Áferð, halli og spádómar

 



Við flettum Morgunblaðinu þennan morgun, líkt og svo oft áður og það væri synd að segja að ekki hafi blaðið frá einhverju að segja.

Fyrst er þar að taka að falleg ljósmynd er af því þegar alþingismenn rölta til kirkju með forsetann og biskupinn í fararbroddi og ekki nóg með það, því ekki verður betur séð, en forsætisráðherrann og matvælaráðherrann gangi í takt!

Fjármálaráðherrann hefur lagt fram fjárlagafrumvarp og boðar hallarekstur og ekki verður betur séð en ráðherrann halli dálítið sjálfur, sem vonlegt er, því gert er ráð fyrir 46 milljarða halla. 

Skýringarmynd er í blaðinu með myndum, ritum, teikningum, krumsprangi og stimpli, þannig að allt er þetta sæmilega skothelt og ,,áferðarfallegt“ eins og við sjáum á öðrum stað.

Það ,,reynir á sáttfýsi stjórnarliða á nýhöfnu þingi“ segir á einum stað í blaðinu og líklega er það vegna þess að ,,boðað er aukið aðhald í rekstri ríkisins“, en aðhaldið er ekki nóg og því er spáð í framtíðina með því að rýna í nýfundna hauskúpu, sem við reiknum með að sé fundin í ráðherrabústaðnum.

Sáttfýsi eiga stjórnarliðar næga, svo sem sést hefur og t.d. hefur ráðherra matvælanna mátt ganga fram sem hann, þ.e.a.s. hún, hefur viljað og samið reglugerðir í erg og gríð og sér ekki fyrir endann á.

 Vonandi tekst þeim að finna sannleika og sáttfýsi í hinum nýfundnu beinum.

Venjulegir Jónar og Gunnur vita það eitt að betra er að eiga fyrir salti í grautinn en að eiga það ekki og vegna þeirra ísköldu sanninda á það ágæta fólk stundum ekki gott með að átta sig á hvert forustulið þjóðarinnar er að fara í allri sinni samanþjöppuðu og fjölflokkuðu góðmennsku.

Góðmennskan birtist þessa dagana t.d. í samþjöppun skóla en útþenslu ýmissa annara hluta sem minni þörf er fyrir.

En allt er þetta bara ágætt og við bíðum spennt eftir framhaldinu í von um að sáttfýsin fari ekki út í öfgar og þó:

Kannski er bara best að flokkarnir þrír sameinist og rífist þar með á bakvið lokaðar dyr okkur hinum til bóta, því það er alltaf sárt að sjá góða vini rífast.


Flakkað um fréttir



 Það kennir margra grasa sé kíkt á fréttir liðinna daga.

Ekið var á kúahóp og nokkrar kýr drápust, vísindamenn hlutu styrki. Óli Björn hættir óvænt, aðsend grein birtist um jafnrétti og lýðræði, ekki er vitað um áform Títans(?), það lítur vel út með kornrækt á Suðurlandi og Evrópumót iðngreina fór fram í Póllandi svo nokkur dæmi séu tekin.

Hver stóra fréttin er, er ekki gott að segja, en sú jákvæða er, að kornræktin skuli vera að blessast og þá er það líka jákvætt að iðngreinar séu virtar svo sem vert er og haldið um þær mót.

Að ekið sé bifreið á hóp dýra, hver sem þau eru, er sorglegt, bæði vegna gripanna sem fyrir slysinu verða, en einnig vegna ökumannsins sem fyrir því varð að valda slíku slysi.

Og að haldið sé mót iðngreina er ánægjulegt og vel við hæfi að það sé gert í Póllandi, þar sem iðnaður hefur um langan tíma verið í hávegum hafður.

Um Títan vitum við lítið sem ekki neitt og víst væri gott að vita meira um það sem fleira, en einhvertíma var því haldið fram að það sem maður vissi ekki, skaðaði mann ekki!

Hvort það er alls kostar rétt er vissulega hægt að deila um, en stóra fréttin er að Óli Björn skuli vera að hætta og það óvænt. 

Menntastofnanir á hrakhólum

 Skólahrakningar.

Það er hart sótt að framhaldsskólastiginu þessa dagana og einkum virðist það vera vera starfsnámið sem sótt er að, af hálfu ríkisins.

Skjámynd 2023-09-11 074052Svo dæmi sé tekið, mun vera búið að tvístra Vélskóla Íslands þannig að hluti námsins er í Hafnarfirði, en hinn hlutinn er enn í Sjómannaskólanum í Reykjavík.

Því hefur verið hvíslað, að ástæðan sé að pólitísk gæludýr eigi sér þá ósk heitasta, að komast yfir hina glæsilegu byggingu við Háteigsveg.

Byggingu sem hýsir Stýrimannaskólann og Vélskólann (að hluta) og að draumurinn sé að taka hana undir hótelhald.

 Hvort það er rétt mun tíminn leiða í ljós.

Nemendur eyða nú fé og dýrmætum tíma í ferðalög milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.

Minningin um hugmyndir um að koma Vélskólanum fyrir í gömlu verslunarhúsnæði austur á Höfða, gott ef ekki fyrrverandi bílasölu, lifir enn í huga þeirra sem kynntu sér hana.

Allt átti það að vera á einni hæð og skólastofunum stóð til að raða umhverfis vélasalinn, sem vera átti í miðjunni.

 Hvernig það samræmdist óskum um góða hljóðvist í bóknámsstofum, er ekki ljóst.

Trúlega voru hugmyndirnar ekki betur lukkaðar en svo, að málið sé að mestu gleymt.

Lausnin mun nú vera fundin suður í Hafnarfirði.

Nemendum utan af landi verður trúlega fundin gisting í Mosfellsbæ eða Seltjarnarnesi í hagræðingarskyni.

Sameining menntastofnana

 

Sameining framhaldsskóla

Það er ekki ofsagt að tillaga ráðherra menntamála, um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á sama stað hafi vakið viðbrögð.

Undirritaður hefur leyft sér að grínast með málið, sem er ekki rétt að gera sé það skoðað svo sem vert er.

Meiningin með hugmyndunum er örugglega góð, en hvort þær eru framkvæmanlegar á eftir að koma í ljós.

Í Morgunblaðinu birtist í dag (8.9.2023) aðsend grein eftir Þorstein Gunnarsson sem er fyrrv. rektor Há­skól­ans á Ak­ur­eyri og tek­ur þátt í að leiða stýri­hóp mennta- og barna­málaráðherra um efl­ingu fram­halds­skól­ans.

Greinin er málefnaleg og skýrir nokkuð vel það sem um er að ræða og þar segir m.a.:
,,[John] Dewey benti á fyr­ir meira en einni öld síðan er aðgrein­ing eða tví­hyggja milli bók­náms og verk­náms úr­elt. Í nú­tíma sam­fé­lagi eig­um við að draga úr þess­ari til­gangs­litlu flokk­un í bók­nám og verk­nám. Í framtíðinni ætti svo til hver fram­halds­skóli hér á landi að geta boðið fram margs kon­ar sam­sett nám, t.d. bók­nám, iðn- og starfs­nám og list­nám, svo nokkr­ar teg­und­ir náms séu nefnd­ar, sem býr ungt fólk sem best und­ir framtíðina. Hér er þó ekki um al­gild mark­mið að ræða og taka þarf til­lit til styrk­leika hvers fram­halds­skóla, sögu, hefða, staðsetn­ing­ar og hag­kvæmni í rekstri.“

Vel getur verið að það aðgreining náms líkt og verið hefur sé ekki með öllu rétt og verður undirrituðum hugsað til þess, er hann stundaði sitt nám til starfsréttinda. Þá sem stundum áður urðu ýmsar breytingar  á námi til starfsréttinda til vélstjórnar.

Reglan hafði verið að fyrst tóku menn ,,sveinspróf“ eftir nám í iðnskóla og starfsþjálfun hjá meistara. Síðan breyttist það og gefinn var kostur á að fara þá leið að fara í svokallað námsskeið og síðan þrjá bekki í Vélskóla Íslands, en full starfsréttindi fengust að loknu sveinsprófi í járniðnaðargrein og starfsþjálfun á vettvangi.

Síðan var þessu breytt í ,,áfangakerfi“, sem lauk með fullum réttindum, að lokinni þjálfun í starfi um tiltekinn tíma.

Í grófum dráttum var þetta svona, en vel getur verið að eitthvað hafi gleymst í þessu þróunarferli.

Sveinsprófinu lauk undirritaður að lokum í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti með ,,fullum“ réttindum, enda stafsþjálfuninni þá löngu lokið á starfsvettvangi.

Þessar hugleiðingar eru hér settar niður eftir lestur greinar Þorsteins sem eru allrar virðingar verðar, að mati ritara.

Menntamálin þurfa að vera í sífelldri þróun og hvers vegna eru MA og VMA ekki sama stofnunin sem gefur nemendum kost á námi sem greinist í ýmsar áttir að lokum?

Tenglar á greinar um þessi mál sem lesnar voru og kveiktu hugleiðingar: Menntun í framhaldsskóla, jafnrétti og lýðræði (mbl.is); „Efling“ framhaldsskóla - Vísir (visir.is); Illa í­grunduð á­form Ás­mundar - Vísir (visir.is); Van­hugsuð sam­einingar­á­form - Vísir (visir.is)

Tunnukúr og baklega

                Í nokkra daga hefur mátt fylgjast með fólki stunda stöður og legur.

 Skjámynd 2023-09-06 072603Annarsvegar í tveimur hvalveiðiskipum, en baklegan var á malbikaðri götu, þar sem karlmaður átti  notalega stund með sjálfum sér og hugsaði til hvala sem synt höfðu í kringum bát hans er vélin bilaði á siglingu til Íslands frá Færeyjum.

Hvalirnir voru að sögn forvitnir og vildu fylgjast með því sem verið var að bauka í þeim undarlega fiski sem á sjónum flaut.

Sagan segir að konurnar í tunnunni hafi beðið þar í von um að þær myndu sjá aftur hina glæsilegu lögreglupilta sem höfðu heimsótt þær í tunnurnar.

Voru reyndar svo ótilkippilegir að þeir fengust ekki til að stíga skrefið til fulls og fara í tunnurnar til þeirra sem í þeim voru, enda þrengsli nokkur á því sérkennilega heimili.



Liggjandinn fór síðan á liggjandanum, líklega orðinn leiður á legunni sem enginn veitti athygli, nema einhver blaðamaður með myndavél sem átti leið hjá.

Unir nú hver við sitt og hvalveiðibátarnir eru farnir til veiða eftir nýrri reglugerð sem samin var í bráðræðiskasti í bráðræðisráðuneyti sem frægt er orðið af endemum.

Sameining og smalamennska

 Þessa dagana er það sauðkindin sem er tákn sameiningarinnar, að minnsta kosti í hugum sauðfjárbænda. Þeir dvelja senn á fjöllum í góðum félagsskap og 

Skjámynd 2023-09-04 071011sameinast um að koma kindum sínum til byggða, en á fjöllum hafa þær dvalið um skeið sér til eflingar og þroska.

Enginn Eyvindur og engin Halla hafa verið þar kindunum til hrellingar og vonandi hefur skepnunum vegnað vel en ekki er víst að gróðrinum þar uppi hafi liðið eins vel, en við vonum það þó og vísum til góðrar tíðar í sumar.

Eitt sinn á unglingsárum - um það leiti sem The Kinks héldu ógleymanlega tónleika í Austurbæjarbíói - fengum tveir vinir og hvorugur í fríi, að fara til haustsmölunar á sunnlenskri heiði og minningin lifir í okkur báðum enn. Rifjuðum það og tónleikana líka upp fyrir nokkrum vikum austur í Svíaríki og höfðum gaman af. Vonandi gengur smalamennskan vel og við óskum þess öll að bæði menn og skepnur komi heil heim.

Sameiningar.

Það eru ekki flokkar sem nú skal sameina, af flokknum sem er að hverfa og Skjámynd 2023-09-06 072508ekki sveitarfélög heldur né fyrirtæki, heldur skólar og ef að líkum lætur skal það allt fara á ,,háskólastig", því nú er enginn skóli með skólum nema háskóli sé og er óhætt að segja að minnimáttarkenndin brjótist út með ýmsum hætti.

Ekki er reyndar svo að ætlunin sé að allt nám skuli fara á háskólastig, þó eðlilegt sé að menn haldi það sé litið til þróunar síðustu ára.

Búnaðarskólar eru flestir ef ekki allir komnir á það stig og finnst mörgum það sérkennilegt ef ekki er hægt að stunda landbúnað öðruvísi en vera með slíka pappírsgráðu að baki sér og eftirfarandi fáránleika sá bloggari fyrir sér og skellti inn á samskiptamiðil og sem hér fylgir með lítið eitt lagfærður:

,,Sagan segir að til standi að sameina Kokkaskólann Vélskólanum, enda sé það eðlilegt því í öllum almennilegum eldhúsum sé eldavél og þar sem allir þurfi að borða, verði það Vélskólinn sem verði sleginn af.

Kettir setja stundum upp ,,stýri" og því sé eðlilegt að Stýrimannaskólinn verði sameinaður Landbúnaðarháskólunum, því þar hljóti að vera eitthvað kennt um ketti og stýri."

Framtíðardraumurinn sé síðan sá, að sameina í framhaldinu allt það sem áður var sameinað og jafnvel meira til.

Að þessu mun standa stjórnmálaflokkurinn, sem sameinaður er um það eitt, að hverfa samkvæmt skoðanakönnunum, þ.e.a.s. VG.

Að þessum hálfkæringi rituðum, skal það tekið fram, að alls ekki er víst að það sé nema gott eitt um það að segja að Menntaskólanum og Verkmenntaskólanum á Akureyri sé breytt í fjölbrautaskóla, því líklegt er, að með því mætti spara peninga.

Holur minnisvarði

 Göngin sem gerð voru undir Vaðlaheiði stytta leiðina milli Akureyrar og 

Skjámynd 2023-09-04 080314Húsavíkur um 11 mínútur eftir því sem segir í Heimildinni.

,,Vaðla­heið­ar­göng stytta vega­lengd­ina milli Akur­eyrar og Húsa­víkur um 16 kíló­metra. Ef keyrt er á 90 km/klst. með­al­hraða stytta göngin því leið­ina um ell­efu mín­út­ur. Enn er hægt að keyra gömlu leið­ina um Vík­ur­skarð og sleppa þannig við að greiða í göng­in, en vetrarfærð á þeim fjalla­vegi getur verið erf­ið og hann er stundum ófær."

Auðvelt er að benda á önnur jarðgöng sem betur hefðu þjónað tilgangi og getað skilað arði fyrir þjóðina og nærsamfélag sitt.

Vaðlaheiðargöngin voru vinstrigrænt og framsóknar- áhugamál og niðurstaðan er taprekstur líkt og margir óttuðust.

Til samanburðar má geta þess, að stundum er ófært um Hellisheiði og jafnvel Þrengsli líka, en fáum hefur dottið í hug að raunhæft sé að gera göng undir þá heiði.

Undirritaður hefur aðeins einu sinni heyrt talað fyrir því af stjórnmálamanni og sá var úr Framsóknarflokknum og á framboðsfundi, í félagsheimili í sveit og fékk litlar undirtektir.

Göngin undir Vaðlaheiði voru gerð og þjóðin situr uppi með þau og tapreksturinn sem þeim fylgir.

Í grein Heimildarinnr segir m.a: ,,Rekstrartekjur félagsins jukust lítillega milli ára, úr 603 í 641 milljón króna, en fyrir staka ferð fólksbíls í gegnum göngin þarf að greiða 1.650 krónur.

Handbært fé um liðin áramót var einungis 56 milljónir króna. Íslenska ríkið breytti fimm millj­örðum króna af skuldum Vaðla­heið­ar­ganga hf. við rík­is­sjóð í nýtt hluta­fé í fyrra. Við það fór eignarhlutur þess úr 34 í 93 prósent.

Auk þess samdi ríkið við félagið um að lengja í lánum þess til árs­ins 2057 þannig að það greiði um 200 millj­ónir króna á ári af því.[...] Skuld Vaðlaheiðarganga við íslenska ríkið stóð í 14,8 milljörðum króna í lok síðasta árs. Afborgun þess árs af þeim skuldum er áætluð 53 milljónir króna."

Af þessu og fleiru sem kemur fram í greininni má sjá að að hið gamla spakmæli, að í upphafi skuli endinn skoða, er í fullu gildi. 

Eftir situr mannvirki sem þjóðin og þeir sem fara um göngin, þurfa að greiða með almannafé, sem betur mætti nýta til annarra og þarfari hluta. 

Nóg er til að taka af

  Umhverfis orku og loftlagsráðherra skrifar pistil sem birtist í Morgunblaðinu í dag (22/8/2026) undir yfirskriftinni: ,, AGS: Ríkisfjármál...