðar eru, en líka með tillagi frá ríkissjóði.

Matvælaframleiðsla er hverri þjóð nauðsynleg og matvælaframleiðsluþjóðin íslenska, ætti ekki að vera í miklum vanda varðandi það, að skilja þau sannindi.

Spilverkið, aðstoðin og lífið

 

Skjámynd 2023-07-30 071444Hér höfum við okkur til upplyftingar teikningu úr Heimildinni (sem er lengst til vinstri), en til frekari glaðnings höfum við líka tveggja síðna grein um hvernig staðið er að þróunaraðstoð.

Það er seðlabankastjórinn sem spilar á flautun að  því sem virðist og gera má ráð fyrir að hann sé að reynað að koma verðbólgupúkanum í skilning um að hans sé ekki óskað. 

Hvort spilverkið virkar eins og ætlað er vitum við ekki fyrr en á reynir, en reynslan kennir okkur að búast ekki við miklu.

Í greininni sem er til hliðar við þann sem spilar á flautuna er farið yfir hvernig þróunaraðstoðin kemur út í raun og niðurstaðan er að:

Fimmta hver króna sem varið er í aðstoðina verður eftir hjá okkur sjálfum og er talin með sem framlag þjóðarinnar til þróunaraðstoðar.

Það er með öðrum orðum nokkuð gott viðskiptamótel, að standa í þeim rekstri og ekki spillir fyrir að allt er það af góðmennsku gert til að hjálpa þeim sem bágstaddir eru.

Í vefmiðlinum DW sást í morgun að flóttamenn í Þýskalandi eru hafðir á góðum stöðum og bera sig vel, þó blaðamönnunum hafi greinilega litist mátulega vel á það sem þeir sáu, en allavega eru draugabæir við aflagðar kolanámur, skárri kostur til að búa við, en að eiga von á sprengju í skallann hvar sem verið er eða farið.

Sá sem lítið hefur sættir sig við að hafa dálítið meira, gerir ekki miklar kröfur og í þessu tilfelli, þakkar fyrir að fá að lifa.

Samkvæmt því sem fram kemur í grein blaðamanns Heimildarinnar er það nokkuð góður kostur að stunda aðstoð við bágstadda og samkvæmt hinum þýska miðli eru bágstaddir tilbúnir til að sætta sig við lítið, frekar en ekki neitt og ekki síst lífið frekar en dauðann.

Flokkar riða og rísa

 Í Heimildinni er fjallað um stöðuna í íslenskri pólitík eins og hún blasir við þessa dagana.

Skjámynd 2023-07-29 060620Fyrst er að nefna grein þar sem rætt er við Ólaf Þ. Harðarson undir yfirskriftinni ,,Líklegast að Samfylkingin sé að sópa til sín lausafylginu", þar sem Ólafur kemst að þeirri niðurstöðu að Samfylkingin sé að fá einna mest af fylgisaukningu sinni frá Framsókn og Vinstri grænum.

Önnur grein um sama mál segir frá því að Samfylkingin sé langstærst og að fylgi við Sjálfstæðisflokkinn hafi aldrei verið lægra.

Sú þriðja af þeim greinum sem hér eru til umræðu, ber yfirskriftina ,,Brúnin þyngist á sjálfstæðismönnum sem uppnefndir eru ,,Karlakórinn grátbræður" og er þar verið að vísa til þess, að nokkrir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins hafa viðrað skoðanir sínar um stöðu mála.

Svo vikið sé fyrst að þeirri síðastnefndu, þá mun uppnefnið vera rakið til greinar sem formaður Miðflokksins skrifaði og verður það seint talið góð viðmiðun og ættu sjálfstæðismenn ekki að þurfa að hafa miklar áhyggjur af þeim orðum.

_ _ _

Samfylkingin hefur um nokkuð langan tíma verið að sækja stöðugt á í könnunum og ekki er ótrúlegt að það megi að hluta rekja til formannsskiptana sem áttu sér stað á landsfundi flokksins. Kristrún kemur fersk inn í stjórnmálin og ætti að hafa vit á fjármálapólitík, en á það hefur skort í stjórnmálunum. 

Haldi flokkurinn því flugi sem hann er á nú um stundir, má gera ráð fyrir að næstu kosningar verði sögulegar; gamlir flokkar fái langþráð frí og nýir og ferskari vindar muni blása um hinn pólitíska völl.

Að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson uppnefni þá sem stigið hafa fram úr röðum sjálfstæðismanna að undanförnu, er óhætt að telja hinum framstignu til hróss.

Sigmundur klauf Framsóknarflokkinn sem frægt varð eftir fund sem haldinn var í Háskólabíói, rigsaði með slætti miklum yfir á Hótel Sögu - sem nú er liðin saga og til vitnis um glæfralegar ráðstafanir fjármuna þeirra sem vanastir eru að fá aura sína frá ríkinu,

Svo gæti farið að Framsóknarflokkurinn gufaði upp í sveitamennsku sinni og ýmsu poti liðinna ára og spurning hvort það væri mikill söknuður að því þó svo færi.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur ramman reip að draga, sitjandi í ríkisstjórn sem er undir forystu flokks sem fyrst og fremst þrífst á draumórum, sem eru víðsfjarri raunsæi.

Þyturinn sem verið hefur að undanförnu er vegna furðulegrar framgöngu ráðherra VG í hvalveiðimálinu, þar sem hópur fólks var sviptur vinnu sinni án raka, en vegna tilfinninga.

Að sitja í ríkisstjórn með flokki af því tagi sem Vinstrigræningjar eru, er ekki vænlegt til vinsælda þegar til lengdar lætur. Þar á bæ ríða húsum hégiljur úr ýmsum áttum og aldrei að vita hver þeirra kemur næst upp úr sekknum.

Þetta hlutskipti hefur Sjálfstæðisflokkurinn kosið sér eftir Borgarnes- kosningaúrslitin alræmdu, þar sem niðurstaðan varð þannig að menn sem sitja áttu á þingi vissu ekki hvort þeir voru að koma eða fara.

Einn var svo skekinn eftir slaginn, að hann ákvað að gerast sjálfstæðismaður og þótti sumum mannsbragur að, en öðrum ekki!

Ætli sé ekki bara best að kjósa Framsókn var jarmað í kosningabaráttunni, en nú er svo komið að einna líkast er sem riða, af einhverju tagi sé búin að stinga sér niður í pólitíkinni.

Ráðning og lína

 

Skjámynd 2023-07-25 082806Í Morgunblaðinu er sagt frá óvenjulegum ráðningarsamningi innan þjóðkirkjunnar, þar sem undirmaður biskups réði biskup til áframhaldandi starfa.

Þegar ritari var til sjós gengu málin þannig fyrir sig að ráðningastjóri útgerðanna réði menn til starfa og engum hefði dottið í hug að háseti myndi ganga frá ráðningu skipstjóra, eða dagmaður í vél hefði ráðið yfirvélstjóra.

Nú eru komnir nýir tímar með alls kyns blóm í haga og þá getur farið svo, að hásetinn ráði skipstjórann o.s.frv.

Á öðrum stað í blaðinu spyr þingmaður Miðflokksins, hvort svokölluð ,,Borgarlína” megi kosta hvað sem er?

Svarið mun liggja í augum uppi fyrir flesta, nema Miðflokks séu, en þar á bæ eru tölur ekki það sem skiptir máli, nema stundum, ef til vill og kannski, og jafnvel aðeins þegar farið hefur verið öfugu megin frammúr rúmi sem stendur upp við vegg.

Margir muna eftir rándýrum grjótflutningum sem formaður Miðflokksins stóð fyrir á sínum tíma, engum til gagns.

Þó er rétt að taka fram að brasinu fylgdi nokkur atvinnusköpun fyrir þá sem í því stóðu, en að öðru leyti var um tilgangslaust brölt að ræða.

Svarið við spurningu miðflokksformannsins er því:

Borgarlína má ekki kosta hvað sem er!

Búr fyrir karlfugla

 Gott og skynsamt fólk hefur fundið það út að ekki sé gott fyrir fugla að búa í búrum, nema páfagaukar séu, eða finkur, eða önnur slík stofustáss.

Hvort leyfilegt er að halda mýs í búrum eins og einu sinni þótti fínt, er ekki vitað af þeim sem þetta ritar.

Hænur mega sem sé ekki vera í búrum, því hið góða fólk hefur haft af því spurnir úr hænsnaheimi, að hænunum leiðist búrsetan.

Skjámynd 2023-07-24 103133Sunak hinn breski hefur lítið af þessu frétt, enda áhugamál hans á öðru sviði, ef svo má segja; hann er sem sé í mannheimum, að einhverju leiti að minnsta kosti og því er landbúnaðarvesen honum frekar framandi.

Því er það, að hann hefur tekið upp á því að láta útbúa búrheima fyrir menn - og tökum eftir því að menn eru karlmenn í þessu tilfelli - og vefritið Heimildin upplýsir okkur um hina nýju búrheima.

Sunakbúrið er stórt og mikilfenglegt, enda búrhaldarinn stórhuga og í kassanum ætlar hann að geyma nokkur hundruð karla, sem lítið munu hafa sér til yndis annað, en aðra karla í karlheimi Sunaksins.

Fimm hundruð skulu þeir vera karlarnir sem í búrinu fá að búa og engar konur verða þar, ef dæmið gengur upp.

Hvor það gengur eftir, á eftir að koma í ljós, en römm er sú taug sem rekka dregur í hinar fögru konur mannheima og hætt er við, að reynt verði, að komast í laumuspili bæði um borð og frá borði.

Hvað sem því líður hefur hinn spengilegi Sunak séð ljósið í flóttamannagöngunum og séð leið til að leysa flóttamannavandamálið með því að búa til annað vandamál enn stærra og sem torveldara verður viðureignar:

Hann ætlar sem sé, að kynferðisflokka hluta mannheima í tilraunaskyni. Hvort tilraunin lukkast mun framtíðin leiða í ljós.

Kappinn fær alla vega 1 fyrir viðleitni til að leysa vandann, þrátt fyrir að hætt sé við að verið sé að búa til annan vanda, sem bæði sé bæði stærri og meiri!

Lausaganga sauðfjár

        Í Bændablaðinu sem kom út 20/7/2023 er ítarleg grein um lausagöngu sauðfjár.



Blaðamaður Bændablaðsins tekur saman ítarlega grein um lausagöngu sauðfjár í nýjasta eintaki blaðsins og ræðir við bændur, lögfræðiunga, sveitarstjórnarmenn og forystumenn í Bændasamtökunum.
Niðurstaðan virðist vera sú að málið sé flókið og erfitt og allt að því óleysanlegt og að sauðfjárbúskapur verði ekki stundaður á þann veg, að sauðfjárbóndinn ,,gæti síns fjár".
Vegagerðin þarf að girða með vegum og setja niður ristahlið víðar en gert hefur verið sé rétt skilið, en það sérkennilega er, að við sem búum í sveit höfum veitt því athygli, að vegagerðin gerir einmitt þetta, þ.e. girðir með vegum, þar sem þeir fara í gegnum lönd og/eða á landamerkjum, en að auki leggur hún til efni til viðhalds girðinganna.
Vandamál vegna beitar sauðfjár er að mestu úr sögunni á því landsvæði sem sá sem þetta ritar býr á, þeir sem halda sauðkindur virðast að mestu hafa tekið upp þann sið að beita því á land sem þeir annað hvor eiga, eða hafa umráðarétt yfir.
Á árum áður var hins vegar ætlast til þess að kindur fengju að bíta gras þar sem þætti best að vera og jafnframt var þess krafist að landeigendur skiluðu þeim í hendur eigenda að grasáti loknu. Sá ,,siður" er aflagður eftir því sem ritari veit best, en svo er að sjá sem það sé að einhverju leiti svæðisbundið, því enn er deilt um svokallað ágangsfé, þ.e. fé sem gengur í löndum nágranna sauðfjárbænda.
Prestur nokkur á Austfjörðum tekur upp hanskann fyrir þá sem beita vilja lönd annarra og kallar þá sem ekki vilja kindur í landi sínu, ágangsfólk í Fésbókarpistli. 
Pistillinn er nokkuð langur og auðséð að málið liggur þungt á guðsmanninum. 
Hvort sá í efra tekur undir málflutninginn er ekki vitað en líklegt er að borðorðaboðskapurinn þvælist fyrir presti og sé það rétt, verður hann trúlega að eiga það við yfirboðara sinn, þann sem boðað er oftast, en líklega ekki alltaf, að menn skuli leggja trúnað á og sækja styrk til.
Pistilinn geta menn nálgast sér til fróðleiks á Fésbókinni, eins og áður var getið, en rétt er að taka fram að þangað verður tæplega sótt fræðsla um hvernig hægt sé að auka þekkingu sína á umburðarlyndi og kristilegu siðgæði.

Eitt er sagt og annað ósagt



Ömuleikinn, hryllingurinn og skelfingin, sem hellst hefur yfir úkraínsku þjóðina á síðustu árum og áratugum er verri en með orðum verði lýst, en tekur þó ekki fram úr ýmsu því sem sagan greinir okkur frá.

Flest þekkjum við orðið rödd Zelensky eftir að hafa heyrt hana í fréttatímum um margra mánaða skeið. Skiljum fæst nokkuð af því sem þar er sagt, en trúum því sum, að fréttamaðurinn, sem fer síðan með orð hans, fari rétt með.

Til eru þeir sem láta sér ekki nægja einfaldleikann og vilja kafa dýpra og á Youtube má nálgast umfjallanir sem hér að neðan eru slóðir inn á og sé eitthvað meira að marka það sem þar kemur fram, en það sem fram hefur komið víða annarstaðar, er svo sannarlega ekki allt sem sýnist.

Rétt er að vara við því að í þáttunum er sögð:

Saga sem ekki virðist mega segja og jafnframt saga, sem ekki hefur mikið verið sögð áður.

Það er vissulega dapurlegt að svona sé komið fyrir landinu sem um er að ræða, og að hluti þjóðarinnar hafi séð sér þann kost skárstan, að flýja land; forða sér frá öllu sínu, forða sér frá sinni heimaslóð.
Forða sér frá ríki og samfélagi, þar sem það hefur lifað og búið, samfélagi sem nú er afar illa komið fyrir.
Rétt er að vara við því, að áhorf á samantekt Scott Ritters vekur engan fögnuð, frekar depurð.


Hér verður ekki fjallað um þættina meira að sinni, en þeir eru nokkurt innlegg í dapurlega sögu sem við Íslendingar höfum dregist talsvert inn í, fyrir tilstuðlan ríkisstjórnar okkar og annarra aðila og sumra og vonandi flestra, vel meinandi.

Árekstrar og ófriður er ekki nýr í þeim löndum sem um er að ræða og gildir þar jafnt um, hversu langt sem farið aftur í sögunni.

Þar hafa utanaðkomandi þjóðir æði oft átt hlut að máli, ýmist með beinum hernaðarafskiptum, eða á annan hátt, allt frá Víkingum til Gengis Kan, Napóleons og Hitlers og er þá ekki allt upp talið!

Nú bætast við ný átök með manndrápum og eyðileggingu, með stuðningi utanaðkomandi þjóða og þ.á.m. Íslands!

Hver hefði átt von á því?



 

Nóg er til að taka af

  Umhverfis orku og loftlagsráðherra skrifar pistil sem birtist í Morgunblaðinu í dag (22/8/2026) undir yfirskriftinni: ,, AGS: Ríkisfjármál...