Orkuskipti: Hvað er hægt og hvað er ekki hægt?


 ,,Svona er þetta", er gott nafn á þætti sem fjallar um staðreyndir og þáttur með því nafni er í boði Ríkisútvarpsins á netinu.

Fyrir Alþingi liggur tillaga um að breyta til og færa virkjanakosti úr ,,verndarflokki" í ,,biðflokk" og síðan í ,,nýtingarflokk" og um allt það spjall og skrif, er fjallað í grein í Kjananum.

Tekist hefur ágætlega að koma upp kerfi til að hindra byggingu virkjana, drepa virkjunarmálunum á dreif og svæfa svo sem unnt er, hugmyndir um nýjar og nauðsynlegar virkjanir.



Í þættinum sem er frá Ríkisútvarpinu og sem hér er með í tengli, er rætt um orkumálin á raunhæfan og yfirvegaðan hátt, allt frá kjarnasamruna til kjarnaklofnings og til þeirrar orkuöflunar sem við könnumst betur við hér á landi, þ.e.a.s. nýtingu fallorku vatns og jarðhita.

Farið er yfir og rætt um svokölluð orkuskipti, sem stjórnmálamenn hafa verið duglegir að ræða um, en kannski minna rætt um hvað sé hægt að gera í því efni, enda ekki mikið um að til þingmennsku veljist fólk af raunvísindasviði.



Sum okkar rekur eflaust minni til að hafa heyrt menn úr stjórnmálastétt ræða fjálglega um að Ísland geti haft forystu varðandi orkuskiptin og má þar t.d. minnast viðtals við innviðaráðherra þann sem nú er, þar sem hann ræddi um landið sem vænlegan kost, til að hafa forgöngu um að taka upp flug með rafmagnsflugvélum.

Hvort þar var átt við innanlandsflug eða millilanda, munum við ekki, enda tekur því ekki að leggja slíkt á minnið.

Þeir sem áhuga hafa á að fræðast um þessi mál ættu að hlusta á viðtalið í þessum þætti, því það skilur eftir umtalsverðan fróðleik um orkumálin og fleira þeim tengt.

Myndir eru af Alnetinu og af vef Rúv.


Bresta, brostið, brestur

Í Fréttablaðinu á dögunum sáum við viðtal við Trausta Hjálmarsson sauðfjárbónda þar sem hann lýsti því yfir að forsendur búgreinarinnar væru að bresta og svo sjá má hér að neðan, steig líka fram innviðaráðherrann í viðtali í Morgunblaðinu og hélt því fram að forsendurnar væru brostnar.

Þegar svona er komið er sjálfhætt, en gallinn er sá að við höfum heyrt eitthvað þessu líkt margoft áður frá bændunum sem búgreinina stunda, en að ráðherra ,,innviða", hvað sem það nú annars þýðir nákvæmlega, gefi út dánarvottorðið, skyndilega og óviðbúið, er nýlunda. Við þurfum samt ekkert að óttast í bráð, því yrfið nóg er til af kindakjöti, mun meira en þjóðin er tilbúin að torga og engar líkur eru til að skortur verði næstu ár. Afkoman hefur verið tryggð með greiðslum úr ríkissjóði til þessa og gera má ráð fyrir að svo verði áfram, að minnsta kosti svo langt sem séð verður fram í tímann. Að ráðamenn íslensku þjóðarinnar muni ekki tryggja að til sé kindakjöt, er ólíklegra en að Sólin sjálf komi til með að slökkva á sér. 

                                                                 

Í Bændablaðinu sjáum við svo, að mikil framþróun hefur orðið í kúabúskapnum og að svo er komið að ekki er finnanlegt nema eitt fjós með fötumjaltakerfi, kerfi þeirrar tegundar sem ritari þekkir fyrst frá veru sinni í sveitavist í Leiráarsveit  fyrir meira en sextíu árum. 


,,Bærinn okkar" er þáttur í blaðinu, þar sem sagt er frá bæ í sveit og að þessu sinni er það Seljatunga í Flóahreppi og sannarlega er fallegt þangað heim að líta.

Matarkrókurinn er fastur liður í blaðinu og í þetta sinn eru það kjúklingavængir sem teknir eru til og matreiddir. 

Jákvæðu fréttirnar eru þær að verð á korni er á niðurleið, en það rauk upp við innrás Rússa í Úkrainu.

Þá er sagt frá Spretthópnum skjótráða sem matvælaráðherra Íslands rauk á harðaspretti til að stofna vegna vanda sauðfjárbænda og nautgripa. Augu manna fyrir því að fleira væri matur en feitt kjöt munu óvænt hafa opnast, því við höfum haft spurnir af, að verið sé að leita upplýsinga um stöðu fleiri búgreina en þeirra sm hér er getið. Það fer samt ekki mjög hátt í umræðunni, nema að ,,innviðaráðherra", er búinn að gefa út það sem kalla má dánarvottorð sauðfjárræktarinnar. 


Bændaskólinn í Ólafsdal var stofnun síns tíma og af honum fer góð saga. Hvort þau sem á dögum voru þegar sú stofnun var og hét, hefðu geta séð það fyrir sér, að aðalbúgrein þess tíma yrði komin á vonarvöl vegna óvæntra hækkana á kjarnfóðri og tilbúnum áburði og hvoru tveggja innfluttu frá öðrum löndum árið 2022 verður að telja ólíklegt. 

Auðvitað eru það alifuglabændur, svínabændur og nautgripabændur, sem í erfiðleikum lenda í þeirri stöðu sem nú er er, en engum kemur á óvart að formaður Framsóknarflokkins átti sig ekki á því.

Áhugaverð síða er kynnt til sögunnar í Bændablaðinu, þar sem þróun kjötmarkaða er kynnt með glöggum og skýrum hætti. Trúlega mun ráðherra innviða kynna sér málin með lestri hennar.

Forsíða Bændablaðsins er skreytt með þessari fallegu mynd af naukálfi og miðað við það sem áður er komið fram, undrumst við að ekki sé frekar um að ræða mynd af sauðkind, en við blasir eftir örlitla umhugsun, að skýringin er að formaður Framsóknar ritstýrir ekki blaðinu.


 

Pétur, Katrín, Putin og.fl.

Pétur mikli, Katrín mikla o.s.frv.

Það er af nægu frá fyrri tímum að taka í þessu stóra ríki sem fyrir nokkrum öldum var ekki einu sinni til. 

Menn og konur (sem eru líka menn samkvæmt mínum gamla skilningi), hafa ratað í allskonar hremmingar á leiðinni og margoft hefur verið ráðist á Rússland og er skemmst að minnast innrásar Þjóðverja og bandamanna þeirra í seinni heimsstyrjöldinni. 
Og þar komu úkraínar við sögu.

Fortíðin er fortíð og í besta falli til að læra af og enginn þarf að vera hissa, eða telja það frétt, þó menn, hvort sem þeir heita Putin eða eitthvað annað, haldi því á lofti sem glæstast er úr fortíðinni.

Þetta er haft eftir Putin í lok fréttarinnar:  
,,“Our economy will be open — whoever isn’t interested will be robbing themselves,” Mr. Putin said. “It’s impossible to fence off a country like Russia, and we are not planning to put up a fence like that around us ourselves.”"

Það eru víst ekki miklar líkur til að Biden hefði orðað þetta betur, en báðar þjóðirnar, Bandaríkin og Rússland, hafa stóra böggla úr fortíðinni til að burðast með og ráðamenn beggja ættu að hafa fortíðina til hliðsjónar í ákvarðanatöku sinni.

https://www.nytimes.com/2022/06/09/world/europe/putin-peter-the-great.html?smid=url-share

Fréttir dagsins

 Landbúnaðurinn stendur höllum fæti.

Staðið höllum fæti
_ _ _ 

Til stendur að Norðurskautsráðið komi saman til fundar, en að þessu sinni án Rússa, sem er frekar óheppilegt, því þeir fara með formennskuna og eiga stærsta hluta lands að norðurslóðum.

Heilsast og fundað á meðan allt lék í lyndi

En vegna þess að þeir réðust í það verkefni að bjarga héruðunum í Donbas frá sífelldu áreiti frá Úkraínu eru þeir úti í kuldanum í alþjóðamálum. Það jákvæða er, að svo er að sjá sem verkefninu sé að ljúka, en það neikvæða er, að vestrænar þjóðir með Bandaríkin í broddi fylkingar eru óhress með lausnina og hyggjast vopna Úkraínu með vopnum sem dugi til að skaða Rússland sjálft.
_ _ _

Stærsti bílafarmur sögunnar kemur til Þorlákshafnar og mun vera átt við sendingu til Íslands. Þorlákshöfn er að sanna sig sem flutningahöfn, svo sem sjá má fari menn þangað í heimsókn. Það hefur ritari þessa bloggs gert og sér svo sannarlega ekki eftir því. 
 
Siglt inn í Þorlákshöfn
_ _ _ 

Orkulindir þjóðarinnar eru umfjöllunarefni teiknarans Halldórs í Fréttablaðinu. Við sjáum að flækjustigið er mikið og fer versnandi.

Fjársjóður í kistu
_ _ _

,,Það er vont og það versnar" var eitt sinn góður slagari en  það venst seint og það versnar bara með eilífum þrætum og kærum svo sem sjá má hér að neðan.

Kærugleði í nýjum hæðum.
_ _ _

Og að lokum fiska þau sem sitja á spítu og ræða málin í þaula og út í hið óendalega yfir Lýðhyggjulæknum, sem Halldór dregur svo snilldarlega fram í mynd sinni.

Fiskað í læk, málin rædd til yfirborðsins og smellt á læk.

Myndir fengnar úr Morgunblaðinu og Fréttablaðinu þann10.6.2022.

Framsókn leysir vandann!

 Það er hugur í þingmönnum Framsóknarflokksins og þeir eru á spretti, til að ná Spretthópnum þeirra Svandísar Svavarsdóttur og Steingríms Sigfússonar.

Þau hafa komist að því að búgreinar á Íslandi eru:
Sauðfjárrækt, Nautgriparækt og Svínarækt, og sú síðastnefnda kemur til sögunnar sem einskonar síðbúin viðbót undir lok skrifanna, sem gera má ráð fyrir að komi þannig til, að þingmennirnir hafi allt í einu minnst þess, að hafa fengið sér svínahamborgara á jólunum, eða beikon og egg..., nei frekar beikon án eggja, því egg eru að öllum líkindum, ekki á borðum á heimilum þessara þingmanna.

Grænmeti snæða þau líklega ekki heldur, því það er ekki landbúnaður!

Alifuglakjöt er að sjálfsögðu ekki talinn vera matur hjá Framsókn og þaðan af síður landbúnaður!

Svínakjöt, jú það má kannski fá sér smá ögn af því!

Svona aðeins BARA.

Það góða við greinina er að þingmennirnir eru búnir að finna gott ráð til að leysa rekstrarvanda landbúnaðarins í þeirri viðskiptaþvinganakreppu sem búið er að koma á laggirnar, eða a.m.k. eins og þau skilgreina íslenskan landbúnað.

Lausnin felst í því ,,að komið verði á tímabundinni undanþágu frá virðisaukaskatti til frumframleiðenda" eins og þar segir.

Nánari skýring er svohljóðandi á framsóknsku:

,,Á öll innlegg bænda er lagður virðisaukaskattur og varðandi þær kjötgreinar, sem talað er um hér að ofan, snýr hugmyndin að því að komið verði á undanþágu frá virðisaukaskatti, sem kemur sem útskattur á framleiðandann, til tveggja ára. Þar sem bændur greiða þá ekki útskatt af sínu innleggi en á móti fá þeir innskattinn endurgreiddan, eins og gengur. Þannig má tryggja allt annan rekstrargrundvöll."

Já svona ,,eins og gengur".

Og eins og hver maður sér, þá er vandamálið leyst fyrir uppáhaldsbúgreinar Framsóknarflokksins og skattakerfið, og engin ástæða er til að efast um snilldina sem í þessu felst fyrir framsóknarlandbúnaðinn!

Hani, krummi, hundur, svín og allt hitt

 



Landbúnaðurinn er ofarlega á blaði í Morgunblaði dagsins fjórða júní árið 2022.

Steingrímur Sigfússon er dreginn upp á svið til að leysa vandann sem skapast hefur vegna hækkandi verðs á aðföngum til framleiðslu landbúnaðarvara.

Stofnaður hefur verið ,,Spretthópur" sem hann á að stýra í mark og sé textinn lesinn, þá er landbúnaður: sauðfjárrækt og kúabúskapur.

Hækkanir á áburði, kornvöru, olíu og öðrum rekstrarvörum koma samkvæmt þessu ekki við pyngju annarra en þeirra bænda sem þessar búgreinar stunda, að mati ráðherrans sem skipaði spretthópinn.

Það væru mikil og góð tíðindi ef sönn væru. En það eru þau vitanlega ekki.

Allar landbúnaðargreinarnar eru undir í þessu máli og vonandi átta spretthlaupararnir sig á því, þó ekki sé rétt að reikna með að svo sé, sé tekið mið af viðhorfum flokkanna þriggja sem ríkisstjórnina mynda til málaflokksins.

Ekki reiknum við með því, að þau sem í ríkisstjórninni sprettast séu svo fjarri raunveruleikanum að þau


telji, að þegar áburður, olía, varahlutir og allt hvað heiti hefur hækkar í verði, að þá hækki ekki framleiðslukostnaður annarra landbúnaðarafurða en sauðfjár og kúa.

Er fólkið í ríkisstjórninni svo aftarlega á merinni að það sé nær alveg öruggt: að nefndarfólkið í Spretthópnum renni aftur af gripnum þegar slegið verður í og spretturinn tekinn?

Sé svo, er þá ekki réttast að athuga málið betur, áður en slegið verður í klárinn? Snúa við og fara frá rásmarkinu og byrja að nýju?

Við gerum ráð fyrir að ráðherrann hafi örlitla tengingu við landbúnað, en samt ekki næga og þurfi því leiðbeiningar.

Mðað við grein sem birtist í Morgunblaðinu eftir framkvæmdastjóra Bændasamtakanna ætti ráðherrann að geta fengið slíka leiðsögn.

Greinin er eftir  Vig­dísi Häsler og í yfirskrift segir:

„Ísland verður að tryggja sig með því að auka birgðahald af fóður­hrá­efn­um í land­inu með því að eiga stærri varala­ger líkt og Norðmenn og Finn­ar.“

Á þetta hefur áður verið bent og er ritara þessara lína minnistætt þegar mætur maður, ræddi málið við hann eftir fund í Bændahöllinni og benti á þessa staðreynd, varðandi Finnland. Hér sjáum við að Vigdís nefnir Noreg líka til sögunnar.

Vigdís segir í grein sinni:

,,Hinn 18. mars sl. skipaði for­sæt­is­ráðherra starfs­hóp um nauðsyn­leg­ar birgðir til þess að tryggja lífsaf­komu þjóðar á hættu­tím­um. Starfs­hóp­ur­inn sem er enn að störf­um, m.a. vegna þess að beðið var niður­stöðunn­ar frá LBHÍ, vinn­ur að gerð áætl­un­ar um söfn­un upp­lýs­inga um birgðastöðu á hverj­um tíma, leiðir til að bregðast við óá­sætt­an­legri birgðastöðu, skömmt­un og stýr­ingu á út­hlut­un mik­il­vægra birgða og tryggja þar með nauðsyn­lega birgðastöðu með hliðsjón m.a. af sam­starfi inn­flytj­enda og fram­leiðenda á vör­um sem telj­ast nauðsyn­leg­ar. Starfs­hópn­um er því ætlað að áhættu­greina fæðuör­yggi þjóðar­inn­ar út frá lang­tíma­áhrif­um en ekki bregðast við stöðunni eins og hún er núna.“

Og síðan:

 ,,[…] erfitt að fá upp­lýs­ing­ar um magn áburðar eða fóðurs fyr­ir búfé hér á landi." Og spyr síðan: ,,Og eigum við næg­ar birgðir af olíu til lengri tíma en 90 daga?“

Hún nefnir líka að við höfum ekki upplýsingar um hvað til er í landinu af áburði, korni og kjarnfóðri og eins og við mörg vitum eru þessar vörur notaðar til landbúnaðarframleiðslu, auk margs annars og gleymum ekki olíunni.

...

Og svo stolið sé svolitlu meiru úr hinni ágætu grein Vigdísar Häsler, þá er það margt fleira en föstudagspitsan sem gæti verið gott að huga að.

Hér í lokin skal minnt á það, að betra er að klárinn sé vel girtur þegar sprettur ,,Spretthóps“ ráðherranns verður tekinn og ekki verra að skepnan sé a.m.k. bandvön og sæmilega járnuð.

Höfum í huga að þó hrossið geti verið fengið úr íslenskri hjörð, þá þarf æði margt innflutt til að skepnan sé reiðfær, s.s. skeifur, fjaðrir, leður, ístöð, beisli og mél og eflaust gleymist eitthvað í þessari upptalningu!

Landbúnaður er fjölbreyttur og svo sannarlega margt fleira en kindur og kýr!
(Myndir eru fengnar úr Morgunblaðinu)

Frelsið, stríðið og dauðinn.


Í Evrópu komu saman til fundar menn og  konur og báru sig saman um hvernig hægt væri að valda íbúum álfunnar sem mestum skaða á sem allra skemmstum tíma.

Fundurinn endaði vel að sögn og eftir þrætur hik og tafs, komust menn að þeirri niðurstöðu að best væri að valda Rússum sem mestu tjóni og að það yrði best gert, með því að skaða aðra íbúa álfunnar en þó Rússa sem allra mest.

Þeir eru reyndar eftir því sem best er vitað í Evrópu, en það gleymdist í hita leiksins.

Er þessi niðurstaða lá fyrir, fór hver til síns heima og undu þar sæmilega glaðir við sitt, en ekki þó alveg, því eftir var að sannfæra fólkið - sem átti að taka á sig refsinguna sem ætluð var hinum voðalegu Rússum, en eru alls engir Rússar-, um þörfina og ánægjuna, sem það myndi finna fyrir í hjarta sínu, þegar það fengi um þriðjungi minna af eldsneyti á bílinn sinn fyrir hverja evru, en áður hefði verið.

Það var líka fremur óljóst hvernig hinir vondslegu Rússar myndu taka niðurstöðunni, en í hjarta sínu vonuðu hinir fínu herrar og frúr, að rússneskir ráðamenn og hermenn, tækju þessu sem hvatningu um að ljúka ætlunarverki sínu í Úkraínu sem fyrst: þ.e. að ,,afnasistavæða" landið. 

Og þar sem fundarfulltrúar töldu sig hafa traustar úkraínskar heimildir fyrir því að nær engir nasistar væru í landinu, þá yrði þessu lokið bæði fljótt og vel.

Þrír mánuðir í heilli styrjöld er náttúrulega ekki mikið, að minnsta kosti ekki borið saman við Vietnam stríðið bandaríska á árunum. En það var náttúrulega svo langt í burtu frá frelsurunum sem verða mátti og er því á engan hátt sambærilegt!

Úkraína er eins og við vitum orðið, af fréttum, nánast hérað í eða út úr Rússlandi og því ætti ekki að vera mikið mál að hreinsa það af fyrrnefndri nýnasista óværu.

Hvernig verkið gengur vitum við satt að segja fremur lítið um, því helsta heimildin eru kvöldmessur forseta landsins sem sagt er hýsa hina nýju nasista. 

Í fyrsta lagi skiljum við ekki það sem sagt er í ræðunni og í öðru lagi treystum við ekki þýðingunni; vitum ekki hvaðan hún er fengin og hver það var sem snaraði henni yfir á hið ástkæra og ylhýra.

Fréttir af málinu hefjast gjarnan á orðunum ,,talið er“ og ,,haft er eftir“ og að því fengnu vitum við það, að í fréttum er það helst, að talið er og haft er eftir einhverjum, að eitthvað hafi gerst svona eða hinsegin.  

Þessu til viðbótar var sá siður innleiddur í frelsinu vestræna að ritskoða svo sem hægt væri allar fréttir sem bærust frá þeim sem vinna að frelsun Donbas svæðisins í Úkraínu. Þær fréttir hafa reyndar tekið á sig allskyns útúrdúra og króka, sérstaklega í upphafi leiðangursins, þannig að stundum hafa menn ekki vitað eitt né neitt um, hvað fyrir mönnunum vekti.

Ráðist var á höfuðborgina, Chernobyl kjarnorkuverið fornfræga og ýmislegt fleira, sem við sem ekki skiljum hernaðartækni botnum ekkert í. 

Að vísu höfðu borist af því fréttir að úkrainar væru farnir að fikta við kjarnorkuvopn, en að höfuðborgin og aflagt kjarnorkuver séu góðir staðir fyrir svoleiðis fikt, er ekki gott fyrir okkur sem ekki höfum þekkingu á kjarnorkufræðum að átta okkur á. 

Vitum þó að við vildum ekki að verið væri að fikta við svoleiðis í stofunni í næsta húsi!

Fyrst leit svo út, að til stæði að ,,frelsa“ allt landið undan nasistunum og þar með sjálfu sér, en seinna kom í ljós að svo var ekki og því var líkast, sem menn hefðu ekki verið búnir að ákveða hvað gera skyldi.

Eftir japl, jaml og fuður var sem sagt ákveðið af stefna í suður, þangað sem óværan væri, en láta uppsprettuna eiga sig –, í bili að minnsta kosti.

Þar eru við í dag, olíu og bensínlítil og auralítil, en brosandi út að eyrum af ánægju yfir að geta lagt okkar lóð á vogarskál réttlætisins, með því að kafa dýpra ofan í peningaveskin í hvert sinn sem fylla þarf tankinn á heimilisbílnum, kaupa í matinn og ferðast sér til ánægju.

Allt er það þó hjóm eitt í samanburði við það sem þjóðirnar tvær sem stríða þurfa að fást við, þar sem sonurinn kemur ekki heim úr leiðangrinum, eða ef hann kemur heim, þá er hannn skaðaður á sál og líkama, ef hann þá skilar sér yfirleitt.

Svo ekki sé nú minnst á öll þau sem um sárt eiga að binda í þessu stríði sem öðrum, vegna þess að þau voru ekki á réttum stað á réttum tíma, og ráfa nú um lemstruð á sál og líkama, ef þau eru ekki endanlega hætt að hreifast. 

Því þannig er komið fyrir mörgum að þau eru ekki lengur á meðal okkar og jafnvel ekki einu sinni vitað hvar líkamar þeirra eru.

Þannig eru stríð, að mannlegar hörmungar liggja í stríðsslóðinni hvert sem litið er og við hugsum til allra þeirra barna sem aldrei verða fullorðin, eru horfin, eða eru fötluð á líkama eða sál.

Hvers eiga þau að gjalda? 

Ekki höfðu þau neitt til sakar unnið sem getur réttlætt það, að þau láti lífið eða lemstrist í ógeðslegu blóðbaði styrjaldar.

Aftur og aftur og aftur, munum við samt horfa á atburði sem þessa endurtaka sig! 

Þrátt fyrir tvær heimstyrjaldir og sífellt endurteknar staðbundnar styrjaldir. Alltaf skal það gerast aftur að menn geti ekki komist að sanngjörnum niðurstöðum í ágreiningi sínum.

Hvenær verður komið nóg?  

Nóg er til að taka af

  Umhverfis orku og loftlagsráðherra skrifar pistil sem birtist í Morgunblaðinu í dag (22/8/2026) undir yfirskriftinni: ,, AGS: Ríkisfjármál...