Það hriktir í ríkisstjórnarsamstarfinu samkvæmt því sem lesa
má í Morgunblaðinu 12.4.2021.
Blaðamaður blaðsins fjallar um ,,sóttkvíarmálið“ og það er
augljóst að farið er að gæta pirrings innan ríkisstjórnarinnar og pirringurinn
er látinn hverfast um heilbrigðisráðherrann.
Á þessari skopmynd teiknara Morgunblaðsins má sjá hvað um er að vera; þingmaður úr mótþróadeildinni þjarmar að vísindamanni sem bendir á augljósar staðreyndir.Hægt hefur verið að fylgjast með staðbundinni kergju
sjálfstæðisþingmanna a.m.k. tveggja, þ.e. Brynjars Níelssonar og Sigríðar Á. Andersen
og vel getur verið að kergjan nái lengra.
Í umfjöllun Morgunblaðsins er hvergi dregið af og við skulum
grípa niður í nokkrar glefsur og fyrsta dæmið sem við lítum á er eftirfarandi:
Þá ,,óskaði
Morgunblaðið eftir því við heilbrigðisráðherra að fá afhent öll gögn, sem
legið hefðu til grundvallar reglugerðinni (minnisblöð, greinargerðir,
lögfræðiálit), í samræmi við ákvæði upplýsingalaga. Eftir ítrekun kom
stutt svar frá ráðuneytinu um að beiðninni væri synjað, þar sem öll slík gögn
hefðu verið lögð fyrir ríkisstjórnarfund. Morgunblaðið vill ekki una því
að ráðherra geti eftir geðþótta og hentugleikum falið gögn úr stjórnsýslunni
með því einu að leggja þau á borð nálægt ríkisstjórnarfundi og hefur því
kært ákvörðunina til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.“
Hér mætast sem sagt stálin stinn. Morgunblaðið ,,óskar“
eftir gögnum, heilbrigðisráðuneytið ,,synjar“, Morgunblaðið ,,unir“ ekki ,,geðþótta
og hentugleikum“ og hefur ,,kært.
Það er augljóst af þessum línum að innan Sjálfstæðisflokksins
eru öfl sem eru til í að ganga langt til að klekkja á flokknum sem teymir
ríkisstjórnina. Og þessu til viðbótar má minna á að í endurvöktum ,,Tíma“
þeirra í Framsókn er fullyrt að efnahagsstefnan sé framsóknar, nema hvað?
Það er unnið að því af samstarfsflokkunum tveimur að eigna
sér það sem þeir telja að vel hafi tekist og það kemur ekki á óvart. Hitt kemur
meira á óvart og það er hve langt ákveðin öfl innan Sjálfstæðisflokksins eru
tilbúin að ganga í að grafa undan stjórnarsamstarfinu. En á það að koma á óvart
þegar að er gáð?
Það er alls ekki víst. Flokkurinn er ekki vanur því að vera
undirmálsflokkur í stjórnarsamstarfi, en það er hann núna. Vinstri græn fara
með forsætisráðuneytið, umhverfisráðuneytið og heilbrigðisráðuneytið og það er
það síðastnefnda sem liggur vel við höggi þessa dagana að mati a.m.k. sumra
Sjálfstæðismanna, og það er þekkt kænska að ráðast á varnarvegginn þar sem hann
er veikastur fyrir.
Og gert er út á frelsi, sumra vel að merkja og frelsið hjá
Sjálfstæðismönnum gengur út á það að menn fái að valsa óhindrað um samfélagið
þótt verið geti að þeir séu smitaðir af illviðráðanlegri veirupest.
Frelsi yfir öllu, svo vitnað sé í og snúið sé upp á gamalt
og útjaskað slagorð sem fundið var upp í Evrópu fyrir margt löngu. Menn skulu
hafa frelsi til að smita samborgara sína af bráðsmitandi pest!
Sjálfstæðisflokkurinn hefur barist fyrir mörgu sem mönnum
hefur ýmist fundist vera gott eða slæmt og flokknum leið vel í
helmingaskiptafyrirkomulaginu gamla en nú er svo að sjá sem sumum sjálfstæðisflokksmönnum
sé farið að líða illa með að vera í ríkisstjórn, sem ekki er undir óskoraðri
yfirstjórn þeirra sjálfra.
Hvort ríkistjórnin lifir fram að fyrirhuguðum kosningum fer
trúlega eftir því hve langt Vinstri græn eru tilbúin að ganga til að svo geti
orðið; hve lengi þau eru tilbúin til að láta ausa yfir sig ónotum úr skotgröfum
Sjálfstæðisflokksins.